Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs segir að Norðmenn ættu að fylgjast vel með þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi í lok ágúst um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hann býst þó ekki við að niðurstaðan hvor sem hún verður muni hafa afgerandi áhrif á álit norsku þjóðarinnar á því hvað gera eigi varðandi tengsl Noregs og ríkja innan ESB í framtíðinni. Sagt er frá þessum ummælum í fjölmiðlinum Euractiv en Støre lét þessi orð falla fyrr í dag eftir fund með Ursula von der Leyen forseta framkvæmdastjórnar ESB.
Norðmenn eigi að fylgjast vel með þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi