„Spennandi tímar framundan í Borgarbyggð og Skorradalshreppi,“ segir í færslu Sjálfstæðisflokksins í Borgarbyggð á Facebook.
Flokkarnir tveir taka við af Framsóknarflokknum sem náði hreinum meirihluta í Borgarbyggð í sveitarstjórnarkosningunum 2022. Framsókn missti meirihlutann í kosningunum nú fyrir viku og fékk einungis tvo kjörna fulltrúa
Sjálfstæðisflokkurinn fékk þrjá kjörna fulltrúa og Borgarbyggðarlistinn tvo. Alls eru níu sem sitja í sveitastjórninni.
Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinuðust í september 2025. Sameiningartillagan fór í íbúakosningu og greiddu 417 með sameiningu í Borgarbyggð og 32 í Skorradalshreppi. 59 prósent greiddra atkvæða féllu með sameiningu.