Brák íbúðafélag á 8 af 10 íbúðum í nýju fjölbýlishúsi á Hvammstanga. Alls á Brák 14 leiguíbúðir í bænum og eru þær allar í útleigu. Brák er húsnæðissjálfseignarstofnun sem var stofnuð árið 2022 af 31 sveitarfélagi og er rekin án hagnaðarmarkmiða. Nýverið sagði RÚV fréttir af húsnæðisþörf í Langanesbyggð, þar sem Brák hafði tekið fjórar íbúðir í notkun sem fóru strax í útleigu.
„Brák íbúðarfélag var að taka í notkun 10 íbúða fjölbýlishús í hérna í bænum. Brák á sem sagt 8 íbúðir í þessu húsi og það er búið að leigja þær allar út. Það er búin að vera mikil húsnæðisuppbygging hjá okkur,“ segir Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri í Húnaþingi vestra og telur að hægt væri að byggja fleiri íbúðir sem færu strax í útleigu.
Ekki bara Brák að byggja
Brák er ekki eitt um að byggja á Hvammstanga en útlit er fyrir að nýtt raðhús rísi í bænum.
„Svo er einkaaðili að byggja hér raðhús líka með fimm íbúðum og er búinn að selja hluta af því og eitthvað komið í útleigu. Það hefur heilmikið gerst á síðustu misserum í húsnæðisuppbyggingunni,“ segir Unnur.
Um 590 manns búa á Hvammstanga, sem er í Húnaþingi vestra. Íbúum á Norðurlandi vestra fækkaði um 0,4% á fyrsta ársfjórðungi ársins eða um 27 einstaklinga. Að sögn Unnar er því ánægjulegt að íbúðaruppbygging gangi vel og áhugi sé á þeim framkvæmdum.