„Það er eldur í bíl. Við erum búin að senda tvær stöðvar,“ segir varðstjóri slökkviliðs í samtali við Vísi. Hann segir að slökkviliðsmenn hafi verið nýmættir á vettvang þegar Vísir hafði samband við varðstjóra rétt fyrir klukkan 21 í kvöld.
Fréttastofu barst ábending um að stór dökkur reykmökkur sæist í Fossvoginum.
Veistu meira um málið? Áttu myndir frá brunanum eða störfum slökkviliðs? Við tökum við ábendingum hér.
„Það rýkur töluverður reykur úr bílnum,“ bætir varðstjórinn við en segir að það sé afar algengt í bílbruna að mikill reykur komi upp.
Hann vildi ekki tilgreinar nánar hvar edsvoðinn væri en af myndum má sjá að um götuna Láland sé að ræða.
Veistu meira um málið? Áttu myndir frá brunanum eða störfum slökkviliðs? Við tökum við ábendingum hér.