Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku - Vísir

Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku - Vísir

Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku - Vísir

Aðalmeðferðin hófst upp úr klukkan níu í morgun. Ákæran er í 68 liðum og er reiknað með að þessi fyrsti dagur fari í að spyrja út í hvern einasta lið hennar. Ákærunni er skipt í nokkra hluta en Íris Helga er ásökuð um umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu sambýliskonunnar.

Skýrslutakan stendur enn yfir en gert var hlé rétt eftir klukkan ellefu.

Fyrsti hlutinn varðar einn karlmannanna, barn hans, sambýliskonu og konu sambýliskonunnar. Írisi er meðal annars gefið að sök að hafa farið á heimili mannsins með krukku og sagt að í henni ætti að vera fóstur sem hún missti. Fyrir dómi segir Íris Helga að hún hafi farið í þungunarrof en neitaði alfarið að hafa farið með krukku á heimili mannsins.

„Ég fór í þungunarrof og svona sögur býr enginn til nema karlmaður. Það vita allir að þú ferð ekki heim með fóstur í krukku,“ sagði Íris Helga.

„Mér finnst þetta mjög skrýtið, ég las að ég hefði átt að vera að geyma þetta inni í ísskáp. Þetta er mjög furðuleg saga eins og ég segi.“

Hafi brugðist við áreiti mannsins

Hún hafi vissulega komið heim til mannsins en hann hafi verið að áreita dóttur hennar með því að gefa henni blóm og nammi. Það hafi ekki fallið í geðið hjá Írisi, sem ítrekað sagði að hann hefði verið óviðeigandi við dóttur sína. Hún hefði því farið á heimili mannsins til að segja honum að láta af hegðun sinni. 

Hún gekkst við því að hafa misst blómavasa viljandi fyrir utan heimili mannsins sem hann átti að hafa gefið Írisi og dóttur hennar. Íris sagðist hafa snöggreiðst og farið á heimili hans til að skila vasanum. 

„Af því að hann hafði verið að áreita dóttur mína sem var tólf ára og gefa henni óviðeigandi gjafir. Mér fannst það ekki passa. Hann var búinn að vera að koma heim til mín óboðinn, heim til mömmu að leita að okkur. Hann var að leita að okkur, áreita okkur.“

Íris játaði því einnig að hafa farið að heimili mannsins, snöggreiðst og sparkað í bílinn hans. Það hafi einnig verið þar sem hann hafi haft afskipti af dóttur hennar. 

Ljót skilaboð

Þá var Íris Helga einnig spurð út í fjölda aðganga á samfélagsmiðlum og skilaboð sem henni er gefið að sök að hafa sent á manninn, sambýliskonuna og fjölskyldumeðlimi þeirra. 

Hún neitaði því alfarið að hafa sent skilaboð á brotaþola málsins en henni er gefið að sök að hafa kallað manninn nauðgara og sambýliskonu hans „piggy“ eða „fat piggy“. Þá ítrekaði Íris Helga að það væri langur tími liðinn frá því að atburðirnir ættu að hafa átt sér stað.

„Ég get ekki útskýrt þetta,“ sagði hún ítrekað.

Saksóknari taldi upp fjölda aðganga sem hafa hin ýmsu nöfn sem tengjast brotaþolum, meðal annars í þeirra nafni.

Íris Helga tók fram að hún hefði sjálf ítrekað fengið skilaboð frá sömu reikningum og henni er gefið að sök að hafa búið til. 

„Ég var líka að fá fullt af skilaboðum, ég er búin að segja það margoft. Þetta voru mjög ljót skilaboð.“

Spurningar sækjanda voru margar og endurteknar vegna fjölda ákæruliða sem er um margt sambærilegir. Svör Írisar voru oft á svipaðan veg.

„Ég er búin að vera með bullandi áfallastreituröskun í fimm ár. Ég bara man það ekki. Manst þú hvað þú keyptir í búðinni í gær, nákvæmlega?“ spurði hún saksóknara en dómari bað hana um að svara einungis spurningunum.

Þegar Helga Vala Helgadóttir, verjandi Írisar spurði hana hvaða samfélagsmiðlareikninga hún notaði sagðist hún nota Facebook afar lítið og ekki kunna á TikTok. Þá noti hún Snapchat og Whatsapp af og til.

Íris neitaði einnig að hafa stofnað aðgang í nafni mannsins á stefnumótaforritinu Tinder, sett mynd af honum og sent staðfestingarkóða á símanúmer hans. Sömuleiðis neitaði hún að hafa stofnað sams konar aðgang fyrir sambýliskonuna.

Grínaðist með stól í andlitið

Í einum ákæruliðnum var Íris Helga sögð hafa rætt við þrjá karlmenn og beðið þá um að fara og beita manninn ofbeldi. Hún gekkst við því að hafa rætt það en öll umræðan hafi verið grín.

„Ég bað aldrei neinn um að fara að berja einhvern,“ sagði hún.

„Ég sagði að fyrri samskipti væru alveg grín og ég sagði örugglega „hann á skilið að fá stól í andlitið“ en það var grín.“

Íris Helga játaði því að hafa verið reið út í manninn en aldrei svo að hún myndi láta ganga í skrokk á honum. Hún þekkti vel til tveggja þeirra en þekkti minna til hins þriðja.

Hefðu allir tekið eftir henni

Íris neitaði einnig að hafa búið til og dreift miðum um Reykjanesbæ þar sem varað var við manni sem væri að áreita ungar konur og væri með mikið af barnaníðsefni. 

„Gott að fá að sjá það tveimur árum seinna,“ sagði Íris þegar henni var sýnd mynd af miðunum.

Hún hafi aldrei séð umræddan miða og sagði að í svo litlu samfélagi líkt og í Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ myndu allir taka eftir því ef hún væri að labba með slíka miða í hús. Íris sagðist hafa alist upp í Garði í Suðurnesjabæ og því myndu allir taka eftir henni ef hún hefði gert slíkt.

Íris Helga sagði að maðurinn sjálfur hefði getað dreift miðanum og sakað hana um það. Aðspurð hvort það væri ekki undarleg leið fyrir manninn til að hefna sín á henni með því að saka sjálfan sig um barnaníð tók hún ekki undir það.

„Miðað við allt þetta mál þá nei, hugsa ég ekki.“

Hundapössun meðan kærustunni væri sinnt

Íris neitaði einnig sök um að hafa komið upp miða þar sem maðurinn var sagður auglýsa eftir börnum til að passa hundinn sinn á meðan hann sinnti kærustu sinni. Símanúmer sambýliskonunnar var á miðanum. 

Íris Helga sagðist sjálf ekki hafa séð miðann og að enginn sem hún þekkti hefði heldur séð hann. Þá sást í gögnum sem varpað var upp á skjá í dómsal að maðurinn hafði fengið skilaboð um að miðinn hefði sést í Bónus. Engar upptökur úr Bónus liggja fyrir í málsgögnum.

Að lokum varr spurt út í miða þar sem sambýliskonan var sögð auglýsa ódýrt nudd, konan væri einskis virði og góð í að veita kynferðislegt nudd. Íris Helga sagði þær hafa verið góðar vinkonur og því engin ástæða til að búa til og dreifa slíkum miðum.

„Þetta er bara mynd af miða, hvar er mynd af honum uppi?“ spurði Íris þegar henni var sýnd mynd af miðanum.

Sjálf verið skráð á námskeið

Hún neitaði því einnig að hafa skráð manninn og sambýliskonuna á íslenskunámskeið heldur hafi því verið snúið við.

„Þarna er búið að snúa þessu við þar sem ég var ítrekað skráð á enskunámskeið,“ segir Íris.

Maðurinn var skráður á íslenskunámskeiðið með netfangi sem segir í málsgögnunum að hafi verið búið til í tölvu Írisar. Þegar hún var spurð út í tölvuna ítrekaði hún að margir hefðu aðgang að henni og hún kynni ekki sjálf að búa til nýja aðganga á Gmail. 

Líkt og kom fram stendur skýrslutakan enn yfir og er gert ráð fyrir því að hún taki allan daginn. Alls hafa sex dagar verið teknir frá fyrir aðalmeðferðina.

#fóstur #hafa #með #mætt #neitar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262957019d/neitar-ad-hafa-maett-med-fostur-i-krukku

📰 Aðrar fréttir

Spjallið með Frosta Logasyni | Leon Hill – ÍSLAND VERÐUR EINS OG SVÍÞJÓÐ!
📅 09.11.2026 👁️ 1
Spjallið með Frosta Logasyni | Leon Hill – ÍSLAND VERÐUR EINS OG SVÍÞJÓÐ!
Spjallið með Frosta LogasyniÁstralski áhrifavaldurinn Leon Hill hefur vakið gríðarlega athygli á samfélagsmiðlum fyrir harða og umdeilda gagnrýni sína...
Ók með fíkniefni, peninga og hníf – Grunaður um fjölda brota
📅 09.11.2026 👁️ 1
Ók með fíkniefni, peninga og hníf – Grunaður um fjölda brota
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt en alls voru 35 mál skráð í kerfi hennar frá klukkan 17 í gær til klukkan ...
Hetjudáð lögreglumanns í Kraká náðist á myndband – Gafst ekki upp þrátt fyrir skotsár
📅 09.11.2026 👁️ 1
Hetjudáð lögreglumanns í Kraká náðist á myndband – Gafst ekki upp þrátt fyrir skotsár
Nýtt myndskeið hefur verið birt af átökum tveggja lögreglumanna við vopnaðan árásarmann í borginni Kraká í Póllandi á laugardag. Á myndskeiðinu sést m...
Trump says he was 'kidding' about Dana White press secretary offer
📅 09.11.2026 👁️ 1
Trump says he was 'kidding' about Dana White press secretary offer
The president told the Ultimate Fighting Championship boss to "please take the job" in a Truth Social post on Saturday.
Kína neitar að hafa njósnað um forstjóra Nvidia
📅 09.11.2026 👁️ 1
Kína neitar að hafa njósnað um forstjóra Nvidia
Kína neitar að hafa njósnað um forstjóra bandaríska örgjörvaframleiðandans Nvidia. „Saga um svokallaðan kínverskan njósnara er órökréttur óhróður og r...
Trump segir „afar ólíklegt“ að stríðið við Íran hefjist á ný
📅 09.11.2026 👁️ 1
Trump segir „afar ólíklegt“ að stríðið við Íran hefjist á ný
Trump segir „afar ólíklegt“ að stríðið við Íran hefjist á ný Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, fundar í dag með for­sæt­is­ráð­herra Katar, sem ...
Fátt breyst á ári frá löggildingu samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks
📅 09.11.2026 👁️ 1
Fátt breyst á ári frá löggildingu samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks
Lítið hefur breyst síðan Alþingi lögfesti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks fyrir ári síðan að mati ÖBÍ réttindasamtaka. Samninguri...
Engin tegund af skvísum eða fingramat upp­fylli við­mið - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Engin tegund af skvísum eða fingramat upp­fylli við­mið - Vísir
Birna Þórisdóttir, dósent við Matvæla- og næringarfræðideild við Heilbrigðisvísindasvið HÍ, segir viðmiðin ansi ströng. Algengast sé að vörur falli á ...
Árásarmaðurinn í Kraká er látinn
📅 09.11.2026 👁️ 1
Árásarmaðurinn í Kraká er látinn
Maður sem skaut sex manns til bana og særði sextán í Kraká í Póllandi um helgina lést í morgun. Hann er 24 ára Pólverji og særðist lífshættulega eftir...
Leiðréttir sögusagnir um hversu mikla peninga hún græddi á Two and a Half Men
📅 09.11.2026 👁️ 1
Leiðréttir sögusagnir um hversu mikla peninga hún græddi á Two and a Half Men
Nýsjálenska leikkonan Melanie Lynskey vill leiðrétta sögusagnir um að hún hafi þénað 200.000 dollara (tæpar 25 milljónir króna) á þátt af Two and a Ha...
Leon Hill vill banna íslam á Vesturlöndum: „Ísland verður eins og Svíþjóð mjög fljótlega“
📅 09.11.2026 👁️ 1
Leon Hill vill banna íslam á Vesturlöndum: „Ísland verður eins og Svíþjóð mjög fljótlega“
Ástralski áhrifavaldurinn Leon Hill, sem vakið hefur mikla athygli fyrir harða gagnrýni sína á innflytjendastefnu Evrópuríkja og íslam, segir að banna...
Viður­kennir að „of harka­leg“ stefna hafi valdið skaða - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Viður­kennir að „of harka­leg“ stefna hafi valdið skaða - Vísir
Forsetinn hefur í framhaldinu boðist til að gera samning við Demókrata um innflytjendamál og sagðist vera opinn fyrir samkomulagi um að leyfa einhverj...
Heimskautarefurinn í fyrsta sinn á íslenskum válista
📅 09.11.2026 👁️ 2
Heimskautarefurinn í fyrsta sinn á íslenskum válista
Heimskautarefurinn í fyrsta sinn á íslenskum válista Heim­skauta­ref­ur­inn verður settur á válista spen­dýra á Íslandi í fyrsta sinn í vetur. Fjörutí...
Monday’s weather improves across the Canary Islands after Storm Bruna
📅 09.11.2026 👁️ 2
Monday’s weather improves across the Canary Islands after Storm Bruna
The Canary Islands can expect a quieter day of weather today, Monday 9th November, following the passage of Storm Bruna over the weekend.There will st...
Stuldur úr spilakassa og sána brann til kaldra kola
📅 09.11.2026 👁️ 1
Stuldur úr spilakassa og sána brann til kaldra kola
Lögregla handtók mann sem var að stela vinningum úr spilakassa á bar á höfuðborgarsvæðinu í kvöld eða nótt. Þegar lögregla hafði afskipti af honum fra...
Víða hálka en hæglyndis veður í dag - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Víða hálka en hæglyndis veður í dag - Vísir
Það á svo að stytta upp víða um hádegi og kólna. Það verður bjart með köflum, en áfram dálítil él á suðaustan- og austanverðu landinu. Í hugleiðingum ...
El Niño pushes world towards record heat as COP31 opens
📅 09.11.2026 👁️ 2
El Niño pushes world towards record heat as COP31 opens
Scientists are predictng this could be the hottest year on record as the COP31 climate summit opens.
„Maðurinn minn bara hvarf í sex klukkustundir“
📅 09.11.2026 👁️ 1
„Maðurinn minn bara hvarf í sex klukkustundir“
Íris Eik Ólafsdóttir er réttarfélagsráðgjafi, fjölskyldufræðingur og framkvæmdastjóri Samskiptamiðstöðvarinnar í Skeifunni. Hún og hennar fjölskyldume...
Woman found dead in car at bottom of a cliff in Fuerteventura
📅 09.11.2026 👁️ 1
Woman found dead in car at bottom of a cliff in Fuerteventura
A 40-year-old woman has been found dead inside a car that had gone over a cliff onto rocks below, near El Cotillo in the north of Fuerteventura.The ve...
Ók undir á­hrifum réttinda­laus og á reynslu­lausn - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Ók undir á­hrifum réttinda­laus og á reynslu­lausn - Vísir
Maðurinn hafi verið verulega ölvaður og ekki getað gert grein fyrir sér. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu. Fram kemur í dagbók að fjórir...
Jensen Huang: What we know about Nvidia CEO’s affair
📅 09.11.2026 👁️ 1
Jensen Huang: What we know about Nvidia CEO’s affair
Adoration for the US tech giant’s CEO Jensen Huang has been labelled “Jensanity”, but can his reputation survive the news of his affair?
Dálítil él og víða hált
📅 09.11.2026 👁️ 1
Dálítil él og víða hált
Búast má við hæglætisveðri í dag. Norðan stinningsgola eða kaldi. Dálítil él eða skúrir en bjartviðri á sunnan- og vestanverðu landinu. Hiti um og yfi...
Þetta þrennt hefði ég viljað vita tví­tug - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Þetta þrennt hefði ég viljað vita tví­tug - Vísir
„Ævintýrin, fólkið sem þú hittir og hlutirnir sem þú þorir að prófa eiga eftir að móta þig miklu meira en fyrirfram ákveðið plan,“ segir Hulda Bjarnad...
Hulda Bjarna: Þetta þrennt hefði ég viljað vita tví­tug - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Hulda Bjarna: Þetta þrennt hefði ég viljað vita tví­tug - Vísir
„Ævintýrin, fólkið sem þú hittir og hlutirnir sem þú þorir að prófa eiga eftir að móta þig miklu meira en fyrirfram ákveðið plan,“ segir Hulda Bjarnad...
Stjörnulífið: Patti leitar að sykurpabba - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Stjörnulífið: Patti leitar að sykurpabba - Vísir
Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni. Allir og amma þeirra í Miami Patrekur Jaime skín skært í Miami en hann...
Einn fannst látinn þegar lögregla fann hóp ólöglegra innflytjenda í íbúð í Tallinn
📅 09.11.2026 👁️ 1
Einn fannst látinn þegar lögregla fann hóp ólöglegra innflytjenda í íbúð í Tallinn
Pakistani á þrítugsaldri fannst látinn í íbúð í Tallinn, höfuðborg Eistlands, á laugardaginn. Átta einstaklingar sem höfðu komið til Eistlands með ólö...
Það sem kom í ljós í viðskiptum Ólafs í Samskipum
📅 09.11.2026 👁️ 1
Það sem kom í ljós í viðskiptum Ólafs í Samskipum
Salan á skipafyrirtækinu Samskipum til spænsks fyrirtækis vakti mikla athygli fyrir skömmu. Með þessari sölu lýkur rúmlega 30 ára eignarhaldi Ólafs Ól...
Jafnréttisskólinn býður kynfræðsluspil á 8.000 krónur – ætlað 13 ára og eldri
📅 09.11.2026 👁️ 1
Jafnréttisskólinn býður kynfræðsluspil á 8.000 krónur – ætlað 13 ára og eldri
Jafnréttisskóli Reykjavíkur hefur kynnt nýtt kynfræðsluborðspil, Spíral, fyrir ungmenni frá 13 ára aldri. Sveitarfélögum og stofnunum er boðið að forp...
Reyndu að kaupa kjarnorkusprengju í Moskvu – Ótrúleg saga úr undirheimum Rússlands
📅 09.11.2026 👁️ 1
Reyndu að kaupa kjarnorkusprengju í Moskvu – Ótrúleg saga úr undirheimum Rússlands
Þrír rússneskir blaðamenn lögðu upp í stórhættulegan leiðangur um undirheima Moskvu árið 1993 með það að markmiði að komast að því hvort raunverulega ...
Eldur logar í olíuhreinsunarstöð í Kirishi
📅 09.11.2026 👁️ 1
Eldur logar í olíuhreinsunarstöð í Kirishi
Úkraínski herinn gerði drónaárásir á næststærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Kirishi í Leningrad-héraði í nótt. Mikil sprenging varð í olíuhreinsunarst...
STORM BRUNA: Weather warnings are downgraded across the Canary Islands
📅 09.11.2026 👁️ 1
STORM BRUNA: Weather warnings are downgraded across the Canary Islands
The Canary Islands Government has downgraded its rain alert following the passage of Storm Bruna, after the weather front reached the islands weaker a...
Hált á Suður­landi - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Hált á Suður­landi - Vísir
Í tilkynningu frá Vegagerðinni í gær sagði að í morgunsárið mætti búast við talsverðri hálku víða á vegum landsins, einkum á norðanverðu- og suðvestan...
Two people treated for smoke inhalation after house fire in Corralejo
📅 09.11.2026 👁️ 1
Two people treated for smoke inhalation after house fire in Corralejo
Two people needed medical treatment after a fire broke out in the kitchen of a property on Calle Isaac Peral in Corralejo yesterday afternoon, Sunday ...
Á­rásar­maðurinn í Kraká er látinn - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Á­rásar­maðurinn í Kraká er látinn - Vísir
Tveggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í Póllandi vegna árásar á óbreytta borgara á fjölförnu markaðstorgi í borginni Kraká um helgina, þar sem...
Krakow shooting suspect has died in hospital, police say
📅 09.11.2026 👁️ 1
Krakow shooting suspect has died in hospital, police say
At least six people were killed in the shooting, and three bodies of the suspect's family members were found at their home.
Pirraðir á pedófílum út um allar Fær­eyjar - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 2
Pirraðir á pedófílum út um allar Fær­eyjar - Vísir
Færeyska sveitin Tunghoyrt var á meðal tuga hljómsveita allt frá Japan til Ástralíu sem tróðu upp á hátíðinni í ár. Tunghoyrt spilaði í Iðnó á færeysk...
Inside the French drug gangs recruiting children to kill
📅 09.11.2026 👁️ 2
Inside the French drug gangs recruiting children to kill
The BBC enters Marseille's dangerous underworld, where young people are trapped, brutalised and exploited.
14 fórust í eldsvoða í fjölbýlishúsi
📅 09.11.2026 👁️ 1
14 fórust í eldsvoða í fjölbýlishúsi
Minnst 14 fórust í eldsvoða í fjölbýlishúsi í Taiyuan í Norður-Kína í gær. 24 voru auk þess fluttir til aðhlynningar á spítala.Eldsupptök eru ókunn en...
Government's EV targets expected to be reduced this week
📅 09.11.2026 👁️ 2
Government's EV targets expected to be reduced this week
New petrol or diesel cars are due to be phased out by 2030 and by 2035 all new cars must be zero emission.
Háttsettur glæpaforingi handtekinn
📅 09.11.2026 👁️ 1
Háttsettur glæpaforingi handtekinn
Yfirvöld í Mexíkó greindu frá því í gær að einn af helstu leiðtogum Jalisco New Generation (CJNG) eiturlyfjahringsins hefði verið handtekinn. Glæpasam...
Cruise ship pianist rescued from sea after nine hours in Pacific Ocean
📅 09.11.2026 👁️ 3
Cruise ship pianist rescued from sea after nine hours in Pacific Ocean
Two US fishermen say they spotted the man treading water around 20 miles (32km) off the Californian coast.
Segir ólíklegt að árásum gegn Írönum verði haldið áfram
📅 09.11.2026 👁️ 1
Segir ólíklegt að árásum gegn Írönum verði haldið áfram
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir mjög ólíklegt að árásum verði framhaldið gegn Írönum. Hann sagði í viðtali við CNN í gær að svo lengi sem viðræðu...
Society needs to act to help white working-class pupils, inquiry says
📅 09.11.2026 👁️ 2
Society needs to act to help white working-class pupils, inquiry says
The education secretary says she is backing the inquiry to "get to the heart of the barriers holding children back".
Rubio segir að árangur hafi náðst í umræðum um öryggismál í Úkraínu að loknu stríði
📅 09.11.2026 👁️ 1
Rubio segir að árangur hafi náðst í umræðum um öryggismál í Úkraínu að loknu stríði
Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði í viðtali við fjölmiðla í gær að þörfin fyrir öryggistryggingu fyrir Úkraínu og Evrópu væri umræðuef...
Woman says Fayed's brother drugged and sexually abused her at Highland estate
📅 09.11.2026 👁️ 2
Woman says Fayed's brother drugged and sexually abused her at Highland estate
Jill says she was flown to the Fayed family's Balnagown estate, where she was repeatedly assaulted.
Dormouse numbers may be helped by warmer summers - survey
📅 09.11.2026 👁️ 2
Dormouse numbers may be helped by warmer summers - survey
New figures suggest hazel dormice may be recovering after decades of decline, with warmer summers boosting survival.
Fimm létust þegar sandbakki féll eftir mikla rigningu
📅 09.11.2026 👁️ 1
Fimm létust þegar sandbakki féll eftir mikla rigningu
Minnst tvær konur og þrjú börn létust þegar sandbakki hrundi á tjöld suður af Deir al-Balah á Mið-Gaza í dag. Sandbakkinn féll eftir miklar rigningar ...
Fimm létust þegar sandhaugur rann fram eftir mikla rigningu
📅 09.11.2026 👁️ 1
Fimm létust þegar sandhaugur rann fram eftir mikla rigningu
Minnst tvær konur og þrjú börn létust þegar sandhaugur rann á tjöld suður af Deir al-Balah á Mið-Gaza í dag. Sandhaugurinn fór af stað eftir miklar ri...
Mal­bika í Reykja­vík og Garða­bæ - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 1
Mal­bika í Reykja­vík og Garða­bæ - Vísir
Gert er ráð fyrir að framkvæmdirnar á Miklubraut í Reykjavík standi yfir frá klukkan 14 til 17 og verður rampurinn frá Miklubraut að Réttarholtsvegi l...
Merz tilnefnir Ilse Aigner sem næsta forseta Þýskalands
📅 08.11.2026 👁️ 2
Merz tilnefnir Ilse Aigner sem næsta forseta Þýskalands
Friedrich Merz kanslari Þýskalands tilkynnti í gær að hann ætli sér að tilnefna stjórnmálakonuna Ilse Aigner næsta forseta Þýskalands á næsta ári. Aig...