Í það minnsta fimmtán fórust þegar öflugur jarðskjálfti reið yfir Filippseyjar í dag. Byggingar hrundu og yfirvöld vöruðu við hættunni á flóðbylgjum.
Jarðskjálftinn var 7,8 að stærð. Margir eftirskjálftar hafa riðið yfir. Sá stærsti þeirra var 6,5 að stærð.
Á myndskeiðum sem sjá má á samfélagsmiðlum, og AFP-fréttastofan hefur yfirfarið, má sjá börn grátandi í örmum kennara sinna meðan hús sveiflast fram og til baka og skyndibitastað sem var rústir einar eftir jarðskjálftann.
Flóðbylgjuviðvörunin nær til strandhéraða á Filippseyjum, Indónesíu, Taívan, Papúa Nýju Gíneu og Palá.
Fólk var hvatt til að hafa sig á brott frá þeim svæðum þar sem flóðbylgja gæti náð á land og skapað hættu. Í einu héraði höfðu 80 prósent íbúa flúið heimili sín og haldið inn í landið og upp í hæðóttara landslag.