Noregskonungar 2: Síðasti Hákoninn sem ríkti yfir Íslandi

Noregskonungar 2: Síðasti Hákoninn sem ríkti yfir Íslandi

Noregskonungar 2: Síðasti Hákoninn sem ríkti yfir Íslandi

Noregskonungar 2: Síðasti Hákoninn sem ríkti yfir Íslandi

Hér seg­ir áfram hjá Nor­eg­skóng­um í til­efni af því að Há­kon 8. er nú tek­inn við há­sæt­inu hjá frænd­þjóð okk­ar.

Hákon 4. er sagður fyrsti konungur Íslands. Árið 1262 skrifuðu íslenskir höfðingjar undir sáttmála á þingi þar sem þeir játuðust undir norsk yfirráð.

Svo stóð í minni Íslandssögubók í gamla daga.

Fræðimenn hafa að vísu síðan sýnt fram á að málið var kannski ekki alveg svo einfalt. Hvenær skrifað var undir hvaða „gamla sáttmála“ og nákvæmlega hvað hann merkti er örlítið meiri vafa undirorpið en ætla mátti af minni bók.

En látum samt svo vera í þetta sinn: Hákon 4. gamli var fyrsti konungur Íslands.

Nema hvað Hákon lést aðeins ári síðar, 1263 – reyndar ekki nema 59 ára gamall – og þá tók Magnús sonur hans við.

„Hákon ungi“, sonur Hákons, hafði nefnilega dáið á undan hinum gamla föður sínum.

Magnús 6. er kallaður lagabætir og þarf ekki að fjölyrða um ástæður þess. Hann lifði ekki lengi, dó árið 1280, rétt um fertugt.

Þá var 13 ára sonur, Eiríkur að nafni, settur í hásætið. Móðir hans var konungsdóttir frá Danmörku. Eiríkur var oft kallaður „prestahatari“ þar sem hagur kirkjunnar þótti versna allmjög um hans daga, en um þær mundir stóðu oft langvinnar deilur milli kirkju og veraldlegra stjórnvalda.

Háleggur í stað prestahatara

Meðan Eiríkur var kóngur braust út stríð milli Norðmanna og Dana og í júlí 1289 stóð Eiríkur prestahatari í stafni á miklum norskum herskipaflota sem braust inn í Eyrarsund en var að lokum hrakinn frá Kaupmannahöfn.

Þetta mun hafa verið í síðasta sinn sem norskur herskipafloti var kvaddur út í raunverulegan herleiðangur.

Eiríkur gekk að eiga konungsdóttur frá Skotlandi en hafði ekki eignast neina afkomendur með henni er hann lést um þrítugt árið 1299.

Yngri bróðir Eiríks varð þá kóngur í hans stað. Hann hét Hákon og var sá 5. með því nafni. 

Íslendingar kölluðu Hákon hálegg, enda var hann hávaxinn. Þeir neituðu að hylla hann á Alþingi fyrr en konungur samþykkti að lögmenn hér í landi skyldu vera íslenskir. Hákon lét undan og samþykkti líka að leggja af „utanstefnur“ en fram að því hafði norski konungurinn talið sig geta skipað hvaða Íslendingi sem var að koma á sinn fund hvenær sem kóngi hentaði.

Eftirleiðis áttu bara glæpamenn að þurfa að hlýða utanstefnum konungs.

Norðmenn þóttu viðræðuhæfir

Hákon var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var greifadóttir frá Frakklandi.

Það hjónaband var helst til vitnis um að Norðmenn þóttu orðið viðræðuhæfir suður í Evrópu en ekki óskiljanlegir villimenn.

Greifadóttirin dó hins vegar fljótlega en síðari kona Háleggs hét Efemía og var dóttir pólsks hertoga frá Pomeraníu en það er héraðið á mótum Þýskalands og Póllands. Efemía var víðfræg á sínum tíma fyrir ást sína og áhuga á bókmenntum, ekki síst riddarakvæðum og þess háttar.

Hún bar Hákoni eina dóttur sem lifði, sú hét Ingiborg og gekk að eiga sænskan hertoga, bróður Birgis þáverandi Svíakonungs.

Hákon lést tæplega fimmtugur 1319 og þar eð hann átti ekki son var nú dubbaður til kóngs 3ja ára sonur Ingiborgar og sænska hertogans hennar,

Magnús hét hann.

Barnungur konungur

Svo vildi til að sama ár dó Birgir Svíakóngur og sænskir aðalsmenn völdu Magnús bróðurson hans þá einnig til konungs yfir sér.

Magnús 7. varð því barnungur konungur bæði í Noregi og Svíþjóð.

Því fór þó fjarri að ríkið sameinuðust á einhvern hátt. Kóngurinn átti vald sitt undir aðalsmönnum í hvoru ríkinu um sig. Og árið 1343 kom á daginn að norskir aðalsmenn voru alls ekki ánægðir með þetta fyrirkomulag og kröfðust þess að Magnús léti konungdóminn í Noregi af hendi við Hákon, yngri son sinn en hann var þá þriggja ára.

Þeim mun hafa þótt Magnús hafa lítinn áhuga á Noregi, heldur liti hann fyrst og fremst á sig sem Svíakóng.

Sitthvað mun hafa verið til í því og Magnús var til dæmis önnum kafinn við deilur við Dani um Skán, syðsta hluta Svíþjóðar en erjur og stríð þjóðanna um héraðið stóðu öldum saman.

Plágan hlífir Íslandi — í bili

Magnús féllst umyrðalítið á að láta af konungdómi í Noregi en hann var þó ríkisstjóri Norðmanna þar til Hákon sonur hans varð myndugur, sennilega árið 1355. Þá settist Hákon í hásæti Noregs undir nafninu Hákon 6.

Athyglisvert er að Magnús hélt eftir Íslandi, Grænlandi og Færeyjum. Ekki er samt kunnugt um að hann hafi haft sérstakan áhuga á Íslandi, né verið ýkja afskiptasamur um stjórn þess.

Þeir feðgar, Magnús og Hákon, áttu við ýmislegt að stríða hvor í sínu ríki og allra verstur var svarti dauði sem gekk um miðja 14. öld og lagði að velli að minnsta kosti þriðjung íbúa í báðum löndum, en einhverra hluta vegna slapp Ísland við pláguna í það sinn. Hún náði ekki til Íslands fyrr en í byrjun næstu aldar.

Magnús 7. var konungur Íslands allt til 1374 þegar hann lést en þá hafði sannarlega mikið gengið á.

„Höggormur með tungu hórunnar“

Fyrst er frá því að greina að 1335 hafði Magnús gengið að eiga Blanche nokkra furstadóttur frá Namur í Belgíu. Raunar var altalað Magnús væri mest fyrir karla en hann stóð þó sína plikt sem konungur með því að eignast allmörg börn með Blanche og þar á meðal synina Eirík og Hákon. Um Blanche var sagt að hún væri „höggormur með tungu hórunnar, gall drekans í hjarta sér og biturt eitur í æðum“, en hvað var hæft í því verður ekki sagt héðan af.

Þó er vitað að þegar Eiríkur, eldri sonur Magnúsar og Blanche, lagðist banalegu tvítugur að aldri sakaði hann móður sína um að hafa eitrað fyrir sér. Hann hafði þá verið skipaður arftaki Magnúsar sem konungur í Svíþjóð. Enginn veit af hverju Blanche hefði átt að vera að eitra fyrir syni sínum (og tveim kornungum sonarsonum) enda er líklegast að plágan hafi einfaldlega drepið Eirík hinn unga.

Konungur Íslands í 55 ár!

1364 gerðu sænskir aðalsmenn uppreisn gegn Magnúsi konungi og þrátt fyrir liðsinni Hákonar sonar síns í Noregi beið Magnús lægri hlut og var í sex ár í fangelsi aðalsmanna. Þá var hann látinn laus eftir að lausnargjald hafði verið greitt fyrir hann. Magnús var síðan í útlegð í Noregi hjá Hákoni en drukknaði í bátsferð 1374.

Hann hafði þá í orði kveðnu en ekki alltaf í raun verið konungur Íslands í 55 ár.

Nú varð Hákon 6. sonur hans loksins konungur Íslands.

En þá stefndi í miklar breytingar í samskiptum ríkjanna, ekki aðeins Noregs og Íslands heldur allra Norðurlandanna.

Og svo fór að Hákon þessi varð síðasti Hákoninn sem ríkti sem kóngur yfir Íslandi.

#hákoninn #noregskonungar #ríkti #sem #síðasti

Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/27210/noregskonungar-2-sidasti-hakoninn-sem-rikti-yfir-islandi/

📰 Aðrar fréttir

Jón Pétur grunar að ráðuneytið sitji á niðurstöðunum: „Fólki finnst þetta bara vera óþægileg niðurstaða“
📅 03.09.2026 👁️ 0
Jón Pétur grunar að ráðuneytið sitji á niðurstöðunum: „Fólki finnst þetta bara vera óþægileg niðurstaða“
„Ég frétti af því fyrir tilviljun frá norskum kollega að það ætti að birta PISA niðurstöðurnar þar í byrjun september, ég fór að leita fyrir mér og ge...
Vilja Geysi, Brennisteinsfjöll og Arnardalsvirkjun í verndarflokk
📅 03.09.2026 👁️ 0
Vilja Geysi, Brennisteinsfjöll og Arnardalsvirkjun í verndarflokk
Vilja Geysi, Brennisteinsfjöll og Arnardalsvirkjun í verndarflokk Jök­ulsá á Fjöll­um, Geys­is­svæði og Hólmsá eru með­al til­lagna verk­efna­stjórn­a...
Saka­skrá fjölda glæpa­manna ó­vart hreinsuð - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 0
Saka­skrá fjölda glæpa­manna ó­vart hreinsuð - Vísir
Í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra Danmerkur er málið sagt grafalvarlegt. Um sé að ræða upplýsingar um glæpi sem menn hafa verið dæmdir fyr...
Þorir ekki að fullyrða að Icelandair og flugmenn nái að semja á settum tíma
📅 03.09.2026 👁️ 0
Þorir ekki að fullyrða að Icelandair og flugmenn nái að semja á settum tíma
Kjaradeila Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna er snúin og óbreytt. Þetta segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari.Icelandair og FÍA un...
Ung­menni drepin og þorp rifið á Vestur­bakkanum - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 0
Ung­menni drepin og þorp rifið á Vestur­bakkanum - Vísir
BBC hefur eftir þorpsráðinu í al-Mughayyir að hinn nítján ára Omar al-Nassan og sextán ára Khalil Abu Alia hafi verið drepnir þegar þeir reyndu að kom...
Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunar­rými á jarð­hæð - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunar­rými á jarð­hæð - Vísir
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti breytingarnar með fimm atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins og Miðflokksins ge...
Með um­töluð sím­töl og skila­boð á sínu borði - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Með um­töluð sím­töl og skila­boð á sínu borði - Vísir
Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, segir stofnunina ætla að leyfa fleiri ábendingum að berast áður en ákveðið verður hvort og þá hvernig mál...
Kalla eftir á­kvörðun um milljarðaáform í Skála­felli - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Kalla eftir á­kvörðun um milljarðaáform í Skála­felli - Vísir
Þetta kemur fram í fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 19. ágúst sem lögð var fyrir borgarráð í dag. Samstarfsnefndin samþ...
Falkland Islands: Donald Trump hints US would not back UK over Argentina
📅 03.09.2026 👁️ 0
Falkland Islands: Donald Trump hints US would not back UK over Argentina
The US president says the UK was not "there to help me" in his ongoing war with Iran.
„Þetta er ekkert mál” aftur í Smárabíó í tilefni 20 ára afmælis myndarinnar
📅 03.09.2026 👁️ 1
„Þetta er ekkert mál” aftur í Smárabíó í tilefni 20 ára afmælis myndarinnar
Heimildarmyndin um Jón Pál Sigmarsson snýr aftur í bíó – 20 árum eftir að hún sló aðsóknarmet.Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Smárabíó sem fe...
Carla Jeffery látin 33 ára að aldri - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Carla Jeffery látin 33 ára að aldri - Vísir
Umboðsskrifstofa leikkonunnar, Alexander's Talent Management, greindi frá andláti leikkonunnar en hún lést þriðjudaginn 1. september síðastliðinn. Dán...
Öskrandi ný­nemar tolleraðir og busaballið handan við hornið - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Öskrandi ný­nemar tolleraðir og busaballið handan við hornið - Vísir
Nýnemar voru teknir tali um leið og þeir voru tolleraðir. Það fór tvennum sögum af því hvort þeir hefðu verið smeykir eða ekki. Þá var staðan tekin á ...
Hagsmunavörður í Brussel deilir sæng með forsætisráðherra Íslands
📅 03.09.2026 👁️ 1
Hagsmunavörður í Brussel deilir sæng með forsætisráðherra Íslands
Hagsmunavörður í Brussel deilir sæng með forsætisráðherra Íslands Fréttin3. september 2026Aðsend grein, Erlent, Evrópusambandið, Hallur Hallsson, Innl...
E. coli-hópsmit á Mánagarði enn á ákærusviði: Einn með stöðu sakbornings
📅 03.09.2026 👁️ 1
E. coli-hópsmit á Mánagarði enn á ákærusviði: Einn með stöðu sakbornings
Rannsókn á E. coli-hópsmiti sem kom upp á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík í október 2024 er enn til meðferðar á ákærusviði lögreglu. Málið hefur ve...
Hefja síðasta á­fanga ferðarinnar til Merkúrs - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Hefja síðasta á­fanga ferðarinnar til Merkúrs - Vísir
Geimförin eru enn samtengd en gangi allt eftir eiga þau að vera komin á braut um Merkúríus í nóvember og verða svo aðskilin í desember. Fyrst þurfa ge...
„Við höfum einfaldlega ekki haft tíma til að fara lengra“
📅 03.09.2026 👁️ 1
„Við höfum einfaldlega ekki haft tíma til að fara lengra“
Yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra segir að tólf vikna hámarkslengd gæsluvarðhalds yfir sakborningum hafi orðið til þess að lögregla næði ekki ...
Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaða­bætur - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaða­bætur - Vísir
Dægurmálamiðillinn TMZ greindi frá málinu. Samkvæmt dómsskjölum, sem TMZ hefur undir höndunum, þá átti slysið sér stað við strendur Saona-eyju í Dómin...
Loka fyrir um­ferð vegna bilunar í um­ferðar­ljósum - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Loka fyrir um­ferð vegna bilunar í um­ferðar­ljósum - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni og eru umferðarljós á gatnamótunum sögð óvirk. Unnið sé að viðgerð en ekki ljóst hversu langan tíma hú...
Ljúf­sárt að opna loks nýtt og stærra Kvennaathvarf - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Ljúf­sárt að opna loks nýtt og stærra Kvennaathvarf - Vísir
Athvarfið er það fyrsta sem er sérstaklega byggt og hannað með þarfir kvenna og barna í huga. Það hefur verið í undirbúningi um árabil og hafa samtöki...
Tíma­mót hjá Kvenna­at­hvarfinu - Vísir

Fly brain wiring map may hold clues for autism and schizophrenia
📅 03.09.2026 👁️ 1
Fly brain wiring map may hold clues for autism and schizophrenia
Comparing the brains of male and female flies may transform our understanding of how genes shape behaviour, including ours.
Milei Argentínuforseti ávarpar þjóðina í dag vegna Falklandseyja – Nýtt stríð í aðsigi?
📅 03.09.2026 👁️ 1
Milei Argentínuforseti ávarpar þjóðina í dag vegna Falklandseyja – Nýtt stríð í aðsigi?
Javier Milei, forseti Argentínu, mun flytja sjónvarpsávarp í kvöld vegna Falklandseyja. Deilan um eyjarnar hefur verið að hitna að undanförnu og margi...
Sendiherra Bandaríkjanna í Brussel kallaði heilbrigðisráðherra Belgíu lúser
📅 03.09.2026 👁️ 1
Sendiherra Bandaríkjanna í Brussel kallaði heilbrigðisráðherra Belgíu lúser
Bill White, sendiherra Bandaríkjanna í Belgíu, hefur verið harðlega gagnrýndur þar í landi eftir að hann kallaði heilbrigðisráðherrann Frank Vandenbro...
Goethe-stofnunum í Rússlandi lokað
📅 03.09.2026 👁️ 1
Goethe-stofnunum í Rússlandi lokað
Stjórnvöld í Rússlandi ætla að láta loka Goethe-stofnunum í Moskvu, Pétursborg og Yekaterinburg. Sergei Lavrov utanríkisráðherra segir þetta svar við ...
Óljóst hvers vegna sumir El Niño eru stærri en aðrir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Óljóst hvers vegna sumir El Niño eru stærri en aðrir
Útlit er fyrir að veðurfyrirbærið El Niño verði öflugra í ár en nokkru sinni síðan Alþjóðaveðurfræðistofnunin byrjaði að mæla umfang þess fyrir 40 áru...
Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó - Vísir
Dómsmálaráðuneytið hefur birt breytingarnar í Samráðsgátt að beiðni Íslenskrar getspár. Til að vinna fyrsta vinning þarf allar sex aðaltölurnar og rét...
Schools to close early for A66 crash funeral
📅 03.09.2026 👁️ 1
Schools to close early for A66 crash funeral
The funeral of one of five young men killed in the crash with a police car is due to take place.
Children help rescued loggerhead turtle return to the sea in Fuerteventura
📅 03.09.2026 👁️ 1
Children help rescued loggerhead turtle return to the sea in Fuerteventura
More than 40 children shared a special moment in Fuerteventura as they watched a rescued loggerhead turtle return to the Atlantic after recovering fro...
Nýnemar boðnir velkomnir í MR
📅 03.09.2026 👁️ 1
Nýnemar boðnir velkomnir í MR
270 nýnemar í Menntaskólanum í Reykjavík tóku á flug í dag þegar elstu nemendur skólans buðu þá velkomna á hefðbundinn hátt með svokallaðri tolleringu...
Nine arrested over suspected illegal fuel operation in Gran Canaria
📅 03.09.2026 👁️ 1
Nine arrested over suspected illegal fuel operation in Gran Canaria
Nine people have been arrested in Gran Canaria after police uncovered a suspected illegal operation supplying large quantities of fuel to a boat off t...
Sér­stakt við­bragð á Ljósanótt vegna ung­linga­drykkju - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Sér­stakt við­bragð á Ljósanótt vegna ung­linga­drykkju - Vísir
Ljósanótt var sett í Reykjanesbæ í morgun þegar grunn- og leikskólabörn komu saman í Skrúðgarðinum og sungu Ljósanæturlagið. „Þetta eru tugir sýninga ...
Joe Rogan segir konum til syndanna sem styðja barnamorðingjann Lindsay Clancy
📅 03.09.2026 👁️ 1
Joe Rogan segir konum til syndanna sem styðja barnamorðingjann Lindsay Clancy
Joe Rogan segir konum til syndanna sem styðja barnamorðingjann Lindsay Clancy Fréttin3. september 2026InnlendarLeave a Comment Í nýlegum þætti af þætt...
Þetta er framlag Íslands til Óskarsverðlauna 2027
📅 03.09.2026 👁️ 1
Þetta er framlag Íslands til Óskarsverðlauna 2027
Heimildamyndin Jörðin undir fótum okkar, verður fram­lag Íslands til Óskar­sverðlaunna 2027. Mynd­in var val­in af dóm­nefnd Íslensku kvik­mynda- og s...
Orðið á götunni: Borgarstjóri þarf að gæta sín
📅 03.09.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Borgarstjóri þarf að gæta sín
Orðið á götunni er að hveitibrauðsdagar nýs meirihluta og nýs borgarstjóra séu að baki. Skiptar skoðanir eru á því hvernig fyrstu skrefin hafi tekist ...
Vilhjálmur lukkulegur með tíðindin- „Þetta er nákvæmlega það hugarfar sem við þurfum núna“
📅 03.09.2026 👁️ 1
Vilhjálmur lukkulegur með tíðindin- „Þetta er nákvæmlega það hugarfar sem við þurfum núna“
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness, segir IKEA hafa rétta hugarfarið en sænski húsgagnaframleiðandinn ...
Fylltu Egilshöllina á for­sýningu Hvar er draumurinn? - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Fylltu Egilshöllina á for­sýningu Hvar er draumurinn? - Vísir
Höfundur, leikstjóri og framleiðandi kvikmyndarinnar er Höskuldur Þór Jónsson og er hún frumraun hans á hvíta tjaldinu. Hann hefur áður starfað sem le...
Rauði hálfmáninn vill að árás Bandaríkjanna á brúðkaup verði rannsökuð
📅 03.09.2026 👁️ 1
Rauði hálfmáninn vill að árás Bandaríkjanna á brúðkaup verði rannsökuð
Rauði hálfmáninn í Íran hvetur Alþjóðlega sakamáladómstólinn til að rannsaka mannskæða árás Bandaríkjahers á brúðkaupsveislu á þriðjudag. Herinn drap ...
Rýmka reglur um fjölda bílastæða við nýbyggingar
📅 03.09.2026 👁️ 1
Rýmka reglur um fjölda bílastæða við nýbyggingar
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks, Viðreisnar og Miðflokksins í umhverfis- og skipulagsráði samþykktu í gær að afnema hámark á fjölda bíla...
Há­mark bílastæða við ný­byggingar falli niður - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Há­mark bílastæða við ný­byggingar falli niður - Vísir
Tillagan var samþykkt með fimm atkvæðum Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins og Miðflokksins gegn tveimur atkvæðum Samfylkingarinnar....
Ó­virk um­ferðar­ljós valda töfum - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Ó­virk um­ferðar­ljós valda töfum - Vísir
Í fréttatilkynningu þess efnis frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að umferðartafir séu viðbúnar vegna þessa og ökumenn séu minntir á að fylgja...
Dánartíðni þeirra sem eru tvíbólusettir er fimm sinnum hærri en hjá þeim sem eru óbólusettir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Dánartíðni þeirra sem eru tvíbólusettir er fimm sinnum hærri en hjá þeim sem eru óbólusettir
Dánartíðni þeirra sem eru tvíbólusettir er fimm sinnum hærri en hjá þeim sem eru óbólusettir Fréttin3. september 2026Bólusetningar, InnlentLeave a Com...
Þurfa að loka hluta gatnamóta vegna bilaðra ljósa
📅 03.09.2026 👁️ 1
Þurfa að loka hluta gatnamóta vegna bilaðra ljósa
Umferðarljósin á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Reykjanesbrautar og Nýbýlavegs, Dalvegar og Skemmuvegar eru óvirk.Þetta veldur nokkrum vandræðum því ...
Funda vegna banaslyss við Stuðlagil
📅 03.09.2026 👁️ 1
Funda vegna banaslyss við Stuðlagil
Ferðamálastofa hefur boðað viðbragðsaðila, landeigendur við Stuðlagil og fulltrúa frá ferðaþjónustu og heilbrigðisstofnuninni á Austurlandi á fund veg...
Households warned gas price spike could pile fresh pressure on energy bills
📅 03.09.2026 👁️ 1
Households warned gas price spike could pile fresh pressure on energy bills
Experts warn low storage levels could push up gas prices further, leaving households with higher bills.
Jörðin undir fótum okkar fram­lag Ís­lands til Óskars­verð­launa - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Jörðin undir fótum okkar fram­lag Ís­lands til Óskars­verð­launa - Vísir
Jörðin undir fótum okkar er þriðja kvikmynd Yrsu Roca Fannberg og fjallar um vistmenn á hjúkrunarheimilinu Grund, þar sem Yrsa hefur sjálf unnið um ár...
Kemi Badenoch accuses Andy Burnham of kicking defence spending into the long grass
📅 03.09.2026 👁️ 1
Kemi Badenoch accuses Andy Burnham of kicking defence spending into the long grass
Andy Burnham has committed to reaching the Nato target of 3.5% spending by 2035, but not 3% by 2030.
Skuld fyrri eig­anda stöðvi ekki skoðun bíls - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Skuld fyrri eig­anda stöðvi ekki skoðun bíls - Vísir
Áformin voru birt í Samráðsgátt í gær. Lögin tóku gildi um áramótin og ná til allra ökutækja óháð orkugjafa. Gert er ráð fyrir að breytingarnar taki g...
Pútín segir að ógnir við borgaraleg skip og flugvélar séu „ríkishryðjuverk“
📅 03.09.2026 👁️ 1
Pútín segir að ógnir við borgaraleg skip og flugvélar séu „ríkishryðjuverk“
Pútín segir að ógnir við borgaraleg skip og flugvélar séu „ríkishryðjuverk“ Fréttin3. september 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Árásir og sk...
Skilaboðin frá Íslandi í kastljósi erlendra fjölmiðla
📅 03.09.2026 👁️ 1
Skilaboðin frá Íslandi í kastljósi erlendra fjölmiðla
Erlendir fjölmiðlar hafa fjallað mikið um niðurstöðuna úr þjóðaratkvæðgreiðslunni á Íslandi um aðildarviðæður við Evrópusambandið síðustu daga. Líkleg...
Ásdís Rán opnar TalentBook: „Við erum bókstaflega að leita að alls konar fólki“
📅 03.09.2026 👁️ 1
Ásdís Rán opnar TalentBook: „Við erum bókstaflega að leita að alls konar fólki“
Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir hefur dvalið erlendis í sumar þar sem hún hefur unnið að endurkomu TalentBook, verkefnis sem hún setti fyrst á l...