Tveir þeirra erlendu karlmanna sem ákærðir eru fyrir tilraun til manndráps í bílakjallara á Höfðatorgi í mars neita sök í málinu.
Þetta kom fram við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þriðji sakborningurinn var ekki viðstaddur.
Tveir mannanna, Kareem M. M. Abufarhah og Mohamed Sayidali Ahmed, voru viðstaddir þingfestinguna en sá þriðji, Quassay Ali Yahya Alsadi, er staddur í Jordaníu. Málið verður tekið fyrir næst þann 8. Júlí.
Hrottaleg árás
Kareem er gefið að sök að hafa hafa ekið Land Rover-bifreið á miklum hraða á brotaþola þannig að hann hafnaði á vélarhlíf bifreiðarinnar og féll í jörðina.
Er brotaþoli lá í jörðinni eftir að ekið var á hann er Quassay ákærður fyrir að berja hann ítrekað í líkamann með óþekktu áhaldi.
Þriðji maðurinn sem ákærður er í málinu, Mohamed, er svo ákærður fyrir að stinga manninn í vinstri rasskinn með óþekktu stunguvopni í kjölfarið á barsmíðum Quassay.
Samkvæmt ákærunni var maðurinn í lífshættu í kjölfar árásarinnar en hann hlaut sár í húðbeði vinstri rasskinnar, lungnamar á báðum lungum, blóðþurrðarlost, brot á vinstri upphandlegg, mar, bólgur og fleiðusár á vinstri ökkla og þreifeymsli á vinstri handlegg og kvið.
