„Ég hef ákveðið að láta af þingmennsku. Ég geri það með þakklæti í hjarta og trú á framtíðina. Ég kveð Alþingi, en ég kveð ekki hugsjónirnar. Ég kveð þingmennsku, en ekki viljann til að leggja mitt af mörkum. Ég óska þingheimi góðs gengis í ykkar mikilvægu störfum og frá mínum dýpstu hjartarótum þakka ég ykkur öllum, samstarfsfólki og starfsfólki Alþingis fyrir samfylgdina,“ sagði Áslaug Arna er hún tilkynnti afsögnina í ræðustól.
Síðastliðið ár hefur Áslaug Arna stundað nám í New York-borg þar sem hún lagði stund á MPA-nám. Hún mætti aftur til starfa á Alþingi í dag. Hún settist fyrst á þing árið 2016 og varð dómsmálaráðherra aðeins 28 ára, næstyngst allra ráðherra og yngst kvenna.