Þýskum sagnfræðingi hefur tekist að varpa nýju ljósi á eina þekktustu ljósmynd helfararinnar og bera kennsl á nasista sem sést taka gyðing af lífi. Talið er að myndin hafi verið tekin sumarið 1941, eða fyrir 85 árum.Í frétt New York Post kemur fram að sagnfræðingurinn Jürgen Matthäus hafi meðal annars notað gervigreind við rannsóknina, auk þess sem stuðst var við sögulegar heimildir, fjölskyldugögn og frásagnir einstaklinga.
Nasistinn á alræmdu myndinni loks nafngreindur