Stjórnvöld undirrituðu í dag samkomulag um nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæslustöð í Vík í Mýrdal. Nýja hjúkrunarheimilið leysir þá af hólmi hjúkrunar- og dvalarheimilið Hjallatún sem var opnað árið 1989.
18 hjúkrunarrými eru í Hjallatúni og gert er ráð fyrir að á nýja hjúkrunarheimilinu, við Sléttuveg 11, verði þau að minnsta kosti jafn mörg. Núverandi húsnæði uppfyllir ekki nútímakröfur um aðbúnað vegna reksturs á hjúkrunarheimilum.
Húsnæði heilsugæslunnar í Vík er komið til ára sinna, að því er fram kemur í tilkynningu frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Þarfagreining hafi sýnt að hvorki raunhæft né hagkvæmt sé að ráðast í endurbætur.
Því hafi verið ákveðið að sameina nýtt húsnæði fyrir hjúkrunarheimili og heilsugæslustöð í einni byggingu.
Alma Möller heilbrigðisráðherra og Inga Sæland, sem fer með uppbyggingu hjúkrunarheimilda, undirrituðu samkomulagið ásamt Einari Frey Elínarsyni, sveitarstjóra Mýrdalshrepps.