Ný ríkisstjórn Danmerkur verður formlega kynnt í dag. Jafnaðarmenn, Moderaterne, Sósíalíski þjóðarflokkurinn og Radikale náðu saman í gær um myndun stjórnar á miðjunni og vinstri ás stjórnmálanna.
DR, danska ríkisútvarpið, greinir frá nokkrum áherslumálum stjórnarinnar sem lekið hafa út. Stefnumálin verða kynnt nánar í dag.
Skattalækkun til að lækka verð matarkörfunnar
Líkt og víða um heim hefur matvælaverð hækkað í Danmörku. Ríkisstjórnin ætlar að lækka virðisaukaskatt á matvæli um helming og tekur lækkunin gildi 2028. Þá er stefnt að því að afnema virðisaukaskatt á ávexti og grænmeti. Þetta var eitt af stefnumálum Einingarlistans sem ætlar að verja stjórnina vantrausti. Pelle Dragsted, leiðtogi flokksins, tilkynnti um fyrirætlanir um lækkun virðisaukaskatts á matvæli í morgun. DR hefur eftir greinanda sínum í efnahagsmálum að lækkun matarkörfunnar fyrir fjölskyldur geti orðið veruleg.
Stefnt að ókeypis tannlækningum innan áratugar
Ríkisstjórnin stefnir að því að hafa tannlækningar ókeypis fyrir alla Dani á næstu tíu árum. Fyrst í stað verða að viðkvæmir hópar sem geta farið ókeypis til tannlæknis, svo sem fólk sem er langveikt. Með tímanum bætast fleiri hópar við.
Efstu skattþrepin afnumin
Tvö efstu skattþrep tekjuskatts verða afnumin og eins verður skattur á fyrirtæki lækkaður um 3 prósent. Fram kemur í greiningu DR að skattalækkanir fyrir þá tekjuhæstu séu sigur fyrir Lars Løkke Rasmussen, leiðtoga Moderaterne. Þá telur DR að lækkanirnar hafi verið stór biti að kyngja fyrir vinstri flokkana.
Fram kemur íumfjöllun DRað lítið sé enn vitað um það hvernig eigi að fjármagna skattalækkanirnar.