Lögregla í Suður-Afríku fann í morgun lík konu sem virðist hafa verið myrt, austur af Jóhannesarborg. Það er níunda konan sem finnst látin á aðeins tveimur mánuðum.
Kempton-garði, þar sem líkið fannst, var lokað og rannsókn á vettvangi stendur þar yfir.
„Við getum ekki haldið áfram að finna lík,“ sagði varalögreglustjóri við mergð blaðamanna. Lögregla býður þeim 400 þúsund rönd, andvirði tæplega þriggja milljóna króna, sem láta í té upplýsingar sem leiða til handtöku þess sem ábyrgð ber. Stjórnmálaflokkurinn Lýðræðissamstaðan, Democratic Alliance, býður enn hærri upphæð.
Til rannsóknar er hvort morðið á konunni sem fannst í morgun tengist þeim fyrri. Ef tenging finnst gæti raðmorðingi leikið lausum hala.
Kynbundið ofbeldi er vandamál í Suður-Afríku og samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna verður ein af hverjum þremur suðurafrískum konum fyrir líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi á lífsleiðinni.
Elizabeth Moselakgomo, 38 ára, er ein þeirra sem fundist hafa síðastliðna tvo mánuði. Hún skildi átta ára dóttur sína eftir heima og fór út að hlaupa en kom aldrei aftur. Hún fannst látin fyrir aftan hótel í síðustu viku.
Hvarf hennar vakti mikla athygli og beindi sviðsljósinu í auknum mæli að öðrum konum sem fundist höfðu látnar nýlega.
Fyrsta fórnarlambið, 37 ára, fannst nakið og bundið um miðjan júlí. Lögregla handtók erlendan mann tveimur dögum síðar.
Um miðjan ágúst fannst önnur kona af þeim níu sem fundist hafa síðustu vikur. Hún var 32 ára og hafði verið rifin út fötunum. Þriðja konan fannst 10. september. Hún var nakin og hafði verið látin í þónokkurn tíma.