Jón Ferdínand Estherarson, nýkjörinn formaður Sósíalistafllokks Íslands, segir rangfærslur hafa birst um aðalfund flokksins í fjölmiðlum síðustu daga, ranglega hafi verið haldið fram að slælega hafi verið staðið að boðun fundarins og rangt sé að fundarmenn hafi ekki fengið að vita um staðsetningu fundarins fyrr en eftir að þeir höfðu skráð sig á hann.
Jón segir að stuðningsmannahópar Sönnu Magdalenu Mörtudóttur og Gunnars Smára Egilssonar hafi grafið undan flokknum og vinni leynt og ljóst að því að koma honum fyrir kattarnef. Fráleitt sé að fólk sem bjóði sig fram undir merkjum annarra flokka geti gegnt trúnaðarstörfum fyrir flokkinn.
Í yfirlýsingu sem Jón sendir til fjölmiðla segir:
„Aðalfundur Sósíalistaflokks Íslands var kynntur á félagsfundum flokksins og fundarboð var sent í tölvupósti á alla félaga flokksins og sömuleiðis ítrekun. Fundurinn var ekki leynilegri en svo að gervallt félagatalið fékk að vita af fundinum með löglegum og eðlilegum fyrirvara og allir áhugasamir félagar fengu kynningu líka á félagsfundum.
Ranglega er haldið fram að fundarmenn hafi ekki fengið að vita um staðsetningu fyrr en eftir að þeir höfðu skráð sig. Hið rétta er að í fundarboði var hlekkur á skráningareyðublað og um leið og smellt var á það voru allar nánari upplýsingar, meðal annars með nákvæmri staðsetningu og tímasetningu var að finna í inngangi þess, aðgengilegt öllum án þess að þurfa að skrá sig. Í tölvupóstinum sjálfum kom fram að nánari upplýsingar voru allar í eyðublaðinu. Það var ekkert á huldu með þetta og allt mjög gegnsætt.
Varðandi furðulega hótun Söru Stef Hildardóttur um kæru á aðalfund Sósíalistaflokks Íslands og aðdróttunum og ásökunum sem fylgdu þeirri hótun.
Eins og gefur að skilja og er öllum morgunaugljóst þá gengur það ekki upp að fólk sem býður sig fram gegn Sósíalistaflokknum með öðru framboði, gegnir trúnaðarstörfum fyrir framboð sem býður fram gegn Sósíalistaflokknum og með mjög opnum og alvarlegum hætti grefur undan flokknum, hendir flokknum út úr eigin húsnæði og vinnur með ráðum og dáðum og með opinberlega yfirlýstum hætti að því að granda Sósíalistaflokknum, að það fólk sé áfram félagar í flokknum. Það er augljós hagsmunaárekstur. Í öllum eðlilegum stjórnmálaflokkum gilda lög og reglur gegn slíku.
Það hefur engum dulist síðasta ár að hávær og fámennnur hópur stuðningsmanna Sönnu Magdalenu og Gunnars Smára hafa unnið með þessum hætti gegn flokknum eftir að Gunnar varð undir í lýðræðislegri kosningu á aðalfundi fyrir ári síðan. Staðreynd sem hann getur ekki sætt sig við. Sanna sjálf var endurkjörin og beðin um samstarf við nýja forystu, en því var hafnað algerlega af hennar hálfu með svaraleysi og afsögn tveimur dögum eftir aðalfund. Svo stóð hún og Sara Hildardóttir fyrir þeim gjörningi að henda Sósíalistaflokknum út úr húsnæði sínu, mættu síðar á fund flokksins með öskurhávaða og stofnuðu loks mótframboð gegn flokknum. Þætti einhverjum eðlilegt að Guðrún Hafsteinsdóttir myndi kæra landsfund Samfylkingarinnar ef hún fengi ekki að vera þátttakandi í honum? Ætti Sigmundur Davíð enn að fá að mæta á flokksþing Framsóknarflokksins? Er Þorgerður Katrín enn höfð með í ráðum á landsfundi Sjálfstæðisflokksins? Þá má nefna að meðal fyrrum félaga sem eru ekki lengur í félagatali Sósíalistaflokksins eru einstaklingar sem gegna virkum trúnaðarstörfum fyrir VG og einn starfandi þingmaður Miðflokksins.
Þetta er auðvitað fjarstæðukennt. Við vísum öllum þessum ásökunum á bug og biðjum þetta fólk sem hefur þegar stofnað sitt sjálfstæða framboð og flokk að einbeita sér að framgangi eigin verkefna og láta af innistæðulausum og linnulausum árásum á starf Sósíalistaflokksins. Við erum engir óvinir né andstæðingar, heldur samherjar í pólitískum skoðunum allra jafna, það er því bara innilega miður að þau tali í orði um samstöðu fyrir kosningar en hegði sér svo með allt öðrum hætti að þeim loknum.
Sósíalistaflokkur Íslands óskar hins vegar Söru og Sönnu og þeirra hópi alls hins besta og velfarnaðar í sínum störfum fyrir Vor til Vinstri og Vinstrið.“