Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ - Vísir

Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ - Vísir

Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ - Vísir

Við vitum öll að tónlist hefur verið notuð sem pyntingartæki; henni var meðal annars beitt til að svæla Manuel Noriega út úr sendiráði Páfagarðs í Panamaborg. Bætið við skæru ljósi í augun og þið hafið uppskriftina. Á tónleikum Hildar Guðnadóttur í Silfurbergi sátum við áhorfendur í um það bil 75 mínútur án hlés og störðum inn í blindandi hvíta sól — ljós svo skært að ekki dugði að loka augunum, maður þurfti líka að halda fyrir þau. Mest langaði mig til að standa upp og öskra: „Ég skal segja allt af létta!“

Listahátíð í Reykjavík — Silfurberg í Hörpu, laugardaginn 6. júní. Hildur Guðnadóttir: Where to From

Hálfkláraðar hendingar

Hildur er hátíðarlistamaður Listahátíðar í ár og hafði komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands tveimur dögum áður, þar sem kvikmyndatónlistin hennar var í öndvegi. Hér kynnti hún hins vegar annað: hljóðdagbók um vináttu, samveru og langt samstarf. Aðalatriðið Where to From tók um fimmtíu mínútur. Afgangurinn fór í nýjar útsetningar á eldra efni og hæga hugleiðingu um sálminn „Heyr himna smiður“ eftir Þorkel Sigurbjörnsson.

Á sviðinu voru sjö tónlistarmenn. Fimm spiluðu á strengi: Clare O'Donnell og Constance Ricard auk Hildar á selló, Sarah Saviet á víólu og Liam Byrne á viola da gamba. Hinir tveir voru söngkonurnar Peyee Chen og Nina Guo, og Hildur tók sjálf lagið með þeim um stund. Þetta munu allt vera gamlir samverkamenn tónskáldsins.

Furðu innihaldsrýrt

Dagbókin samanstendur af níu persónulegum verkum — skissum og hugmyndum sem hafa orðið til á löngu tímabili og eru nú settar fram í líki kammerverka, nýkomnum út á plötu. Kynningarefnið lofaði hógværu mótvægi við stærri og dramatískari verkefni Hildar. 

Í reynd reyndist tónlistin furðulega innihaldsrýr. Hljóðfæraleikararnir spiluðu prýðilega og söngurinn var áferðarfallegur, Hildur lék á sellóið af fagmennsku — en það skipti engu máli. Að hlusta á hálfkláraðar hendingar án merkjanlegrar framvindu stærstan hluta kvöldsins var beinlínis leiðinlegt.

Platan Where To From kom út síðasta haust.

Og þar liggur kjarninn, því efniviðurinn var ekki slæmur í sjálfu sér. Þrjár, fjórar mínútur af þessu — sem stuttur kafli í stærra flæði — hefðu hljómað ágætlega, jafnvel fallega. Það var lengdin sem drap listina: krafan um að brotakenndar skissur breiddu úr sér í fimmtíu mínútur án þess að nokkuð gerðist og enginn áfangastaður sæist við sjóndeildarhringinn. 

Við vitum öll að Hildur kann að skapa spennu úr kyrrstöðu í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, þar sem hún hefur gert stóra mynd úr fáum dráttum. En hér var drónalandslagið dregið fram í dagsljósið og kynnt sem eitthvað stórt og merkilegt — án þess að standa undir því.

Valdboð í hvítu ljósi

Þá er komið að því sem gerði kvöldið ekki bara leiðinlegt heldur óverjandi: ljósinu. Ljósahönnun Theresu Baumgartner átti greinilega að vera burðarþáttur. Pýramídar voru teiknaðir upp í myrkrinu, þokukennt rými byggt upp og geislum skotið yfir salinn — aðallega í augu fólks. Hugmyndin var væntanlega að móta þrívítt ljósrými utan um tónlistina. Í framkvæmd varð þetta að líkamlegu áreiti.

Og hér skilur á milli. Leiðinleg tónlist er smekksatriði sem hver má vega og meta. En að kyrrsetja varnarlausan áhorfendaskara í þrjú korter og beina í hann ljósi sem sumir þola ekki að horfa í — það er annars eðlis. Í kringum mig hélt fólk fyrir augun. Dóttir mín, sem var með mér, var komin með höfuðverk áður en yfir lauk. Í stað þess að opna tónlistina eða gefa henni vídd urðu ljósin valdboð: áhorfendur skyldu upplifa dýpt, hvort sem þeir vildu það eða ekki. Það sem átti að verða nútímahelgisiður varð æpandi björt biðstofa.

Konsept án innistæðu

Í kynningarefninu var talað um nána samvinnu og vinasamkomu á sviði, eins og það væri aðalkonseptið. En falleg saga er ekki tónlist, og samvera flytjenda er ekki tónsmíð. Ég gat ekki setið í salnum og fyllt upp í tómarúmið með þeirri vitneskju einni að tónskáldið ætti hlýja sögu með flytjendunum.

Þessi tónlist gæti vel virkað í öðru samhengi — sem innsetning í galleríi, þar sem áhorfendur gætu hreyft sig um rýmið, valið fjarlægð, snúið sér undan ljósinu eða einfaldlega gengið út þegar þeir hefðu fengið nóg. Það er einmitt frelsið sem konsertformið neitaði þeim um.

Dræmar móttökur

Í lokin voru móttökurnar dræmar. Einhverjir stóðu upp, en alls ekki allir. Sem fimmtíu mínútna sviðsverk, með kyrrsettan áhorfendaskara, varð þessi „dagbók“ hvorki fugl né fiskur. Hún ögraði ekki listrænu úthaldi áhorfandans eins og innhverf og hæg list getur gert; hún prófaði einfaldlega þolmörk gagnvart einhæfu tónmáli og vanhugsaðri sviðsetningu — og féll á prófinu.

Ég vil taka fram að ég hitti gamla vinkonu mína, tónlistarkonu, eftir tónleikana. Hún var mjög hrifin. Það er gott að fólk heyri hlutina á ólíkan hátt — hvar væri listin án átaka?

Niðurstaða:

Listahátíð ætlaði sér augljóslega að heiðra einn þekktasta tónlistarmann þjóðarinnar, og auðvelt er að skilja kvöldið sem tilraun til að sýna persónulegri hlið Hildar, fjarri Hollywood-stórsveitum og verðlaunafári. En Where to From sýndi frekar hvernig starf eins vinsælasta tónskálds samtímans getur orðið sjálfhverft þegar umgjörðin verður stærri en innihaldið.

Veikur efniviður einn og sér hefði kallað á mildari dóm. Það sem felldi kvöldið niður í eina stjörnu var samspilið: að krefjast þess að áhorfendur sætu varnarlausir undir yfirþyrmandi líkamlegu áreiti — til þess eins að hlusta á jafn rýran efnivið. Það er hvorki djörf né merkileg listræn ákvörðun. Það er einfaldlega yfirgangur.

#langaði #mig #skal #til #öskra

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262895559d/mig-langadi-til-ad-oskra-eg-skal-segja-allt-af-letta-

📰 Aðrar fréttir

Hyggjast tilnefna Viktor Orban sem aðalritara Sameinuðu þjóðanna
📅 27.10.2026 👁️ 0
Hyggjast tilnefna Viktor Orban sem aðalritara Sameinuðu þjóðanna
Donald Trump vill að Viktor Orban, fyrrverandi forseti Ungverjalands, verði næsti aðalræðismaður Sameinuðu þjóðanna. Undirsátar hans í Hvíta húsinu vi...
Israel heads to polls for pivotal election defined by security and democracy
📅 27.10.2026 👁️ 0
Israel heads to polls for pivotal election defined by security and democracy
Many fear neither of the leading political blocs will win enough seats for a majority - meaning weeks or months of political wrangling may lie ahead.
Sharp rise in sales of essential goods after government says to stock up
📅 27.10.2026 👁️ 2
Sharp rise in sales of essential goods after government says to stock up
Figures obtained by BBC Newsnight show large spikes in sales of torches, radios and power banks.
Vopnahlé í Oleshky tók gildi í nótt
📅 27.10.2026 👁️ 2
Vopnahlé í Oleshky tók gildi í nótt
Vopnahlé milli Rússa og Úkraínumanna í Oleshky tók gildi klukkan eitt í nótt að íslenskum tíma. Al Jazeera hefur þessar upplýsingar eftir rússneska va...
Truce begins in Ukrainian city of Oleshky after it was announced by Melania Trump
📅 27.10.2026 👁️ 2
Truce begins in Ukrainian city of Oleshky after it was announced by Melania Trump
The ceasefire is meant to allow aid deliveries and the evacuation of civilians.
Jay-Z to perform at Super Bowl half-time show
📅 27.10.2026 👁️ 4
Jay-Z to perform at Super Bowl half-time show
Jay-Z has been involved with the show for years but has never before performed at the NFL championship game.
Super Bowl 2027: Jay-Z to perform at half-time show
📅 27.10.2026 👁️ 0
Super Bowl 2027: Jay-Z to perform at half-time show
The rapper has been involved with the show for years but has never before performed at the NFL championship game.
Jordan says 'terrorists' killed in Syria in retaliatory strike over church attack
📅 27.10.2026 👁️ 4
Jordan says 'terrorists' killed in Syria in retaliatory strike over church attack
The attack on a village in Syria killed five people, including women and children, Syrian health officials said.
Bandarískur sjóliði ákærður fyrir morð á japanskri konu
📅 27.10.2026 👁️ 4
Bandarískur sjóliði ákærður fyrir morð á japanskri konu
Japanskir saksóknarar hafa ákært bandarískan sjóliða sem er grunaður um að hafa myrt japanska konu á Okinawa-eyju í Japan.Sjóliðinn Devin Jacob Ballar...
iPhone Duo: Apple says it will replace handsets with screen problems
📅 27.10.2026 👁️ 4
iPhone Duo: Apple says it will replace handsets with screen problems
Photos shared online showed faults appearing on the screens of Apple's first foldable device.
Flokkur Bolsonaro viðurkennir kosningaúrslitin
📅 27.10.2026 👁️ 5
Flokkur Bolsonaro viðurkennir kosningaúrslitin
Flokkur Flavio Bolsonaro forsetaframbjóðanda í Brasilíu, Frjálslyndi flokkurinn, viðurkennir úrslit kosninganna sem fram fóru þar á sunnudaginn. Þetta...
Vill að ríkið semji um fast verð á innanlandsflugmiðum
📅 26.10.2026 👁️ 5
Vill að ríkið semji um fast verð á innanlandsflugmiðum
Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði og sérfræðingur í byggðaþróun, segir aðalvandamálið við Loftbrúna ekki hvort ríkið niðurgreiði flugmiða um...
Chris Mason: The Budget is imminent as tricky things pile up for Burnham
📅 26.10.2026 👁️ 5
Chris Mason: The Budget is imminent as tricky things pile up for Burnham
From Brexit debates to North Sea oil, there is plenty getting the cabinet, the Labour Party and the country talking.
Chris Mason: Budget is imminent as tricky things pile up for Burnham
📅 26.10.2026 👁️ 0
Chris Mason: Budget is imminent as tricky things pile up for Burnham
From Brexit debates to North Sea oil, there is plenty getting the cabinet, the Labour Party and the country talking.
Lét lítinn pug hund dangla af svölunum á fimmtu hæð - „Við munum ekki láta svona hegðun líðast“
📅 26.10.2026 👁️ 6
Lét lítinn pug hund dangla af svölunum á fimmtu hæð - „Við munum ekki láta svona hegðun líðast“
Lögreglan í El Salvador hefur handtekið fyrrverandi knattspyrnumann fyrir gróft dýraníð. Maðurinn lét lítinn hund dangla fram af svölum og tók það upp...
Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 6
Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum - Vísir
Luiz Inácio Lula da Silva Brasilíuforseti tryggði sér fjórða kjörtímabilið í seinni umferð kosninganna í gær. Hann hlaut 51,79 prósent gildra atkvæða ...
Harry Kane: Bayern Munich and England striker wins Ballon d'Or after record season
📅 26.10.2026 👁️ 5
Harry Kane: Bayern Munich and England striker wins Ballon d'Or after record season
Harry Kane becomes the first English player to win the Ballon d'Or since Michael Owen in 2001 after being crowned the world's best player at a ceremon...
Bandaríkjaforseti segir að svindlað hafi verið í brasilísku kosningunum
📅 26.10.2026 👁️ 0
Bandaríkjaforseti segir að svindlað hafi verið í brasilísku kosningunum
Bandaríkjaforseti segir að svindlað hafi verið í brasilísku kosningunum Donald Trump sagði taln­ingu atkvæða hafa litið út fyrir að vera „ger­spillta“...
Healey vows cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
📅 26.10.2026 👁️ 5
Healey vows cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
The chancellor will axe tariffs on some staples as part of plans to give households "breathing space".
Healey pledges cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
📅 26.10.2026 👁️ 4
Healey pledges cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
The chancellor will axe tariffs on some staples as part of plans to give households "breathing space".
Busted's James Bourne says 'hero' brother saved his life with kidney donation
📅 26.10.2026 👁️ 4
Busted's James Bourne says 'hero' brother saved his life with kidney donation
The guitarist says doctors had given him "a few years left to live", but is now recovering well.
Trump segir ummæli Obama um Cheesecake Factory dæma hann sjálfan
📅 26.10.2026 👁️ 0
Trump segir ummæli Obama um Cheesecake Factory dæma hann sjálfan
Trump segir ummæli Obama um Cheesecake Factory dæma hann sjálfan Banda­ríkja­for­seti svarar háðs­glósum Baracks Obama, for­vera síns, með full­yrð­in...
„Kannski hefur Evrópa einfaldlega verið að tala vitlaust tungumál við Trump“
📅 26.10.2026 👁️ 4
„Kannski hefur Evrópa einfaldlega verið að tala vitlaust tungumál við Trump“
Sigvaldi Einarsson, frumkvöðull og áhugamaður um alþjóðamál, veltir því fyrir sér í pólitískri ádeilu hvort staðan í heiminum væri öðruvísi hefði Evró...
Ex-FBI chief James Comey faces federal charges for third time
📅 26.10.2026 👁️ 3
Ex-FBI chief James Comey faces federal charges for third time
Comey's lawyers say the case stems from alleged disclosure of classified information to the New York Times in 2016.
Kominn yfir fertugt? Þetta eru 10 mikilvægustu æfingarnar fyrir restina af lífi þínu
📅 26.10.2026 👁️ 4
Kominn yfir fertugt? Þetta eru 10 mikilvægustu æfingarnar fyrir restina af lífi þínu
Hvaða æfingar myndirðu velja ef þú mættir aðeins gera tíu það sem eftir væri ævinnar? Jeff Cavaliere, maðurinn á bak við ATHLEAN-X, hefur tekið saman ...
40 ár frá vígslu Hallgrímskirkju
📅 26.10.2026 👁️ 4
40 ár frá vígslu Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja er eitt þekktasta kennileiti borgarinnar og var formlega vígð þann 26. október 1986. Hátíðardagskrá hefur farið fram undanfarna viku í...
Óráðlegt að hætta við nýtt einkunnakerfi þrátt fyrir óvissu
📅 26.10.2026 👁️ 4
Óráðlegt að hætta við nýtt einkunnakerfi þrátt fyrir óvissu
„Ég held að það væri óráð að reyna að hætta við,“ sagði Jón Páll Haraldsson, skólastjóri Laugalækjarskóla og varaformaður Skólastjórafélags Íslands, u...
Hrósar venjulega ekki stjórnmálamönnum en gerir undantekningu með Lula
📅 26.10.2026 👁️ 4
Hrósar venjulega ekki stjórnmálamönnum en gerir undantekningu með Lula
Kristinn Hrafnsson fjölmiðlamaður og upplýsingafulltrúi Wikileaks segist venjulega fara varlega í að hrósa stjórnmálamönnum en í ljósi góðrar reynslu ...
Beijing til Keflavíkur í einni ferð í fyrsta sinn
📅 26.10.2026 👁️ 4
Beijing til Keflavíkur í einni ferð í fyrsta sinn
Fyrsta beina flugið á milli Kína og Keflavíkur, með viðkomu í Kaupmannahöfn, var í dag. Sendiherra Kína segir þetta mikla breytingu í samskiptum ríkja...
Kosningar í Ísrael: Þjóð á kross­götum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Kosningar í Ísrael: Þjóð á kross­götum - Vísir
Kosningarnar snúast að verulegu leyti um Benjamín Netanjahú forsætisráðherra sjálfan. Fréttaskýrendur í Ísrael og annars staðar líta margir svo á að á...
Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úr­slitum - Vísir

Blendnar tilfinningar fyrir leitina að Lúðvík
📅 26.10.2026 👁️ 4
Blendnar tilfinningar fyrir leitina að Lúðvík
Bróðir manns sem féll niður í sprungu sem myndaðist í Grindavík segist þakklátur fyrir að ákveðið hafi verið að ráðast í leit að líki bróður hans. Lei...
Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum - Vísir
Þetta heyrðum við á bænum Gerði þegar við ræddum við þau Björn Borgþór Þorbergsson og Þóreyju Bjarnadóttur fyrir þáttinn Um land allt. Þau eru í hópi ...
Minni byggðalög líði fyrir aukna miðstýringu lögreglu
📅 26.10.2026 👁️ 4
Minni byggðalög líði fyrir aukna miðstýringu lögreglu
Áform dómsmálaráðherra um að sameina lögregluembætti í þrjú mæta harðri mótstöðu á landsbyggðinni. Dómsmálaráðherra segir lítil embætti ekki ná utan u...
Oscar-winning producer says BBC gave her £400,000 payout after she raised antisemitism concerns
📅 26.10.2026 👁️ 4
Oscar-winning producer says BBC gave her £400,000 payout after she raised antisemitism concerns
The BBC says it did not uphold any of the allegations of antisemitism but accepted there were "shortcomings" in how it treated Lucie Kon.
Á ég að segja syni mínum hræðilegan sannleikann um ömmuna sem hann elskaði?
📅 26.10.2026 👁️ 4
Á ég að segja syni mínum hræðilegan sannleikann um ömmuna sem hann elskaði?
Á að segja sannleikann um erfiða fortíð eða á að hlífa tilfinningum ástvina? Það er hægt að lifa eftir mottóinu um sannleikurinn sé sagna bestur en vi...
Hvað veistu um… pitsur? - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Hvað veistu um… pitsur? - Vísir
Pitsur hafa fyrir löngu fest sig í sessi sem einn vinsælasti skyndibiti heims og njóta mikilla vinsælda á Íslandi, hvort sem hún er borðuð á veitingas...
Ó­metan­legt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Ó­metan­legt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum - Vísir
Brynjar Steinn er fæddur árið 1999 og öðlaðist mikla frægð á samfélagsmiðlinum Snapchat á sínum tíma, þar sem notandanafnið hans var einmitt Binni Gle...
Biskupar sjá eftir bæna­stund með Trump - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Biskupar sjá eftir bæna­stund með Trump - Vísir
Aðstoðarkona Donalds Trump Bandaríkjaforseta og ráðgjafi hans í samskiptum birtu myndband af tólf biskupum í bænastund með forsetanum er þeir sóttu ha...
Meirihluti kjósenda valdi „Serbíu frekar en mafíu“
📅 26.10.2026 👁️ 4
Meirihluti kjósenda valdi „Serbíu frekar en mafíu“
Kjósendur völdu á milli Serbíu eða mafíu í þingkosningum sem fóru fram í landinu í gær, að sögn kjósanda frá Íslandi. Stúdentahreyfing vann stórsigur ...
Líkamshlutar manns fundust í Rínarfljóti
📅 26.10.2026 👁️ 4
Líkamshlutar manns fundust í Rínarfljóti
Þrír menn fundu poka sem innihéldu fótlegg af manni þegar þeir gengu meðfram árbakka Rínarfljóts í Stein, skammt frá Basel í Sviss, í gær.Lögreglan í ...
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir...
Trump administration illegally fired James Comey's daughter, judge rules
📅 26.10.2026 👁️ 4
Trump administration illegally fired James Comey's daughter, judge rules
Maurene Comey believes she was let go from her job as a federal prosecutor because her father is the former FBI director.
Slá skjaldborg um sveitarstjórann eftir spurningar um meint vanhæfi vegna tengsla við Samherja
📅 26.10.2026 👁️ 4
Slá skjaldborg um sveitarstjórann eftir spurningar um meint vanhæfi vegna tengsla við Samherja
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar sammæltist um það á fundi sínum á fimmtudag að lýsa yfir fullu trausti til Katrínar Sigurjónsdóttur sveitarstjóra í kjö...
Biskupar biðjast afsökunar á fundinum með Trump – „Ég finn til mikillar sorgar“
📅 26.10.2026 👁️ 4
Biskupar biðjast afsökunar á fundinum með Trump – „Ég finn til mikillar sorgar“
Tveir kaþólskir biskupar hafa beðist afsökunar á fundi sínum með Donald Trump Bandaríkjaforseta. Birt var ljósmynd af þeim að biðja með honum.Breska b...
Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn - Vísir
Koenig lést á heimili sínu í Hollywood í gær, segir í umfjöllun Variety.  „Í dag syrgjum við Walter Koenig. Hæfileikar hans, hlýja og ógleymanlegur fl...
Bilaður bíll í Hvalfjarðargöngum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Bilaður bíll í Hvalfjarðargöngum
Hvalfjarðargöng voru lokuð vegna bilaðs bíls í skamma stund á sjöunda tímanum samkvæmt vef Vegagerðarinnar. Þau hafa verið opnuð á ný.
Eftirspurn eftir meiri raforku aðallega frá gagnaverum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Eftirspurn eftir meiri raforku aðallega frá gagnaverum
Heimili á Íslandi nota um 5% af allri raforku sem hér er framleidd og stóriðjan tæplega 80%. Samkvæmt nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins nota gagnaver...
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum í september
📅 26.10.2026 👁️ 4
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum í september
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum á Íslandi í september. Deildarstjóri segir mikinn meirihluta hafa drepist á Reyðarfirði, vegna marglytta sem her...
„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ - Vísir
Breytingar á svokallaðri Loftbrú, um niðurgreiðslu flugfargjalda fyrir íbúa á landsbyggðinni, eiga að taka gildi 1. janúar. Ingibjörg segir Loftbrúna ...