Axel hefur undanfarna daga keyrt þrjátíu og fjóra ferðamenn frá Spáni um landið vítt og breytt en þegar atvikið varð var ferðinni heitið frá Neskaupsstað og suður á leið. Axel segir ferðamennina hafa verið skelkaða þegar hann lagðist skyndilega á bremsuna og nærri því stöðvaði rútuna á miðjum vegi á milli Foss á Síðu og Hörgslands.
Þá hafði hann tekið eftir því að hvítur fólksbíll ók á miklum hraða fram úr öðrum bílum úr gagnstæðri átt en Axel segir ökumann bílsins hafa „haldið sínu striki þó að það væri augljóst að hann myndi aldrei ná þessu“. Það hafi verið þökk sé lítilli bremsuvegalengd rútunnar og snöggra viðbragða hans sjálfs að bíllinn skall ekki framan á rútunni.
Axel segir blaðamanni frá því að það hafi munað tæpum þrjátíu metrum á bílnum og rútunni þegar bílinn gat sveigt til baka á rétta akgrein.
„Þessi manneskja sem var að taka fram úr sýndist fyrir mér vera í sjálfsvígshugleiðingum. Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn,“ segir hann.
Komið nóg
Það sé sífellt algengara að ökumenn taki fram úr öðrum með glæfralegum hætti og alltof oft verði alvarleg slys af nákvæmlega þessari ástæðu. Einungis vika sé frá því að hann lenti í svipuðu atviki þegar Audi-jeppi tók fram úr honum í Borgarbyggð með þeim afleiðingum að bíll úr gagnstæðri átt þurfti að negla niður.
„Eigandi Audi-bílsins flýtti sér ekki inn í Borgarnes enda vorum við komnir þangað með fimm sekúndna tímabili sem aðskildi okkur,“ segir Axel en hann segist ætla að kaupa sér öryggismyndavél eftir atvikið í dag og taka allar ferðir héðan frá upp.
„Þetta gengur ekki svona lengur. Nú er bara komið nóg. Hefði ég náð skráningarnúmeri bílsins hefði ég strax hringt í 112 en í staðinn vísaði ég til hans miðfingrinum og blótaði á mínu móðurmáli, sem er þýska.“