Keiko Fujimori er nýr forseti Perú en hún sór embættiseið í Lima í Perú í gær. Fujimori hefur heitið því að takast á við glæpi, eiturlyfjasmygl og ólöglegan námugröft í landinu.
Hún ávarpaði þingið í gær og sagði að herinn myndi tímabundið stjórna öryggisaðgerðum þegar neyðarástand skapast vegna glæpa, eða þar til neyðarástandi er aflýst.
Fujimori er níundi forseti Perú á áratug en nokkur pólitískur óstöðugleiki hefur verið í landinu og enginn forseti hefur náð fimm árum í embætti síðan Ollanta Humala gegndi embættinu frá 2011-2016.
Meðal gesta á athöfninni þegar Keiko sór embættiseið voru forsetarnir Javier Milei frá Argentínu, Jose Antonio Kast frá Chile og Daniel Noboa frá Ekvador, Rodrigo Paz frá Bólivíu og Yamandu Orsi frá Úrúgvæ.
Mótmælendur krefjast réttlætis
Fujimori er íhaldssamur og umdeildur stjórnmálamaður. Yfir 100 manns komu saman í Lima í gær til að mótmæla henni sem forseta. Mótmælendur kröfðust einnig réttlætis vegna glæpa sem framdir voru í valdatíð föður hennar, fyrrum forseta Alberto Fujimori.
Alberto Fujimori var forseti landsins frá 1990 til 2000 og stjórnaði landinu með harðri hendi á valdatíð sinni. Hann fékk 25 ára fangelsisdóm árið 2015 fyrir spillingu og glæpi gegn mannkyni tengdum herör hans gegn skæruliðahreyfingum.
Margir óttast að Fujimori muni stjórna Perú með jafn harðri hendi og faðir hennar gerði á sínum tíma.