Milljarðasektin lækkuð í Landsrétti
Fyrrverandi eigandi rafrettuverslunarinnar Póló og eigandi söluturnsins Drekans voru í gær dæmdir í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir stórfelld tollalagabrot.
Dómur þess efnis féll í Landsrétti í gær. Mönnunum tveimur, Snorra Guðmundssyni og Sverri Þór Gunnarssyni, er þá hvorum um sig gert að greiða rétt rúmlega 740 milljóna króna sekt vegna málsins og lækkaði dómstóllinn því sekt sem þeir hlutu í héraðsdómi, upp á 1,1 milljarð króna.
Greiði mennirnir ekki sektina innan fjögurra vikna munu þeir sæta fangelsi í eitt ár.
Sverri og Snorra báðum gert að greiða 1,1 milljarð
Frétt af mbl.is
Sverri og Snorra báðum gert að greiða 1,1 milljarð
Skilorðsbundið vegna tafa
Í málinu voru þeir Sverrir og Snorri ákærðir fyrir að smygla inn sígarettum og vindlingum í níu sendingum, en í það heila var um að ræða 120.075 karton af sígarettum, eða 1.200.750 sígarettupakka og 5.400 karton af reyktóbaki.
Við tollskjalagerð var tóbakið aftur á móti ýmist tilgreint sem prótín eða pappírsvörur. Komu mennirnir því til leiðar með háttsemi sinni að aðflutningsgjöld upp á rúmar 740 milljónir voru því ekki lögð á tóbaksvörurnar.
„Þetta er risastórt tollalagabrot“
Frétt af mbl.is
„Þetta er risastórt tollalagabrot“
Báru mennirnir fyrir sig að þeir hefðu ekki haft neitt með skjalagerðina að gera og að rekja mætti málið til mistaka starfsmanns Thor Shipping ehf., sem sinnti tollskjalagerðinni í umboði félags Sverris og Snorra, Áfengis og tóbaks ehf., sem stóð að innflutningnum. Taldi Landsréttur þó mennina bera ábyrgð á því að skjölin væru rétt að efni til.
Taldi Landsréttur því ekki efni til annars en að sakfella mennina tvo en lækkaði þó sekt þeirra umtalsvert. Tveggja ára fangelsisdómur þeirra úr héraði fékk að standa óraskaður en hann er þó, eins og í héraðsdómi, skilorðsbundinn, sér í lagi vegna þess hve miklar tafir urðu á rekstri málsins.