Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi kínverskan karlmann, Wenwei Zhang, í síðustu viku til tveggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir nauðgun.
Hann hafði ráðið sig til að aka hópi fimm ferðamanna um landið í viku. Þegar maðurinn hafði keyrt fjóra af fimm viðskiptavinum á flugvöllinn í lok ferðar sneri hann aftur í íbúðina og þvingaði eina konuna úr hópnum til samfara. Hann sinnti engu beiðnum hennar um að hætta.
Konan náði að hafa samband við eigendur AirBNB-íbúðar sem hún hafði leigt og bað þá að kalla lögreglu til.
Wenwei Zhang var sakfelldur á fimmtudag en dómurinn var birtur í dag. Þar kemur fram að hann var handtekinn á nýársdagsmorgun 2024. Lögreglumenn vopnuðust og nutu liðsinnis sérsveitar ríkislögreglustjóra þar sem maðurinn var talinn vopnaður. Í ljós kom að hann hafði skorið sig í handlegg með flökunarhníf.
Viku fyrr hafði maðurinn tekið á móti hópi fimm vina og vinkvenna sem voru á ferðalagi um Ísland. Hann var ráðinn til að aka fólkinu um landið. Að morgni nýársdags keyrði hann fjóra ferðalanganna á flugvöllinn. Hann sneri síðan aftur í íbúðina.
Wenwei Zhang var sakfelldur fyrir að nauðga konunni þegar hún hugðist fara að sofa, skeyta ekkert um beiðnir hennar um að hann hætti og hafa borið hana yfirliði þegar hún barðist á móti.
Maðurinn neitaði sök en skýringar hans þóttu trúverðugar. Þau gögn sem voru til staðar og áverkar á konunni studdu frásögn hennar sem þótti stöðug í öllum meginatriðum.