Mercedes-Benz á Íslandi boðar til frumsýningar á nýjum og alrafmögnuðum GLC á laugardag, 30. maí, í sýningarsal Mercedes-Benz á Krókhálsi 11 og hjá Öskju í Reykjanesbæ á Njarðarbraut 11.
Bíllinn dregur allt að 715 kílómetra samkvæmt WLTP-staðlinum og nýtir 800 volta hleðslukerfi sem styttir hleðslutíma verulega, að því er segir í tilkynningu frá umboðinu Öskju. Þá býður GLC einnig upp á allt að 2.400 kg dráttargetu.
„Nýr GLC segir mjög mikið um hvert Mercedes-Benz er að stefna í dag. Bíllinn sameinar langa drægni, nýja tækni og þau þægindi sem fólk vill hafa í daglegu lífi, bæði á einfaldan og mjög yfirvegaðan hátt,“ er haft eftir Ágústi Hallvarðssyni, sölustjóra Mercedes-Benz á Íslandi.
Nýtt stýrikerfi
GLC kemur með nýja MB.OS-stýrikerfinu frá Mercedes-Benz þar sem gervigreind er nýtt til að gera aksturinn snjallari og persónulegri. Með Digital Extras-appinu tengist ökumaðurinn svo bílnum í gegnum snjallsíma og getur meðal annars fylgst með hleðslu, forstillt hitastig og nálgast upplýsingar um bílinn í rauntíma.
Dæmi um staðalbúnað í bílnum:
- MBUX-snjallkerfi með raddstýringu
- 360° myndavél
- Íslenskt leiðsögukerfi
- Glerþak með SKY CONTROL
- Rafdrifnar sætastillingar með minni
- Háþróuð aksturs- og öryggiskerfi
Frumsýningin stendur yfir frá kl. 12 til 16 á laugardag og gefst gestum þar tækifæri til að skoða bílinn í fyrsta sinn og kynna sér helstu tæknilausnir og búnað.
Mercedes-Benz fagnar jafnframt 140 árum af nýsköpun á árinu og er nýr GLC sagður marka mikilvægt skref í áframhaldandi þróun vörumerkisins.
Forsala á nýjum Mercedes-Benz GLC er hafin hjá Öskju og er verð frá 12.390.000 kr.
