Af myndefni sem fréttastofu barst mátti sjá lögreglu og sérsveit handtaka minnst tvo á gatnamótum Þingvallagötu og Þórunnarstrætis á Akureyri í dag.
Á öðru myndbandinu sést hvernig vopnaður sérsveitarmaður krýpur við hlið minnst tveggja manna sem lágu á gangstéttinni með hendur með síðum og á öðru sést ungur maður leiddur upp í lögreglubíl.
Andri Freyr Sveinsson varðstjóri á Akureyri staðfesti fyrr í dag að tveir bílar hefðu verið stöðvaðir og skotvopn fundist í þeim báðum en að öðru leyti hefur lögreglan ekki viljað tjá sig.
Kolbrún Björg Jónsdóttir aðalvarðstjóri ræddi svo við Ríkisútvarpið í beinni útsendingu þar sem hún sagði hið fyrrgreinda, að tilkynning hefði borist um mann sem miðaði skotvopni á annan.
Aðspurð sagði hún lögregluna hafa haft góð tök á málinu og að ekki hafi steðjað hætta að gestum tónlistarhátíðarinnar Einnar með öllu.