Fleiri eru hlynntir en andvígir því að fara í aðildarviðræður við ESB, samkvæmt nýrri könnun Maskínu sem unnin var fyrir DV um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fer fram 29. ágúst.
Þar verður þjóðin spurð: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ og valmöguleikarnir verða „Já“ eða „Nei“.
53,1 prósent þeirra sem tóku afstöðu í könnun Maskínu sögðust ætla að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslunni og 46,9 prósent ætla að kjósa nei.
Ef litið er til allra svarenda sögðust 44,5 prósent ætla að kjósa já, 39,4 prósent nei og 14,6 prósent sögðust ekki vita hvernig þau myndu kjósa. 1,5 prósent svarenda vildi ekki svara.
Fólk á fimmtugsaldri jákvæðast fyrir aðildarviðræðum
Lítill munur er á svörum milli kynja. 53,4 prósent karla ætla að kjósa já og sama á við um 52,6 prósent kvenna.
52,3 prósent fólks á aldrinum 18 til 29 ára ætlar samkvæmt könnuninni að kjósa já. Sá aldurshópur sem er jákvæðastur fyrir aðildarviðræðum er fólk á aldrinum 40 til 49 ára en 59,5 prósent þeirra ætla að kjósa já. Fólk 70 ára og eldra er neikvæðast, 53,1 prósent þeirra ætlar að kjósa nei.
Íbúar Austurlands ekki spenntir fyrir viðræðum
Ef tekið er mark á búsetu er fólk búsett á höfuðborgarsvæðinu jákvæðast fyrir aðildarviðræðum Íslands við ESB. 59 prósent svarenda sem búsettir eru þar ætla að kjósa já. Íbúar á Austurlandi eru langneikvæðastir fyrir aðildarviðræðum en einungis 23,9 prósent þeirra ætla að kjósa já.
Töluverður munur er á svörum fólks eftir því hvaða stjórnmálaflokk fólk myndi kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag. Stuðningsmenn Viðreisnar eru jákvæðastir, 95,3 prósent þeirra ætla að kjósa já, næstir eru stuðningsmenn Samfylkingarinnar, 91 prósent þeirra ætlar að kjósa já. 55,7 prósent þeirra sem myndu kjósa Flokk fólksins ætla að kjósa já.
Stuðningsmenn Miðflokksins eru neikvæðastir fyrir aðildarviðræðum, 88,6 prósent þeirra ætla að kjósa nei. 85,3 prósent stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins ætla að kjósa nei sem og 68,9 prósent þeirra sem myndu kjósa Framsókn.
Meirihluti andvígur ESB-aðild
Fyrr í vikunni birti Viðskiptablaðið könnun Gallup þar sem var spurt: „Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að Ísland gangi í Evrópusambandið (ESB)? Samkvæmt þeirri könnun er meirihluti landsmanna andvígur aðild Íslands að Evrópusambandinu en af þeim sem tóku afstöðu sögðust 54 prósent vera andvíg.
Könnunin tók til 1856 svarenda og fór fram dagana 2. til 11. júní. Af svarendum tóku 1558 afstöðu.