„Starfi Bríetar, og annarra eldhuga í baráttu fyrir betra samfélagi, er aldrei lokið. Við minnumst krafta, hugrekkis og framsýni Bríetar og höldum um leið baráttu fyrir jafnrétti og góðu samfélagi áfram.“
Þetta sagði Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar í ávarpi sínu við minningarathöfn um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur fyrr í dag.
Kvenréttindadagurinn er í dag og 111 ár síðan konur á Íslandi fengu fyrst kosningarétt. Að venju var Bríetar minnst í Hólavallagarði. Blómsveigur var lagður að leiði hennar og auk ávarps Bjargar voru flutt tónlistaratriði.
Auður Önnu- Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands, segir daginn enn hafa mikið vægi. Mikilvægt sé að muna að réttindi, eins og kosningaréttur kvenna, séu ekki sjálfsögð.
„Það þurfti að hafa mikið fyrir því að vinna þau inn. Við þurfum að vera í aktífri vinnu til þess að viðhalda þeim.“
Auður segir nú eiga sér stað „gríðarlegt bakslag“ sem undirstriki enn frekar mikilvægi daga sem þessara.
„Til að minna okkur á baráttuna, hvaða aðferðum var beitt og hvaða þýðingu það hefur fyrir okkur – eitthvað svona sjálfsagt eins og að allir fái að kjósa,“ segir hún.