Íris Edda Jónsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri í Vopnafjarðarhreppi. Hún var oddviti sjálfkjörna framboðsins Sterkrar stoðar.
Íris Edda var ráðin staðgengill sveitarstjóra Vopnafjarðarhrepps í febrúar en hafði fram að því verið verkefnastjóri stjórnsýslu. Þá höfðu orðið nokkrar sviptingar í bæjarmálunum, sveitarstjóri og oddviti sveitarstjórnar sögðu af sér.
Íris Edda leiddi lista Sterkrar stoðar, eina framboðsins til sveitarstjórnar í Vopnafjarðarhreppi, sem var þar með sjálfkjörið. Nú hefur sú sjálfkjörna sveitarstjórn gengið frá ráðningu hennar í starf sveitarstjóra. Hún tekur undir að staðan sé óvenjuleg.
„Við lendum ekki oft í því að það verði sjálfkjörið. Ég lít kannski meira á það sem faglegt en pólitískt, sjálft starfið. En jú vissulega kannski óvenjuleg staða.“
Nú hafði minnihluti síðustu sveitarstjórnar gagnrýnt það að þú værir samtímis staðgengill sveitarstjóra og leiddir framboð til sveitarstjórnar. Telur þú að það sé sátt um ráðninguna í samfélaginu?
„Já. Ég hef ekki fundið fyrir öðru. Það eru örugglega alltaf skiptar skoðanir á öllum svona ráðningum en ég held að við ætlum að einbeita okkur að því að vinna vel fyrir allt samfélagið og ég vona að það takist vel og fólk verði sátt með það.“
Íris segir að það sé góður andi í nýju sveitarstjórninni eftir samstarfserfiðleika og sviptingar á síðasta kjörtímabili. Hún fer í fæðingarorlof frá sveitarstjórastarfinu síðar á árinu. Staðgengill hennar verður Björn Ingimarsson, áður sveitarstjóri í Múlaþingi. Björn gerði úttekt á rekstri Vopnafjarðarhrepps síðasta vetur.
„Hann kom með ýmsar tillögur sem við ætlum að vinna úr og við erum þegar byrjuð að skoða það vel. Það tekur tíma fyrir nýja sveitarstjórn að koma sér inn í öll málin en það verður tekið tillit til tillagna hans og farið yfir þær.“