Ný hverfi í byggingu á mögulegu áhrifasvæði eldgosa
⚠️ Eldri en 6 mánuðir
Ný hverfi í byggingu á mögulegu áhrifasvæði eldgosa
📅 2026-04-21 15:31:00👁️ 6 lesið
Ný hverfi í byggingu á mögulegu áhrifasvæði eldgosa
Stórir hlutar efri byggða höfuðborgarsvæðisins liggja á svæði þar sem hugsanlegt er að hraun renni eða eldgosaopnun verði. Ný byggð sem verið er að reisa í Hafnarfirði og Reykjavík falla undir þessi svæði, með mismikilli áhættu.
Þrír af fimm líklegustu farvegum hraunflæðis, sem Veðurstofa Íslands hefur skilgreint, renna í gegnum Hafnarfjörð eða Garðabæ, en hinir tveir liggja í áttina að Elliðaárdal í gegnum Elliðavatn eða hverfið Norðlingaholt.
Nýtt hverfi í Hafnarfirði, Skarðshlíð, sem selst hefur upp, liggur á svæði þar sem taldar eru „töluverðar“ líkur á hraunrennsli, ef til meðalstórs goss kemur ofan byggðarinnar.
Hafnarfjörður hefur einnig í boði lóðir fyrir hesthús í Gráhelluhrauni, þar sem taldar eru „miklar líkur“ á hraunflæði.
Nýjasta uppbyggingarhverfið, Ásland 4, er ekki staðsett í líklegustu farvegum eldgosa, sem skilgreindir eru af Veðurstofunni, en þar eru þó „litlar“ líkur á upptökum eldgoss. Það gildir um mörg önnur uppbyggingarsvæði á höfuðborgarsvæðinu.
Hugsanleg gosupptök
Efri hluti höfuðborgarsvæðisins nær inn á eldstöðvarkerfi Krýsuvíkur, sem liggur allt frá Krýsuvík við suðurströnd Reykjanesskaga til norðausturs yfir í Mosfellsdal. Vegna þess eru stór svæði skilgreind sem möguleg upptökusvæði eldgosa. Það er því ekki eingöngu hættan á að hraun flæði niður í byggð, heldur að gos hefjist innan byggðar.
Norðlingaholt var byggt á þekktu sprungusvæði og eru bæði „litlar“ líkur á gosupptökum og svo „nokkrar“ líkur á hraunflæði. Norðlingaholtið liggur í tveimur af fimm líklegustu hraunfarvegum sem Veðurstofan hefur skilgreint á höfuðborgarsvæðinu vegna sviðsmynda eldgosa fyrir ofan byggð.
Innan Reykjavíkurborgar hefur verið skipulögð 6 þúsund manna byggð í Keldum, við botn Grafarvogsins. Þar eru taldar „litlar“ en einhverjar líkur á gosupptökum, hvenær sem það skyldi verða.
Reykjavíkurborg hyggur á byggingu 3.500 íbúða í Höllum í Úlfarsárdal, þar sem „litlar“ líkur eru á gosupptökum og hraunrennsli, sem og á austurreitum Úlfarsárdal.
Ekki er talin eldgosahætta á helstu þéttingarreitum Reykjavíkur, til dæmis í Ártúnshöfða eða gamla Vesturbænum, en allur norðurhluti borgarinnar, eins og Kjósarhreppur, Kjalarnes og Seltjarnarnes, liggja utan eldgosavár. Sama gildir um flugvallarsvæðið, sem Reykjavíkurborg skilgreinir sem „framtíðarsvæði“ uppbyggingar, en hefur ekki náðst sátt um að færa.
Ásland 4Nýtt hverfi við útjaðar Hafnarfjarðar er ekki innan líklegasta farvegs hraunrennslis, en á svæði þar sem eru möguleg upptök eldgosa, þó ólíkleg séu.
Mynd: Golli
Úlfarsárdalur„Litlar“ líkur en einhverjar á eldgosi og hraunrennsli eru í nýrri byggð Reykjavíkurborgar í Úlfarsárdal.
Mynd: Golli
Byggt við farveg eldgosaNýbygging efst í Hafnarfirði, en „mjög miklar“ líkur teljast á að eldgos verði í fjöllunum fyrir ofan, þótt hraunrennsli nái ekki endilega til byggðarinnar.
Mynd: Golli
Vilja víkka vaxtarmörk
Sveitarfélögin sjö á höfuðborgarsvæðinu sömdu sín á milli um vaxtarmörk árið 2015.
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, hefur talað fyrir því að víkka þau mörk til þess að rúma áframhaldandi fólksfjölgun á svæðinu, eins og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
„Síðastliðinn áratug hafa forsendur að baki vaxtarmörkunum gjörbreyst, mannfjöldinn hefur aukist langt umfram spár og húsnæðisþarfir fjölskyldna breytast í sífellu. Þau svæði sem hafa verið skilgreind fyrir húsnæðisuppbyggingu munu aldrei nægja til að mæta þörfinni á húsnæðismarkaði, það er raunveruleikinn”, sagði Hildur Björnsdóttur í yfirlýsingu frá borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins haustið 2024.
Sama hefur oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, Orri Björnsson, nýlega lagt áherslu á. „Vandinn liggur ekki í skorti á vilja til uppbyggingar í Hafnarfirði, heldur í þeim skorðum sem settar hafa verið. Þær skorður skrifast á vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins og andstöðu vinstri flokkanna í sveitarstjórnum, sér í lagi í borgarstjórn Reykjavíkur, til að gera nauðsynlegar breytingar,“ skrifaði hann í grein á Vísi.is í síðustu viku þar sem hann lagði til að „afnema vaxtarmörkin á höfuðborgarsvæðinu“.
Veðurstofa Íslands leggur til í nýju hættumati sínu að tekin verði upp skilgreining á því hvað telst „ásættanleg áhætta“ fyrir byggð, með tilliti til hættu af eldgosum.
Hætta á hraunrennsliLíklegasta hraunrennsli á höfuðborgarsvæðinu. „Mjög miklar“ líkur eru taldar 20 sinnum meiri en „litlar“ líkur. Gulmerkt á myndinni er nýtt hverfi í Áslandi 4 í Hafnarfirði.
Donald Trump vill að Viktor Orban, fyrrverandi forseti Ungverjalands, verði næsti aðalræðismaður Sameinuðu þjóðanna. Undirsátar hans í Hvíta húsinu vi...
Vopnahlé milli Rússa og Úkraínumanna í Oleshky tók gildi klukkan eitt í nótt að íslenskum tíma. Al Jazeera hefur þessar upplýsingar eftir rússneska va...
Japanskir saksóknarar hafa ákært bandarískan sjóliða sem er grunaður um að hafa myrt japanska konu á Okinawa-eyju í Japan.Sjóliðinn Devin Jacob Ballar...
Flokkur Flavio Bolsonaro forsetaframbjóðanda í Brasilíu, Frjálslyndi flokkurinn, viðurkennir úrslit kosninganna sem fram fóru þar á sunnudaginn. Þetta...
Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði og sérfræðingur í byggðaþróun, segir aðalvandamálið við Loftbrúna ekki hvort ríkið niðurgreiði flugmiða um...
Lögreglan í El Salvador hefur handtekið fyrrverandi knattspyrnumann fyrir gróft dýraníð. Maðurinn lét lítinn hund dangla fram af svölum og tók það upp...
Luiz Inácio Lula da Silva Brasilíuforseti tryggði sér fjórða kjörtímabilið í seinni umferð kosninganna í gær. Hann hlaut 51,79 prósent gildra atkvæða ...
Harry Kane becomes the first English player to win the Ballon d'Or since Michael Owen in 2001 after being crowned the world's best player at a ceremon...
Bandaríkjaforseti segir að svindlað hafi verið í brasilísku kosningunum Donald Trump sagði talningu atkvæða hafa litið út fyrir að vera „gerspillta“...
Trump segir ummæli Obama um Cheesecake Factory dæma hann sjálfan Bandaríkjaforseti svarar háðsglósum Baracks Obama, forvera síns, með fullyrðin...
Sigvaldi Einarsson, frumkvöðull og áhugamaður um alþjóðamál, veltir því fyrir sér í pólitískri ádeilu hvort staðan í heiminum væri öðruvísi hefði Evró...
Hvaða æfingar myndirðu velja ef þú mættir aðeins gera tíu það sem eftir væri ævinnar? Jeff Cavaliere, maðurinn á bak við ATHLEAN-X, hefur tekið saman ...
Hallgrímskirkja er eitt þekktasta kennileiti borgarinnar og var formlega vígð þann 26. október 1986. Hátíðardagskrá hefur farið fram undanfarna viku í...
„Ég held að það væri óráð að reyna að hætta við,“ sagði Jón Páll Haraldsson, skólastjóri Laugalækjarskóla og varaformaður Skólastjórafélags Íslands, u...
Kristinn Hrafnsson fjölmiðlamaður og upplýsingafulltrúi Wikileaks segist venjulega fara varlega í að hrósa stjórnmálamönnum en í ljósi góðrar reynslu ...
Fyrsta beina flugið á milli Kína og Keflavíkur, með viðkomu í Kaupmannahöfn, var í dag. Sendiherra Kína segir þetta mikla breytingu í samskiptum ríkja...
Kosningarnar snúast að verulegu leyti um Benjamín Netanjahú forsætisráðherra sjálfan. Fréttaskýrendur í Ísrael og annars staðar líta margir svo á að á...
Kosningarnar snúast að verulegu leyti um Benjamín Netanjahú forsætisráðherra sjálfan. Fréttaskýrendur í Ísrael og annars staðar líta margir svo á að á...
Bróðir manns sem féll niður í sprungu sem myndaðist í Grindavík segist þakklátur fyrir að ákveðið hafi verið að ráðast í leit að líki bróður hans. Lei...
Þetta heyrðum við á bænum Gerði þegar við ræddum við þau Björn Borgþór Þorbergsson og Þóreyju Bjarnadóttur fyrir þáttinn Um land allt. Þau eru í hópi ...
Áform dómsmálaráðherra um að sameina lögregluembætti í þrjú mæta harðri mótstöðu á landsbyggðinni. Dómsmálaráðherra segir lítil embætti ekki ná utan u...
Á að segja sannleikann um erfiða fortíð eða á að hlífa tilfinningum ástvina? Það er hægt að lifa eftir mottóinu um sannleikurinn sé sagna bestur en vi...
Pitsur hafa fyrir löngu fest sig í sessi sem einn vinsælasti skyndibiti heims og njóta mikilla vinsælda á Íslandi, hvort sem hún er borðuð á veitingas...
Brynjar Steinn er fæddur árið 1999 og öðlaðist mikla frægð á samfélagsmiðlinum Snapchat á sínum tíma, þar sem notandanafnið hans var einmitt Binni Gle...
Aðstoðarkona Donalds Trump Bandaríkjaforseta og ráðgjafi hans í samskiptum birtu myndband af tólf biskupum í bænastund með forsetanum er þeir sóttu ha...
Kjósendur völdu á milli Serbíu eða mafíu í þingkosningum sem fóru fram í landinu í gær, að sögn kjósanda frá Íslandi. Stúdentahreyfing vann stórsigur ...
Þrír menn fundu poka sem innihéldu fótlegg af manni þegar þeir gengu meðfram árbakka Rínarfljóts í Stein, skammt frá Basel í Sviss, í gær.Lögreglan í ...
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum Þóroddur Bjarnason félagsfræðiprófessor segir útgjöld Loftbrúarinnar aldrei hafa farið yfir...
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar sammæltist um það á fundi sínum á fimmtudag að lýsa yfir fullu trausti til Katrínar Sigurjónsdóttur sveitarstjóra í kjö...
Tveir kaþólskir biskupar hafa beðist afsökunar á fundi sínum með Donald Trump Bandaríkjaforseta. Birt var ljósmynd af þeim að biðja með honum.Breska b...
Koenig lést á heimili sínu í Hollywood í gær, segir í umfjöllun Variety. „Í dag syrgjum við Walter Koenig. Hæfileikar hans, hlýja og ógleymanlegur fl...
Heimili á Íslandi nota um 5% af allri raforku sem hér er framleidd og stóriðjan tæplega 80%. Samkvæmt nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins nota gagnaver...
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum á Íslandi í september. Deildarstjóri segir mikinn meirihluta hafa drepist á Reyðarfirði, vegna marglytta sem her...
Breytingar á svokallaðri Loftbrú, um niðurgreiðslu flugfargjalda fyrir íbúa á landsbyggðinni, eiga að taka gildi 1. janúar. Ingibjörg segir Loftbrúna ...