Íbúar í hinu rólega Encino-hverfi í Los Angeles segja að líf þeirra hafi tekið óvænta stefnu eftir að stórglæsilegu lúxushúsi í hverfinu var breytt í höfuðstöðvar fyrirtækis sem tengist efnisgerð fyrir OnlyFans.
Húsið, sem er rúmlega 1.500 fermetrar að stærð og metið á um sex milljónir Bandaríkjadala, er í leigu hjá fyrirtæki sem kallast Creators Inc. Að sögn nágranna hefur eignin breyst í miðstöð fyrir áhrifavalda og efnisframleiðendur sem koma þar saman til að taka upp efni.
Í frétt New York Post kemur fram að samkvæmt íbúum sé stöðugur straumur ókunnugs fólks um götuna og myndatökur fari reglulega fram bæði innan og utan lóðarinnar. Þá hafi oft afar fáklæddar konur sést við myndatökur á lóðinni og við sundlaug hússins.
„Þetta snýst ekki um siðferði,“ sagði einn nágrannanna við New York Post. „Kjarni málsins er að þarna er atvinnurekstur í miðju íbúðahverfi.“
Foreldrar í hverfinu segjast einnig hafa áhyggjur af því að myndatökurnar fari stundum fram í augsýn barna og unglinga.
„Strákarnir mínir fengu vini sína heim og þeir voru einfaldlega að fylgjast með því sem var að gerast fyrir utan,“ sagði kona sem býr í nágrenninu. Hún tók fram að hún hefði ekkert á móti því hvernig fólk kýs að vinna eða lifa lífi sínu, en taldi starfsemina einfaldlega ekki eiga heima í fjölskylduhverfi.
Auk ónæðis hafa íbúar áhyggjur af áhrifum starfseminnar á fasteignaverð.
„Þau eru að græða milljónir dollara á þessari eign á meðan hverfið okkar ber skaðann,“ sagði einn nágrannanna. „Þau hafa engan áhuga á fjölskyldunum sem búa hér.“
Forsvarsmenn Creators Inc. hafna hins vegar ásökununum alfarið. Í yfirlýsingu fyrirtækisins kemur fram að starfsemin hafi aldrei fengið áminningu eða sekt vegna brota og að fyrirtækið eigi í góðu samstarfi við yfirvöld.