Einn er látinn og tugir eru slasaðir eftir óveður á Taívan og yfir 1.200 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Búist er við að fellibylurinn Champi fari yfir norðausturhluta eyjunnar í dag.
Yfirvöld hafa fyrirskipað lokanir í skólum og á skrifstofum í öllum héruðum og borgum landsins. Tæplega eitt þúsund flugferðum hefur verið aflýst, lestar- og ferjusiglingar hafa verið felldar niður og sumum hraðbrautum hefur verið lokað vegna fellibylsins.
Breska ríkisútvarpið segir að íbúum hafi verið ráðlagt að halda sig fjarri ströndum og fjöllum. Spáð er mikilli úrkomu og afar sterkum vindhviðum sem talið er að geti náð 12 vindstigum á Beaufort-kvarðanum, sem er efsta stig mælikvarða yfir vindhraða og vindstyrk sem notaður er.
Það jafnast á við vindhviður yfir 32,7 metra á sekúndu sem geta valdið gríðarlegri eyðileggingu og foki á lausamunum.
Von á fleiri fellibyljum
Talið er að Champi fari yfir Taívan og Okinawa-eyjar við Japan í dag, áður en hann færist til Austur-Kína og suðurkóresku eyjunnar Jeju um helgina.
Veðurfyrirbærið El Niño hefur valdið fordæmalausri hlýnun í Kyrrahafi við miðbaug í ár. Það hefur komið af stað mörgum fellibyljum og er Champi þrítugasti fellibylurinn sem dynur á Japan á þessu ári.
Þetta er í fyrsta sinn síðan 2013 sem svo margir fellibyljir fara yfir landið. Vísindamenn gera ráð fyrir enn fleiri fellibyljum á þessu ári.