SpaceX safnaði 75 milljörðum Bandaríkjadala, um 9.400 milljörðum króna, í frumútboði í dag. Viðskipti með bréf félagsins hefjast á Nasdaq-hlutabréfamarkaðinum í New York á morgun.
Í frumútboðinu var hver hlutur í félaginu seldur á 135 dali, nærri 17 þúsund krónur. Fyrir vikið er virði þess metið 1,8 billjónir Bandaríkjadala. Miðað við það virði eru eignir Elons Musks, sem fyrir var ríkasti maður í heimi, nú metnar á yfir eina billjón Bandaríkjadala. Ein billjón eru milljón milljónir – eða þúsund milljarðar.
Í frétt Reuters segir að eignarhlutur hans í SpaceX sé þessa stundina um 866 milljarða dala virði. Því til viðbótar er stór hluti eignasafns hans bundinn í hlutabréfum rafbílaframleiðandans Tesla.
Eftir að viðskipti með bréf félagsins hefjast er óvíst hvað gerist. Þau gætu hækkað í verði eða lækkað. Það fer eftir því hversu mikil eftirspurn verður eftir hlutabréfum félagsins.
Óvíst að félagið geti staðið undir þessi verðmati
Greinendur telja víst að mikill áhugi verði á hlutabréfum SpaceX. Þeir eru þó ekki á einu máli um virði félagsins. Fjárfestingarbankinn Oppenheimer telur að hlutabréfaverðið gæti rokið upp í um 190 dali eða 40% yfir verði frumútboðsins.
Fjárfestirinn Michael Burry, sem spáði fyrir um efnahagshrunið 2008 og hagnaðist vel á því, skrifaði í síðasta mánuði ekkert benda til þess að félagið gæti staðið undir einnar billjónar verðmæti, hvað þá tveggja. Ef bréf félagsins myndu hækka í verði væri það fyrst og fremst vegna þess hve mikið væri látið með félagið.
New York Times fjallar um þessi skrif Burrys og aðrar efasemdaraddir. Þar segir að greiningarfyrirtækiði Morningstar telji virði SpaceX um 780 milljarða dala, eða innan við helming þess sem frumútboðið sagði til um.