Norsk yfirvöld hafa komið mótmælum á framfæri til ísraelskra stjórnvalda vegna ofbeldisfullrar meðferðar á aðgerðasinnum. Þeir voru handteknir af Ísraelsher um borð í bátum sem voru á leið til Gaza með hjálpargögn í maí. Norska ríkisútvarpið greinir frá.
Alls voru 430 aðgerðasinnar handteknir, þar af fjórir Norðmenn, og fluttir til Ísraels. Þar voru þeir í varðhaldi í um viku þar sem þeir máttu margir hverjir sæta ofbeldi.
Nokkrir aðgerðasinnar þurftu að leggjast inn á sjúkrahús, þar á meðal Norðmenn. Að minnsta kosti 45 aðgerðasinnar sögðust hafa verið beittir kynferðislegu ofbeldi.