Stærðarinnar rotta sást á vappi við Víðimel í Vesturbæ í Reykjavík í morgun en Júlían J. K. Jóhannsson, fasteignasali og fyrrverandi heimsmeistari í kraftlyftingum, náði áhugaverðu myndbandi af rottunni.
„Ég var nú bara að sýna íbúðir í Vesturbænum í morgun og var að keyra á milli húsa þegar ég sá rottuna á gangi á götunni,“ sagði Júlían í samtali við mbl.is en hann var því næst spurður að því hvort hann hefði lent í sambærilegu atviki áður.
Ekki lent í þessu áður
„Nei, ég hef ekki lent í þessu áður en maður hefur heyrt af þeim hérna í Vesturbænum. Það fór smá hrollur um mig, ég skal alveg viðurkenna það. Það hlýtur að vera óvanalegt að sjá þær svona, í þessum aðstæðum. Hún var bara í rólegheitunum að skoða sig um og hafði ekki áhyggjur af neinu,“ sagði Júlían.
Þú hefur væntanlega sleppt því að nefna það sérstaklega í opna húsinu að þú hafir rekist á rottu á leiðinni?
„Ég var allavega ekkert að flagga því þegar ég ræddi við mögulega kaupendur,“ bætti Júlían við og hló.
Fær reglulega símtöl
Steinar Smári Guðbergsson hjá Meindýraeyði Íslands segir ekki óalgengt að fólk rekist á rottur í Vesturbænum.
„Þetta er mjög algengt, sérstaklega í Vesturbænum, á ákveðnum stöðum í Kópavogi og á ákveðnum stöðum í Hafnarfirði, þar ber meira á þessu,“ sagði Steinar í samtali við mbl.is.
„Ég fæ reglulega símtöl um að það sé rotta í garðinum hjá fólki og ég er búinn að fara í eitt útkall í dag þar sem rotta var komin inn í hús. Þær komast inn um annaðhvort útidyrahurðina eða upp um niðurfall sem er ekki nægilega fast. Niðurfallið lokast svo kannski og þá komast þær ekki aftur til baka,“ sagði Steinar og hélt áfram.
Geta ráðist á fólk
„Þú getur alltaf reynt að leysa þetta með því að opna útidyrahurðina og koma henni þannig aftur út hjá þér en ég myndi samt alltaf mæla með því að hafa strax samband við meindýraeyði,“ sagði Steinar.
„Rottan er þannig dýr að ef henni er ógnað þá reynir hún að verja sig. Hún reynir fyrst að flýja en ef þú króar hana af þá gæti hún ráðist á þig. Ég hef lent í því nokkrum sinnum að rotta hefur ráðist á mig. Einu sinni stökk hún nánast í andlitið á mér.
Í eitt skiptið stóð hún ofan á skónum mínum og reyndi að naga sig í gegnum buxurnar mínar. Ég var svo hissa að ég gleymdi að verja mig. Þær geta bitið fast og til blóðs og þá þarf að leita beint til læknis og fá stífkrampasprautu,“ bætti Steinar Smári við í samtali við mbl.is.



