Meira en hundrað byggingar hafa hrunið í héraðinu La Guaira, norður af Caracas, samkvæmt upplýsingum frá samhæfingarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum. Sérhæfðar björgunarsveitir á vegum Sameinuðu þjóðanna eru á leiðinni til landsins.
„Þó að umfang tjónsins sé enn óljóst er ljóst að tjónið var mikið,“ segir í tilkynningu frá samhæfingarskrifstofunni.
Delcy Rodríguez, forseti Venesúela, sagði fyrr í dag að ástandið væri alvarlegast í héraðinu og kallaði það hamfarasvæði.
Tom Fletcher, yfirmaður mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum, segir stofnunina tilbúna að veita þá aðstoð sem þarf í Venezuela. Hann sagði í yfirlýsingu að „gríðarlegt sameiginlegt átak þurfi næstu daga til að styðja viðbrögð stjórnvalda og hjálpa samfélagöum.“
Jarðskjálftarnir tveir eru með þeim öflugustu í sögu landsins. Skemmdir eru miklar og óttast er að þúsundir hafi látið lífið.
Jarðskjálftarnir eru samt sem áður ekki með þeim stærstu sem hafa orðið í heiminum. Hér er listi yfir öflugustu jarðskjálfta sem mælst hafa, samkvæmt bandarísku jarðfræðistofnuninni.
- Stærð 8,6: Arunachal Pradesh í Indlandi, 15. ágúst 1950 – 780 létust
- Stærð 8,7: Alaska, Bandaríkin, 3. febrúar 1965 – enginn lést
- Stærð 8,8: Undan ströndum Esmeraldas í Ekvador, 31. janúar 1906 – 1.500 létust
- Stærð 8,8: Biobio í Síle, 27. febrúar 2010 – 523 létust
- Stærð 8,8: Kamtsjatka í Rússlandi, 29. júlí 2025 – enginn lést
- Stærð 9: Kamtsjatka í Rússlandi, 4. nóvember 1952 – allt að 15.000 létust
- Stærð 9,1: Undan ströndum Tōhoku í Japan, 11. mars 2011 – Yfir 15.000 létust
- Stærð 9,1: Undan ströndum Súmötru í Indónesíu, 26. desember 2004 – Yfir 280.000 létust
- Stærð 9,2: Alaska í Bandaríkjunum, 28. mars 1964 – 130 létust
- Stærð 9,5: Biobio í Síle, 22. maí 1960 – 1.655 létust
Myndir og myndskeið frá Venesúela halda áfram að berast. Þetta myndskeið tók Erick Monasterios sem býr í El Junquito, úthverfi höfuðborgarinnar Caracas. Hann var að streyma beint af götu hverfisins þegar hús hrundi. Mikil hræðsla og ringulreið greip um sig og það má heyra hann hrópa „Móðir mín! Sjitt, sjitt, sjitt!“ og öskur annarra íbúa.
Miklar skemmdir urðu á alþjóðaflugvellinum í Caracas eins og sést á þessu myndskeiði. Wilmer Azuaje, sem var á flugvellinum þegar skjálftarnir riðu yfir, sýnir eyðilegginguna.
Sérhæfðar björgunarsveitir á vegum Sameinuðu þjóðanna eru á leiðinni til Venesúela, að sögn Delcy Rodriguez, forseta landsins. Hún sagðist í sjónvarpsávarpi til þjóðarinnara hafa átt samtöl við fjölmarga þjóðarleiðtoga og tengiliði Sameinuðu þjóðanna í Venesúela.
Hollendingar ætla líka að senda björgunarsveit til landsins og utanríkisráðherra landsins tilkynnti um tveggja milljóna evra björgunarpakka þar sem sendar yrðu björgunarsveitir, búnaður og hundar.
Borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins hafa ekki borist beiðnir um aðstoð vegna jarðskjálftanna. Í svari Ægis Þórs Eysteinssonar, upplýsingafulltrúa ráðuneytisins, segir að ráðuneytið fylgist grannt með þróun mála.
Jarðskjálftarnir tveir urðu með um mínútu millibili og áttu upptök sín stuttu frá hvor öðrum. Hér er kort sem sýnir staðsetningu þeirra og áhrifasvæði. Áhrifa hans var meðal annars vart í Bogotá, höfuðborg Kólumbíu, sem er í rúmlega 1500 kílómetra fjarlægð.
Að minnsta kosti 164 eru látnir og 971 slasaður eftir jarðskjálftana tvo, að sögn Delcy Rodríguez, forseta Venesúela.
Hún segir þunga björgunaraðgerða færast til La Guaira-héraðs, norður af Caracas sem varð verst úti í skjálftunum. Stjórnvöld ætli einnig að setja á fót 200 milljón bandaríkjadala sjóð með fjármagni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum til að endurbyggja innviði, sjúkrahús og aðrar byggingar.
Mikið tjón er eftir jarðskjálftana tvo sem urðu með stuttu millibili í Venesúela í gærkvöldi. Margar byggingar hrundu í skjálftunum, að hluta til eða alveg.
Í byrjun sjást eyðileggingar á byggingu sjónvarpsstöðvarinnar Venezolana de Televisión (VTV) í Caracas.
Í myndbandinu sjást einnig miklar skemmdir á fjölbýlishúsi, meðal annars má sjá stórar sprungur í veggjum og heilu veggina sem hafa hrunið úr húsinu.
Í þessu myndbandi má sjá ástandið í Venesúela eftir jarðskjálftana. Ljóst er að tjón vegna þeirra er mjög mikið og yfirvöld óttast að tugir þúsunda eigi eftir að finnast látnir. Margir íbúar vörðu nóttunni á götunni af ótta við að byggingar hrynji og eftirskjálftar ríði yfir.
Myndband sem var tekið þegar annar jarðskjálftanna reið yfir í Chacao-hverfi í Caracas. Gler í húsi hristist og íbúar flýja.
Bandaríska jarðfræðistofnunin (USGC) segir stærri jarðskjálftan sem reið yfir Venesúela í gærkvöld hafa verið þann öflugasta síðan 1900. Fyrri jarðskjálftinn sem reið yfir var 7,2 að stærð og seinni skjálftinn, sem reið yfir um mínútu síðar var af stærðinni 7,5.
Samkvæmt gögnum stofnunarinnar er það öflugasti jarðskjálfti sem riðið hefur yfir landið síðan 29. október 1900. Sá var 7,7 að stærtð og var kallaður San Narciso-jarðskjálftinn.
Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin, oftast kölluð rústabjörgunarsveitin í daglegu tali, hefur ekki verið boðuð til Venesúela eftir skjálftann. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að gjarnan líði talsverður tími þar til slík beiðni berst í gegnum Sameinuðu þjóðirnar.
Hann segir að í svona aðstæðum þurfi heimamenn að bera þungann af fyrsta viðbragði áður en leitað er til alþjóðasamfélagsins eftir hjálp. Þá skipti sköpum að ríkin séu reiðubúin að taka á móti alþjóðlegum björgunaraðilum.
Íslenska rústabjörgunarsveitin fór síðast til Tyrklands eftir jarðskjálfta sem reið þar yfir fyrir tveimur árum.
Forseti Venesúela hefur rætt við Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í síma. Delcy Rodriguez greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum X og þakkaði Bandaríkjunum fyrir stuðninginn á þessum erfiða tíma.
Kína og Indland hafa bæst í hóp ríkja sem hafa heitið Venesúela stuðningi eftir jarðskjálftana.
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar í Venesúela hafa sett á laggirnar vefsíðu þar sem fólk getur skráð nöfn fólks sem er saknað eftir jarðskjálftana. Þegar þetta er ritað hafa rúmlega 8.500 verið skráðir, en þar af hafa yfir 400 fundist eða verið afskráðir. Fréttastofa Reuters segist ekki geta sannreynt tölurnar.
Dæmi voru um að íbúar í Caracas hefðu varið stórum hluta næturinnar utandyra.
Yfirvöld báðu fólk um að halda sig utan veggja heimila sinna á meðan mat væri lagt á skemmdir.
Á meðal fólks blundaði óttinn um kröftuga eftirskjálfta eða að byggingar sem þegar höfðu skemmst í stóru skjálftunum myndu skyndilega hrynja til grunna.
Delcy Rodriguez, forseti Venesúela, hefur greint frá því að 32 hið minnsta séu látnir eftir jarðskjálftana. Tilkynningar hafa borist um 700 sem slösuðust í skjálftunum. Frá þessu er sagt í frétt Reuters..
Bandarísk yfirvöld ætla að senda björgunarsveitir og hjálpargögn til Venesúela. Frá þessu greinir Jeremy Lewin, aðstoðarráðherra í bandaríska utanríkisráðuneytinu.
Lönd í Rómönsku Ameríku hafa einnig rétt fram hjálparhönd.
Nayib Bukele, forseti El Salvador, segir þarlend stjórnvöld hafa safnað saman um 50 tonnum af útbúnaði og öðrum hjálpargögnum. Þá séu 300 björgunarsveitarmenn reiðubúnir til að leggja í hann til Caracas.
Í Ekvador hefur hjálpargögnum einnig verið safnað saman. Daniel Noboa Azin, forseti landsins, segir þau verða brátt send til Venesúela.
Luiz Inácio Lula da Silva, forseti Brasilíu, segir að þar sé verið að meta hvaða aðstoð Brasilíumenn geti veitt „systurþjóð“ sinni í Venesúela.
Delcy Rodríguez, forseti Venesúela, hefur lýst yfir neyðarástandi í landinu.
Í kvöld sendi hún samúðarkveðjur til aðstandenda þeirra sem létust í jarðskjálftunum.
Rodríguez greindi einnig frá því að alþjóðaflugvellinum í Caracas hefði verið lokað vegna skemmda sem jarðskjálftarnir ollu.
Byggingar í höfuðborginni Caracas hrundu til grunna í jarðskjálftanum. Upplýsingar um manntjón og umfang eyðileggingar liggja ekki fyrir. Myndir frá borginni sýna að sums staðar hafa hús gjöreyðilagst.
Bandaríska jarðfræðistofnunin telur töluverðar líkur á miklu manntjóni og mikilli eyðileggingu eftir skjálftana. Þá eru líka taldar líkur á að stórir eftirskjálftar komi til með að fylgja stóru jarðskjálftunum sem urðu í kvöld.
Stofnunin segir 44% líkur á að dauðsföll eftir jarðskjálftana geti orðið fleiri en 10 þúsund. 30% líkur eru á að þau verði fleiri en 100 þúsund.
Gott kvöld.
Tveir stórir jarðskjálftar riðu yfir Venesúela með tæplega mínútu millibili rétt eftir klukkan tíu að íslenskum tíma í kvöld.
Sá fyrri var 7,2 að stærð en sá seinni 7,5.
Flóðbylgjuviðvaranir voru gefnar út í Venesúela og nokkrum eyríkjum í Karíbahafinu, þar á meðal Puerto Rico, Jómfrúaeyjum og Curaçao. Þær hafa verið afturkallaðar.
Myndir frá höfuðborginni Caracas sýna mikla eyðileggingu en þó nokkur fjöldi bygginga hrundi í jarðskjálftunum.
Ég heiti Grétar Þór Sigurðsson og ætla að flytja ykkur helstu tíðindi frá Venesúela í nótt.