Að minnsta kosti sjö Palestínumenn voru drepnir í loftárás Ísraelshers á Gaza í kvöld, þar á meðal minnst eitt barn, samkvæmt upplýsingum heilbrigðisyfirvalda.
Ísraelsmenn segja skotmarkið hafa verið Izz al-Din al-Haddad, leiðtogi hernaðarvængs Hamas. Stjórnvöld gruna hann um að vera einn höfuðpaura hryðjuverkaárásarinnar á Ísrael 7. október 2023. Ekki liggur fyrir hvort al-Haddad var drepinn í árásinni.