Óskarsverðlaunaleikkonan Nicole Kidman heimsótti Ísland á dögunum og virðist hafa hrifist bæði af landi og þjóð ef marka má færslu hennar á Instagram í gærkvöldi.„Dásamlegt land, ferðalag lífs míns,“ sagði leikkonan. Hún þakkaði jafnframt starfsfólki lúxussiglingafyrirtækisins The Ritz-Carlton Yacht Collection fyrir góðar móttökur á fjölskyldu sinni og gestum.„Við elskum þig Ísland,“ bætti hún svo við.
Nicole Kidman birtir myndir frá Íslandsferðinni – „Við elskum þig Ísland!“