Segja má að það logi netheimum eftir að íslenski fáninn var málaður yfir hinseginfánann við tröppur Grafarvogskirkju í nótt. RÚV hefur eftir séra Örnu Ýrr Sigurðardóttur að þetta hafi ekki verið gert á vegum kirkjunnar og á næstu dögum mun kirkjan safna saman fólki til að mála hinseginfánann aftur á tröppurnar.
Netheimar loga vegna fánans við Grafarvogskirkju: „Snýst augljóslega um fordóma og ekkert annað“