Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Mikill erill er sagður hafa verið hjá embættinu síðastliðinn sólarhring en fjöldi fólks er á Akureyri þar sem bæjarhátíðin Ein með öllu fer fram um verslunarmannahelgina.
Ein líkamsárás var tilkynnt og komu upp átta mál vegna ölvunar eða vímuástands. Tveir gistu í fangageymslu.
Fimm mál komu upp þar sem afskipti voru höfð af börnum og var barnavernd og foreldrar upplýstir.
Tíu umferðarlagabrot eru skráð hjá embættinu síðastliðinn sólarhing en ekkert tilfelli kom upp þar sem grunur var um akstur undir áhrifum vímugjafa.
Engin mál eru skráð hjá lögreglunni á Siglufirði þar sem bæjarhátíðin Síldarævintýrið fer fram. Alls voru skráð 83 mál hjá lögreglu síðastliðinn sólarhring.
Fréttin er í vinnslu.