Í gær var birt mynd í Facebook-hópnum Vertu á verði – eftirlit með verðlagi sem sögð er frá árinu 1998.
„Fólk hefur verið tala um verð á pylsum hér. Þessi mynd er úr ónefndum söluturn 1998. Pylsa og súperdós 200kr. Samkvætt verðlagsreiknivel hagstofunar þá reiknast það sem 750kr í dag. Þannig verðið alveg nær lagi. Sumstaðar allavega.“

Einn spyr hvar pylsa og gos fáist fyrir 700 kr. í dag og fær svar að slíkt fáist á N1. Annar segir að tvær pylsur með gosi fáist á undir 700 kr. í IKEA. Einnig megi fá pylsu með stórri gos með áfyllingu í Costco á 299 kr.
„Nei…þetta verð er langt frá því að vera nær í lagi. pylsa er á bilinu 800-950kr sennilega..bara pylsan og gosið er á svona 250-400kr. þannig pylsan og gos er á um 1050-1350kr – það er langt frá 750kr miðað við hagstofuna.“
„Verðið hjá bæjarins bestu er 920kr fyrir pylsu, hækkun laaaangt umfram verðlag, segir einn karlmaður og fær það svar frá öðrum: „Framboð og eftirspurn er það sem ræður verðinu. Mega hækka þetta eins og þeir vilja !! Ef ég ætti Bæjarins Bestu myndi ég prufa að selja þessar djöfuls pulsur á 1.920 -kr.“
Kona ein segist muna eftir þessu verði frá 1998: „Ég man eftir að vinna í sjoppu/bensínstöð á þessum árum, 96-99 og man eftir að pylsa var einmitt á 150 og lítil kók í gleri á 110 kr. Og bensínlíterinn á 67 kr.“
Einn segir ekki bara verðið hafa verið lægra árið 1998, þjónustan hafi einnig verið betri:
„Þjónusta í sjoppum 1998 var margfalt betri en hún er í dag. Ég kem stundum inn hjá ónefndri N1 sjoppu. Þar eru að jafnaði 5 starfsmenn. 8 viðskiptavinir þurfa að bíða hátt í 15 mínútur til að fá afgreiðslur. Þar gerist allt í Slow Motion. Þegar ég kem þar inn og sé að 2 eru að bíða umfram þá sem er verið að afgreiða og fer ég strax. Ég fæ betri þjónustu hjá Olís hinu megin á planinu.“
