Eilítið fleiri ætla að segja nei en já í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald viðræðna við ESB á laugardag samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup.
Af þeim sem tóku afstöðu í könnuninni ætla 51,6% að greiða atkvæði á móti framhaldi aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Jákvæðir eru hins vegar 48,4%.
Munur milli fylkinganna tveggja mælist ekki tölulega marktækur, líkt og í síðasta þjóðarpúlsi frá því um miðjan mánuðinn. Þá sögðust 51,5% ætla að segja já en 48,5% nei.
Viðsnúningur hjá ungu fólki
Yngsti aldurshópurinn er áberandi líklegri en aðrir aldurshópar til að segja nei. Það er breyting frá því í síðustu mælingu. Nú segist 60% fólks á aldrinum 18–29 ára ætla að segja nei.
Þetta er talsverð breyting frá því í júní þegar 63% í aldurshópnum ætluðu að segja já. Þá var mestur stuðningur við framhald viðræðnanna meðal þess aldurshóps.
Á eftir yngsta kjósendahópnum er mest andstaða meðal þess elsta – 70 ára og eldri. Þar ætla 53% að segja nei.
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru áfram líklegri en íbúar á landsbyggðinni til að segja já. Þá er fólk með meiri menntun einnig líklegra til að segja já.
Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem segjast styðja ríkisstjórnina segjast ætla að segja já. Af þeim sem styðja hana ekki ætla 88% hins vegar að segja nei.
Könnunin var gerð dagana 24.–27. ágúst. Heildarúrtaksstærð var 4.583 og þátttökuhlutfall var 39,1%.