Mikil atvinnutækifæri eru í Helguvík eftir að lokið verður við að rífa kísilverksmiðjuna í haust segir bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Nálægð við flugvöll og höfn gegni þar lykilhlutverki.
„Þetta gengur bara mjög vel fyrst að svona fór að þessi starfsemi gekk ekki upp á sínum tíma. Framkvæmdir ganga vel núna í að rífa þetta niður og búa til pláss fyrir nýja atvinnustarfsemi þannig að við getum sagt að Helguvík taki opnum faðmi á móti nýjum atvinnutækifærum,“ segir Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Aðeins tólf ár frá fyrstu skóflustungu
Aðeins tólf ár eru síðan fyrsta skóflustunga var tekin að kísilverinu United Silicon sem átti að marka upphaf atvinnuuppbyggingar á Suðurnesjum.
Starfsemi kísilversins var stöðvuð árið 2017 af Umhverfisstofnun vegna mengunar sem barst í íbúabyggð. Úrbætur sem fyrirtækinu var gert að ráðast í kostuðu um þrjá milljarða króna og í kjölfarið var félagið sett í þrot.
„Já hér náttúrulega voru áform um og fór af stað mikill og stór vinnustaður sem þurfti mikið rafmagn þannig að þessi lóð býr svo vel að því að hafa nýtt og öflugt spennuvirki inni á lóðinni hjá sér. Þannig að það þarf ekki einu sinni framlengingarsnúru, bara að stinga í samband. Svo erum við að fá Suðurnesjalínu tvö og þá væri gott að hafa allt að 200 megavatta spennuvirki inni á lóðinni,“ segir Vilhjálmur.
Ýmislegt er fyrirhugað í Helguvík þegar niðurrifi kísilverksmiðjunnar lýkur í haust.
Kjörinn vettvangur fyrir matvælaiðnað og gagnaver
Vilhjálmur segir bílaleigur, iðnaðar- og pípulagningarfyrirtæki þegar byggja upp starfsemi á staðnum ásamt jarðaberjarækt. NATO hyggist stækka olíubirgðastöð sína við höfnina. Gagnaver, landeldi og ferðaþjónusta skapi tækifæri fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Nálægðin við Keflavíkurflugvöll og höfnina skapi kjörinn vettvang fyrir matvælaiðnað og gagnaver.
„Þannig að þá er hægt að hafa hráefnið sem ferskast þegar það fer í flugið eða um borð í skipið, það hjálpar okkur mikið og líka varðandi gagnaverin. Í þessum tækniiðnaði þarf allt að gerast hratt þannig að þá er gott að geta lent með varahlutina við hliðina á. Svo eigum við fullt af tækifærum í ferðaþjónustunni ennþá. Við þurfum að fá ferðamanninn til að stoppa hér á svæðinu og erum að vinna í því. Við munum reyna að vera svolítið í þeim geiranum, ekki að koma með mengandi iðnað hér inn á svæðið. Það er liðin tíð,“ segir Vilhjálmur.