„Þetta var mjög mikill eldur á mjög skömmum tíma og mikill reykur sem barst um skipið,“ segir Theodór Elvar Haraldsson, skipstjóri á Barða.
Eldur kom upp í vélarrúmi skipsins undan ströndum Færeyja í gær með fimm manns um borð.
Theodór útskýrir að skipið hafi verið í vélarupptekt í Þórshöfn. „Við vorum búnir að fara í fyrradag í prufusiglingu þar sem allt reyndist í góðu lagi.“
Skipið lagði af stað heim til Íslands í gær og hafði siglt í um fjóra tíma þegar áhöfnin varð vör við eld í vélarrúmi.
„Þá fóru í gang öll viðbrögð sem við höfum lært í gegnum tíðina til að bregðast við eldi.“
„Mikil hætta til staðar“
Theodór segir að sem betur fer hafi áhöfnin búið að miklum og þéttum æfingum til margra ára og því hafi gengið hratt og vel að bregðast við.
Slökkvikerfi bátsins kæfði eldinn á örskömmum tíma. „En það var vissulega mikil hætta til staðar.“
Skipverjar voru fluttir aftur til Þórshafnar og verið er að vega og meta hver næstu skref eru.
„Það þarf að meta tjón en það eru allir heilir. Næsta skref er að finna út úr því hvað gerðist og hvernig er hægt að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur,“ segir Theodór.