Fimm listar eru í framboði á Akranesi fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru
- Ragnar Baldvin Sæmundsson, Framsóknarflokki og frjálsra
- Jón Guðni Guðmundsson, Viðreisn
- Líf Lárusdóttir, Sjálfstæðisflokki
- Hrafn Ágúst Björnsson, Miðflokki
- Sigurður Vopni Vatnsdal, Samfylkingu
Um 8.500 manns búa í sveitarfélaginu Akranesi og voru 5.700 á kjörskrá í sveitarstjórnarkosningum árið 2022. Rúmlega 3.500 greiddu þá atkvæði.
Umsjónarmenn eru Gréta Sigríður Einarsdóttir og Magnús Geir Eyjólfsson.