Málefnahópur Öryrkjabandalags Íslands gagnrýnir harðlega að komugjöld séu undanskilin í nýjum lögum um sjúkratryggingar í almenna greiðsluþátttökukerfinu. Í ályktun sem málefnahópur ÖBÍ sendi fjölmiðlum í gær segir að ójöfnuður í aðgengi að heilbrigðisþjónustu eigi eftir að aukast með lagabreytingunni og það sé óásættanleg niðurstaða.
Kostnaður fatlaðs fólks og öryrkja vegna þjónustu sjúkraþjálfara eigi einnig eftir að hækka töluvert. Í ályktuninni er tekið dæmi um öryrkja sem þarf þjálfun hjá sjúkraþjálfara einu sinni í viku. Nýju lögin geri ráð fyrir að öryrkinn greiði 1.000 krónur í hvert sinn eða 48.000 á ári og sá kostnaður verði utan greiðsluþátttökukerfis.
Þar að auki eigi öryrkjar þess ekki kost að fá hluta þessa kostnaðar endurgreiddan úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga.
Málefnahópur ÖBÍ segir að með þessum lagabreytingum sé verið að auka heilbrigðiskostnað hjá öryrkjum og fötluðu fólki og þær vinni gegn því markmiði að auka aðgengi þessara hópa að heilbrigðisþjónustu.
Í ályktunni segir jafnframt að ÖBÍ lýsi yfir miklum vonbrigðum með áform ríkisstjórnarinnar varðandi aukna greiðsluþátttöku í heilbrigðisþjónustu. Miklar vonir hafi verið bundnar við að ný ríkisstjórn myndi lækka álögur á fólk sem sækir heilbrigðisþjónustu, en þess í stað hafi núverandi ríkisstjórn aukið þær álögur.