Ekkert verður úr fyrirhuguðu áætlunarflugi fyrirtækisins Niceair frá Akureyrarflugvelli á næstu mánuðum. Framkvæmdastjóri segir ákvörðunina erfiða en óvissa í alþjóðastjórnmálum og hækkandi eldsneytisverð hafi sett strik í reikninginn.
Um þetta er fjallað á akureyri.net.
It's nice to comeback - það er næs að snúa aftur. Þetta var yfirskrift blaðamannafundar í Flugsafni Akureyrar um miðjan desember. Þar kynnti þýskur athafnamaður áform sín um millilandaflug frá Norðurlandi og endurreisn flugfélagsins Niceair.
Upphaflega flaug Niceair milli Akureyrar annars vegar og Danmerkur, Bretlands og Spánar hins vegar en stöðvaði skyndilega starfsemi og sagði erlendan samstarfsaðila sinn, fyrirtækið Hi-Fly, hafa stundað óeðlilega viðskiptahætti sem gerði þeim ómögulegt að halda rekstri áfram. Niceair var tekið til gjaldþrotaskipta nokkru síðar.
Seint á síðasta ári sagðist nýr framkvæmdastjóri, Martin Michael, hafa tröllatrú á vörumerkinu og vildi fljúga tvisvar í viku milli Akureyrar og Danmerkur undir merkjum Niceair. Niceair tveir komma núll stefndi á hægan vöxt og fleiri áfangastaðir myndu bætast við ef vel gengi að fljúga til Kaupmannahafnar.
Hann reyndist þó ekki hafa byr undir báða vængi því jómfrúarflugferðinni í febrúar var aflýst vegna dræmrar sölu. Þá sögðu forsvarsmenn að meiri tíma þyrfti í undirbúning og óstöðugt ástand í Mið-Austurlöndum gerði flugrekstur erfiðan. Þá var vonast til að Niceair hefði sig til flugs með haustinu, en í tilkynningu sem akureyri.net fjallaði um fyrr í dag er ljóst að það takist ekki í sumar og ekki heldur næsta vetur.
Þess í stað hyggst fyrirtækið fljúga um meginland Evrópu á komandi vetri, þar sem rekstrarumhverfið að þeirra sögn hentar fyrirtækinu betur.