Meiri­hluti bíður eftir greiningu í meira en ár - Vísir

Meiri­hluti bíður eftir greiningu í meira en ár - Vísir

Meiri­hluti bíður eftir greiningu í meira en ár - Vísir

Í Talnabrunni kemur fram að ríflega sjö prósent 9 og 10 ára drengja voru á biðlista eftir greiningu við lok síðasta árs.

Niðurstaða landlæknisembættisins er að á sama tíma hafi bið hjá barna- og unglingageðdeild Landspítala, BUGL, styst verulega og það bendi til tilfærslu á þjónustu fremur en að vandinn hafi minnkað.

Eina opinbera stofnunin sem sinnir mati

Geðheilsumiðstöð barna, GMB, er annars stigs geðheilbrigðisþjónusta sem heyrir undir Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. GMB tók til starfa árið 2022 en fyrir þann tíma fékk þessi hópur jafnan þjónustu hjá Þroska- og hegðunarstöð eða barna- og unglingageðdeild Landspítala (BUGL) ef um flóknari vanda var að ræða. GMB er nú eina opinbera stofnunin sem sinnir mati á börnum með eðlilegan vitsmunaþroska vegna gruns um ADHD og/eða einhverfu.

Í Talnabrunni embættisins er vísað í stöðuskýrslu heilbrigðisráðuneytisins sem kom út í nóvember á síðasta ári um umbreytingar í geðheilbrigðisþjónustu barna. Þar hafi komið fram í viðtölum við aðstandendur að langur biðtími væri vandamál í kerfinu. Embættið skoðaði það því sérstaklega fyrir talnabrunninn. Þar er fjallað um bið eftir þverfaglegu mati vegna gruns um athyglisbrest með ofvirkni (ADHD) og/eða einhverfu hjá Geðheilsumiðstöð barna (GMB).

Í Talnabrunni er bent á að umboðsmaður barna safnar saman árlega upplýsingum um bið barna eftir þjónustu og svo farið yfir hvaða ferli tekur við þegar grunur vaknar um að barn sé með geð- eða atferlisröskun.

Fyrsta skrefið sé oft að leikskóli/skóli vísi barninu í frumgreiningu hjá skólasálfræðingi sem vinnur á þjónustumiðstöð á vegum viðkomandi sveitarfélags. Sé niðurstaðan að vísa barni áfram fari sú vinna yfirleitt fram hjá GMB en hjá Ráðgjafar-og greiningarstöð sé grunur um víðtæka þroskaskerðingu. Þá geti fólk einnig leitað til sjálfstætt starfandi sérfræðinga en sú þjónusta er yfirleitt ekki niðurgreidd hjá Sjúkratryggingum, SÍ.

Greiningarferli eigi að hefjast innan þriggja mánaða

Í Talnabrunni kemur fram að í klínískum leiðbeiningum um greiningu á einhverfu frá 2021 sé gert ráð fyrir að greiningarferli hefjist innan þriggja mánaða frá því að tilvísun berst til GMB.

Bent er á að bæði Landlæknisembættið og Ríkisendurskoðun hafi árið 2022 tekið út þjónustu við börn á BUGL og geðheilbrigðisþjónustu og í kjölfarið hafi verið farið í umbætur á BUGL og skipulagi breytt. Það hafi leitt til umtalsverðrar fækkunar barna á biðlista. Í ágúst 2022 var 121 barn á biðlista eftir þjónustu hjá BUGL, í september 2025 hafði þeim fækkað í 35 og í janúar 2026 voru þau 37. Ekkert barnanna hafði þá beðið lengur en í 3 mánuði eftir þjónustu samkvæmt greiningu umboðsmanns barna.

Í Talnabrunni segir að samhliða þessari þróun hafi orðið veruleg aukning á biðlista eftir þjónustu hjá GMB, sem bendi til þess að vandinn hafi að einhverju leyti færst milli þjónustuaðila.

50 prósent aukning milli 2023 og 2025

Í Talnabrunni kemur fram að þróunin undanfarin ár sýni hraða og stöðuga aukningu í fjölda á biðlista GMB. Í september 2022 biðu 830 börn eftir þjónustu, en á einu ári tvöfaldaðist fjöldinn og haustið 2023 voru 1.662 börn á biðlista. Ári síðar var fjöldinn kominn yfir tvö þúsund og haustið 2025 biðu 2.498 börn samkvæmt tölum á vef umboðsmanns barna. Það jafngildir 50 prósenta aukningu milli áranna 2023 og 2025. Embætti landlæknis fékk upplýsingar um biðlista hjá GMB í árslok 2025. Þá beið 2.651 barn.

Þegar fjöldi barna á biðlista í árslok 2025 er reiknaður sem hlutfall af fjölda barna í hverjum fæðingarárgangi má sjá að drengir á biðlista eru almennt yngri en stúlkur. Í fæðingarárgöngum 2015 og 2016, þ.e. börn sem voru 9 og 10 ára í árslok 2025, voru 7,3-7,4 prósent drengja á landsvísu á biðlista samanborið við 4,6-5,0 prósent stúlkna.

Drengir á biðlista voru hlutfallslega fleiri en stúlkur í öllum árgöngum fram að elsta árgangi grunnskóla, þ.e. börn fædd árið 2010. Í fæðingarárgangi 2008 voru 3,9 prósent stúlkna og 2,3 prósent drengja á biðlista.

Þegar lögheimili barna á biðlista í árslok 2025 er skoðað sést að hlutfallslega voru flest börn frá heilbrigðisumdæmi Austurlands en langfæst frá Suðurnesjum. Börnum á Suðurnesjum sem sýna merki um ADHD er vísað til barnalæknis í nærumhverfinu eftir frumgreiningu í skólaþjónustu. Sá læknir lýkur greiningarferlinu sem virðist verða til þess að börn leita í umtalsvert minna mæli til GMB en börn sem eru búsett annars staðar.

Ellefu prósent beðið lengur en í þrjú ár

Ef litið er til þess hvers vegna börnin voru á biðlista má sjá að við árslok 2025 voru 1.254 börn á biðlista eftir mati vegna gruns um ADHD. Mörg þessara barna höfðu beðið lengi; 616 af 1.254 höfðu beðið lengur en í eitt ár eftir mati. 

Fjöldi barna á biðlista hjá Geðheilsumiðstöð barna eftir mati vegna gruns um ADHD, einhverfu eða ADHD og einhverfu, greint eftir lengd biðtímaLandlæknisembættið

Á sama tíma voru 740 börn á biðlista hjá greiningarteymi vegna gruns um einhverfu. Þar var einnig um langan biðtíma að ræða, en um tvö af hverjum þremur börnum höfðu beðið lengur en eitt ár. Tæp 11 prósent höfðu verið á biðlista í meira en 3 ár. Auk þess biðu 502 börn eftir mati vegna gruns um bæði ADHD og einhverfu. Í þeim hópi voru biðtímar sérstaklega langir; meira en helmingur barnanna (295 af 502) hafði beðið lengur en eitt ár eftir mati. Stærstur hluti þeirra hafði verið á biðlista í eitt til tvö ár.

Í Talnabrunni er svo vikið að stöðunni á Norðurlöndum og vísað í nýja skýrslu sem fjallar um geðheilsu barna og ungs fólks á Norðurlöndunum. Geðgreiningum hafi fjölgað mikið síðustu ár og þróunina megi skýra af samspili nokkurra þátta eins og aukinni meðvitund, minni fordómum, álagi í félagslegu umhverfi barna og betra aðgengi að greiningarferli.

Niðurstöður skýrslunnar eru samkvæmt Talnabrunni í samræmi við þróun sem opinberar stofnanir innan landanna hafa áður greint frá. Í Noregi hafi Lýðheilsustofnun (Folkehelseinstituttet) til að mynda bent á stöðuga aukningu í ADHD- og einhverfurófsgreiningum síðustu 10–15 ár og í Finnlandi sýna opinber gögn sambærilega þróun, einkum meðal drengja á grunnskólaaldri. Greiningum á einhverfurófi hefur jafnframt fjölgað víða.

Vandasamt að bera saman milli landa

Beinn samanburður á algengi geðvanda ungmenna milli landa er þó vandasamur, þar sem undirliggjandi gögn eru ekki alltaf sambærileg og í sumum tilvikum vantar til að mynda upplýsingar frá heilsugæslu. Þrátt fyrir það benda niðurstöður skýrslunnar til þess að geðgreiningar séu algengar á Íslandi og að ADHD-greiningar séu mun algengari hérlendis en á öðrum Norðurlöndum.

Í Talnabrunni segir að munurinn endurspeglist í notkun ADHD-lyfja á Íslandi en notkun þeirra hérlendis er margföld á við hin Norðurlöndin. Árið 2025 fengu tæplega 129 af hverjum 1.000 börnum afgreidd ADHD-lyf á Íslandi, 152 af hverjum 1.000 drengjum og 105 af hverjum 1.000 stúlkum.

Fjöldi barna með tilgreindar greiningar á hver 1.000 börn í hverju landi árið 2024. Samanburð milli landa þarf að gera með fyrirvara þar sem ólík gögn voru tiltæk og útreikningar byggja ýmist á gögnum frá heilsugæslu, sjúkrahúsum og/eða sjálfstætt starfandi sérfræðingum. Uppruni gagna: Skýrsla NOMESKOLandlæknisembættið

Samanburður á tíðni einhverfurófsgreininga árið 2024 sýnir að hlutfallið á Íslandi (15,4) var hærra en í Finnlandi (10,5), Noregi (6,9) og Svíþjóð (9,8) en lægra en í Danmörku (18,8) og Færeyjum (27,0) (mynd 5). Þennan mun má að hluta skýra með ólíkri gagnaöflun og skráningu milli landa. Tölur frá Íslandi voru til að mynda fengnar úr samskiptaskrá heilsugæslu og innihalda þar með gögn frá sérhæfðri geðheilbrigðisþjónustu innan heilsugæslunnar, t.d. frá GMB og geðheilsuteymum, en önnur lönd notuðust að miklu leyti við gögn frá sjúkrahúsum eða úr sérhæfðri þjónustu.

Í umræðu í Talnabrunni kemur fram að vegna þess að ekki eru upplýsingar frá sjálfstætt starfandi einstaklingum með í tölunum sé líklega um vanmat að ræða. Styttri biðtími eftir öðrum teymum GMB geti gefið vísbendingar um að umtalsvert fleiri börn fái greiningu en meðferð hjá Geðheilsumiðstöð barna. Það geti til dæmis skýrst af því að börn fái meðferð á heilsugæslustöðvum eða hjá sjálfstætt starfandi sérfræðingum eða að meðferð sé afþökkuð.

Langur biðtími geti aukið líkur á að vandamál versni

„Langur biðtími eftir meðferð getur haft neikvæð áhrif á geðheilsu barna, aukið líkur á því að vandamál versni og getur auk þess leitt til aukinnar þarfar fyrir sérhæfðari og dýrari inngrip síðar. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin leggur áherslu á mikilvægi snemmtækrar íhlutunar til að draga úr alvarleika geðrænna einkenna og bæta langtímahorfur,“ segir í Talnabrunni og að OECD hafi sömuleiðis bent á að ríki sem fjárfesta í snemmtækri íhlutun í geðheilbrigðismálum barna dragi úr heildarkostnaði heilbrigðiskerfisins og auki lífsgæði notenda.

Biðtími sé á sama tíma margfalt lengri en almenn viðmið landlæknisembættisins um bið eftir heilbrigðisþjónustu segja til um. Þar segi að einstaklingur skuli komast í skoðun hjá sérfræðingi innan 30 daga og meðferð hjá sérfræðingi innan 90 daga frá greiningu. Embættið hefur ekki skilgreint biðtíma frekar eftir ákveðnum málaflokkum, s.s. börnum. Engin viðurlög eru fyrir hendi sé biðtími umfram viðmiðunarmörk.

Landlæknisembættið segir jákvætt að bið hafi styst hjá BUGL en þegar biðtími lengist svo mikið hjá GMB megi leiða líkur að því að hluti þeirra sem áður leituðu á BUGL fái nú þjónustu á GMB.

Verði að tryggja þjónustu í nærsamfélagi

Að lokum kemur fram í Talnabrunni að heilbrigðisráðuneytið vinni að breytingum á geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni og hafi nýlega gefið út stöðuskýrslu um framgang verkefnisins. Embættið fagni því og telur mikilvægt að breytingar nái fljótt fram að ganga.

„Brýnt er að tryggja aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu. Hlutfallslega flest börn á biðlista hjá GMB eru frá Austurlandi og Norðurlandi. Þjónusta í nærumhverfi barns er æskileg og sparar ekki bara ferðatíma og ferðakostnað heldur getur stytt bið eftir ADHD-greiningu eins og tölur frá Suðurnesjum gefa til kynna. Að mati Embættis landlæknis er mikilvægt að heilbrigðisþjónustan hafi getu til þess að bregðast við breytingum sem verða á þjónustuþörf og sé sífellt að endurskoða þjónustuna með tilliti til þess, ekki bara hvað varðar ADHD og einhverfu sem hefur verið fjallað um hér, heldur allar geðraskanir barna,“ segir að lokum.

#bíður #eftir #greiningu #meira #meirihluti


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262896515d/meirihluti-bidur-eftir-greiningu-i-meira-en-ar

📰 Aðrar fréttir

David Hockney er látinn - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
David Hockney er látinn - Vísir
Fréttir af andláti Hockney birtust fyrst í frönskum fjölmiðlum og svo staðfesti Erica Bolton, upplýsingafulltrúi listamannsins, tíðindin í tilkynningu...
Two killed and child injured in major crash involving bus and three cars in Lanzarote
📅 12.06.2026 👁️ 0
Two killed and child injured in major crash involving bus and three cars in Lanzarote
Two people have died and a five-year-old child has been taken to hospital following a serious multi-vehicle collision involving three cars and a bus i...
Gestir geti fengið inn­sýn í skapandi sam­fé­lag hafnar.haus - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
Gestir geti fengið inn­sýn í skapandi sam­fé­lag hafnar.haus - Vísir
Viðburðurinn stendur frá kl. 14:00–17:00 að Tryggvagötu 17 í miðborg Reykjavíkur. Í tilkynningu kemur fram að gestir fái á hátíðinni einstakt tækifæri...
Ætla að innleiða samræmt lokapróf úr grunnskólum
📅 12.06.2026 👁️ 0
Ætla að innleiða samræmt lokapróf úr grunnskólum
Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar í borginni boðar fjölda nýrra aðgerða í skólamálum á kjörtímabilinu þar sem mikil áhersla v...
Aðalmeðferð hafin í Edition-málinu: Óhugnanlegar lýsingar Ming á dauða dóttur sinnar - DV
📅 12.06.2026 👁️ 0
Aðalmeðferð hafin í Edition-málinu: Óhugnanlegar lýsingar Ming á dauða dóttur sinnar - DV
Ath. Greint er frá vitnisburði sakborningsins, Ming, neðar í fréttinni. Aðalmeðferð hófst í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli sem héraðssaksóknar...
Leggja til minni veiði í nokkrum helstu tegundum
📅 12.06.2026 👁️ 0
Leggja til minni veiði í nokkrum helstu tegundum
Hafrannsóknastofnun leggur til minni veiði af þorski, ýsu, ufsa og síld á næsta fiskveiðiári en stóreykur veiðiráðgjöf sína í loðnu. Stofnunin kynnti ...
Borgin af­þakkar risaeðlubein - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
Borgin af­þakkar risaeðlubein - Vísir
Þetta var ákveðið á fundi borgarráðs í gær. Árið 2023 var stofnaður starfshópur um risaeðlu í kjölfar þess að samtökin Leap Lab fóru þess á leit við R...
Árásir víða í Sumy – rússneskur dróni kveikti mikinn eld i Kyiv
📅 12.06.2026 👁️ 0
Árásir víða í Sumy – rússneskur dróni kveikti mikinn eld i Kyiv
Rússar gerðu drónaárásir á sjö staði í Rússlandi í nótt. Árásirnar ollu töluverðum skemmdum og nokkrir særðust. Úkraínumenn segjast hafa skotið niður ...
Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heims­styrj­öldin - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heims­styrj­öldin - Vísir
Fyrri heimsstyrjöldin stóð yfir frá 28. júlí 1914 til 11. nóvember 1918 eða í 1.568 daga. Seinni heimsstyrjöldin stóð yfir í sex ár og einn dag. Margi...
Sannleikurinn á bak við axarmyndbandið umdeilda loksins kominn í ljós
📅 12.06.2026 👁️ 0
Sannleikurinn á bak við axarmyndbandið umdeilda loksins kominn í ljós
Búlgörsk systkini hafa verið dæmd fyrir árás á tvær skólastúlkur í Dundee í Skotlandi í máli sem vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum eftir að myndba...
Sigurvegari Mónakó-kappakstursins gerir grín að Kardashian fyrir að stela handklæði hans - DV
📅 12.06.2026 👁️ 0
Sigurvegari Mónakó-kappakstursins gerir grín að Kardashian fyrir að stela handklæði hans - DV
Ítalski ökuþórinn, Kimi Antonelli, 19 ára sigurvegari Mónakó-kappakstursins, gerði grín að Kim Kardashian og sagði hana hafa stolið handklæðinu sínu. ...
Segja brottfararstöð ekki sam­rýmast Barnasáttmálanum - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
Segja brottfararstöð ekki sam­rýmast Barnasáttmálanum - Vísir
Í yfirlýsingunni segja samtökin að með lögunum heimili stjórnvöld frelsissviptingu sem hefur ekki gerst sekt um refsiverða háttsemi. Samtökin segja fr...
Frostbitnir Frónbúar kætast í dag - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
Frostbitnir Frónbúar kætast í dag - Vísir
Búast má við að dynurinn frá sláttuvélum muni óma um úthverfi Reykjavíkur í dag.Vísir/Vilhelm Þá á hiti að ná sautján stigum á sunnanverðum Vestfjörðu...
Við erum ekki laus undan ábyrgð þótt við eigum hreina orku
📅 12.06.2026 👁️ 0
Við erum ekki laus undan ábyrgð þótt við eigum hreina orku
Við erum ekki laus undan ábyrgð þótt við eigum hreina orku Ingrid Ku­hlm­an seg­ir að það sé vill­andi að líta á ár­ang­ur í orku­mál­um sem sönn­un þ...
Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun - Vísir
Alexander Ingi Olsen, flugmaður hjá Icelandair, segir tilboðið hafa verið kynnt flugmönnum í byrjun vikunnar. Samninganefndir Icelandair og Félags ísl...
Sigurður Jóhannesson skrifar: Örfá börn breyta framtíð læknisfræðinnar - DV
📅 12.06.2026 👁️ 0
Sigurður Jóhannesson skrifar: Örfá börn breyta framtíð læknisfræðinnar - DV
Sigurður Hólmar Jóhannesson framkvæmdastjóri styrktarsjóðsins Góðvild og formaður AHC Samtakanna á Íslandi og forseti AHC Europe skrifar: Þegar rætt e...
Borgin afþakkaði risaeðlubein
📅 12.06.2026 👁️ 0
Borgin afþakkaði risaeðlubein
Reykjavíkurborg ætlar ekki að þiggja risaeðlubein sem Marcus Eriksen, hálfíslenskur fornleifafræðingur, vildi færa borginni að gjöf. Hann er framkvæmd...
Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar - Vísir
Hlaðvarparar hafa undanfarið kvartað sáran yfir því að vera krafðir um að skrá hlaðvörp sín sem fjölmiðla, með tilheyrandi boðum og bönnum. Til að myn...
Belfast: Nineteen now arrested over disorder with house targeted in arson
📅 12.06.2026 👁️ 0
Belfast: Nineteen now arrested over disorder with house targeted in arson
Nineteen people - including a 16-year-old-boy - have now been arrested following the violence in parts of Northern Ireland this week.Thursday night wa...
Backstreet Boys frum­sýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
Backstreet Boys frum­sýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar - Vísir
Hvolpana ættu Íslendingar að þekkja vel en þeir hafa verið til sýningar í sjónvarpi á Íslandi um áraraðir auk þess sem tvær kvikmyndir hafa komið út s...
Búið að semja um þing­lok - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
Búið að semja um þing­lok - Vísir
Í starfsáætlun þingsins var gert ráð fyrir því að þing myndi klárast í dag. Í gær var ákveðið að fella áætlunina úr gildi. Enn er tekist á um stór mál...
Neyðarbirgðir á þrotum og stefnir í vanda
📅 12.06.2026 👁️ 0
Neyðarbirgðir á þrotum og stefnir í vanda
Átökin í Íran haf staðið í yfir hundrað daga og þótt það hafi þýtt að um 15 milljónir olíutunna hafi vantað inn á markað daglega hefur skellurinn veri...
Drög að snjalltækjareglum í skólum kynnt til samráðs
📅 12.06.2026 👁️ 0
Drög að snjalltækjareglum í skólum kynnt til samráðs
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur kynnt drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum. Drögin hafa verið birt í samráðsgátt stjórnv...
Keoghan kominn með nýja kæró - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Keoghan kominn með nýja kæró - Vísir
Breska götupressan greinir frá nýju kærustu Keoghan en fyrr í mánuðinum náðust myndir af Keoghan kyssa dularfulla ljóshærða konu í Barcelona. Nú hefur...
Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire - Vísir
Breska götupressan greinir frá nýju kærustu Keoghan en fyrr í mánuðinum náðust myndir af Keoghan kyssa dularfulla ljóshærða konu í Barcelona. Nú hefur...
Einar rýnir í veðrið í júlí: Landsmenn gætu átt von á góðu - DV
📅 12.06.2026 👁️ 1
Einar rýnir í veðrið í júlí: Landsmenn gætu átt von á góðu - DV
Nýjustu langtímaspár gefa tilefni til bjartsýni fyrir júlímánuð, að mati veðurfræðingsins Einars Sveinbjörnssonar. Þótt óvissa sé enn um úrkomu, benda...
Sak­fellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Lands­rétti - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
Sak­fellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Lands­rétti - Vísir
Maðurinn var ákærður fyrir að hafa samræði við konuna þegar hún lá sofandi í rúmi og að hafa notfært sér að hún gæti ekki spornað við verknaðinum söku...
Aðalmeðferð hafin í Edition-málinu
📅 12.06.2026 👁️ 1
Aðalmeðferð hafin í Edition-málinu
Aðalmeðferð í Edition-málinu svokallaða hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þar svarar Ming Ting Mancel til saka, en hún er ákærð fyrir manndráp ...
„Verkefni stjórnvalda að tryggja að þetta verði nær aldrei notað“
📅 12.06.2026 👁️ 1
„Verkefni stjórnvalda að tryggja að þetta verði nær aldrei notað“
„Verkefni stjórnvalda að tryggja að þetta verði nær aldrei notað“ Fram­kvæmda­stjóri UNICEF seg­ir ótækt að börn séu frels­is­svipt fyr­ir það eitt að...
Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins - Vísir
Dómþing var sett klukkan 09:30 og reiknað er með því að henni ljúki klukkan 16. Ming Ting gefur skýrslu fyrir dómi áður en vitni mæta fyrir dóminn. Fy...
Rakel María gerir stólpagrín að sjálfri sér: „Ég er svo mikill lúði“ - DV
📅 12.06.2026 👁️ 1
Rakel María gerir stólpagrín að sjálfri sér: „Ég er svo mikill lúði“ - DV
Rakel María Hjaltadóttir förðunarfræðingur og hlaupakona birti skemmtilegt myndband á TikTok þar sem hún gerir stólpagrín að sjálfri sér. Segist hún h...
Mynd úr íslenskum söluturni árið 1998 kveikir fjörugar umræður um verðlag í dag - DV
📅 12.06.2026 👁️ 1
Mynd úr íslenskum söluturni árið 1998 kveikir fjörugar umræður um verðlag í dag - DV
Í gær var birt mynd í Facebook-hópnum Vertu á verði – eftirlit með verðlagi sem sögð er frá árinu 1998. „Fólk hefur verið tala um verð á pylsum hér. Þ...
Telja brottfararstöð auka hættu á mannréttindabrotum
📅 12.06.2026 👁️ 2
Telja brottfararstöð auka hættu á mannréttindabrotum
Íslandsdeild Amnesty International sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem hún lýsir ótta um að nýsamþykkt lög um brottfararstöð feli í sér aukna hætt...
Jón Ásgeir ætlar að segja já 29. ágúst - Þetta er ástæðan - DV
📅 12.06.2026 👁️ 0
Jón Ásgeir ætlar að segja já 29. ágúst - Þetta er ástæðan - DV
„Ef við segjum nei þá munum við vera að þræta um þetta næstu 15 árin í viðbót: „Hvað er þarna? Hvað var þarna?“ Og allt það sko. Þannig að ég held að ...
Eldsneytisverð lækkar vegna friðarvona
📅 12.06.2026 👁️ 2
Eldsneytisverð lækkar vegna friðarvona
Olíuverð lækkaði á heimsmörkuðum í dag. Ástæðan er aukin bjartsýni og vonir um frið við Persaflóa. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, boðaði í gær s...
Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meiri­hluta - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meiri­hluta - Vísir
Í tillögu Hildar Björnsdóttur borgarstjóra kemur fram að markmið verkefnisins sé að gera „stjórnsýslu Reykjavíkurborgar, bæði miðlæga og á fag- og kja...
Oddný sendir Samfylkingunni kaldar kveðjur: „Eitthvað aðeins að ruglast“ - DV
📅 12.06.2026 👁️ 1
Oddný sendir Samfylkingunni kaldar kveðjur: „Eitthvað aðeins að ruglast“ - DV
Oddný G. Harðardóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, segir flokkinn vera að „ruglast“ með stuðningi sínum við lög um brottfararstöð fyrir um...
Glansandi hár er nýi lúxusinn – af  
hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? - Vísir
Á samfélagsmiðlum hefur hugtakið Gloss Hair eða „glanshár“ orðið eitt stærsta trendið í hárheiminum. Þar snýst allt um slétt yfirborð hársins, mikinn ...
Hæsti­réttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunar­efni - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
Hæsti­réttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunar­efni - Vísir
Eins og venjan er þegar um er að ræða neyðarúrskurð, þá var niðurstaða hæstaréttar ekki rökstudd en þó kom fram að dómararnir Clarence Thomas, Samuel ...
Samkomulag um þinglok á lokametrunum
📅 12.06.2026 👁️ 1
Samkomulag um þinglok á lokametrunum
Líkur eru á að samkomulag um þinglok náist í dag og að þingstörfum ljúki í næstu viku.Þingstörfum átti að ljúka í dag samkvæmt starfsáætlun Alþingis e...
George Clooney vill að þessi leikari verði næsti James Bond - DV
📅 12.06.2026 👁️ 0
George Clooney vill að þessi leikari verði næsti James Bond - DV
Leikarinn og leikstjórinn George Clooney telur að breski leikarinn Callum Turner sé kjörinn til að taka við hlutverki James Bond af Daniel Craig. Miki...
Sakfelldur fyrir vörslu barnaníðsefnis
📅 12.06.2026 👁️ 1
Sakfelldur fyrir vörslu barnaníðsefnis
Karlmaður var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrradag fyrir vörslu myndefnis sem sýnir börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Maðurinn var ...
Mal­bika á Reykja­nes­braut í kvöld - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 2
Mal­bika á Reykja­nes­braut í kvöld - Vísir
Í kvöld, föstudagskvöldið 12. júní og aðfaranótt laugardags 13. júní, milli klukkan 21:00 og 07:00, verður unnið að malbikun á Reykjanesbraut í suðurá...
107 fæddu heima og sjö án að­komu heilbrigðisstarfsfólks - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
107 fæddu heima og sjö án að­komu heilbrigðisstarfsfólks - Vísir
Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu fæðingaskrár fyrir árið 2024. Þar segir að frjósemi kvenna haldi áfram að lækka og hafi aldrei verið lægr...
Ætlar ekki að sitja undir á­sökunum um barna­níð - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 5
Ætlar ekki að sitja undir á­sökunum um barna­níð - Vísir
Ummælin lét Eldur falla á samfélagsmiðlunum Facebook og X í október árið 2023 vegna skoðanagreinar Uglu sem birtist í breska götublaðinu Metro, eftir ...
Marteinn Helgi er fallinn frá
📅 12.06.2026 👁️ 1
Marteinn Helgi er fallinn frá
Marteinn Helgi er fallinn frá Marteinn Helgi Sigurðsson, doktor í norrænum miðaldafræðum frá Cambridge-háskóla, er látinn, 55 ára að aldriVísir greini...
Þrá­hyggja ástarinnar og dul­úð bakherbergjanna - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Þrá­hyggja ástarinnar og dul­úð bakherbergjanna - Vísir
Um er að ræða yfirnáttúrulegu, sálfræðihrollvekjuna Obsession í leikstjórn hins 26 ára Curry Barker og sálfræðihryllinginn Backrooms í leikstjórn hins...
Ósk um öf­ga­fulla ást og bæling í bak­her­bergjunum - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Ósk um öf­ga­fulla ást og bæling í bak­her­bergjunum - Vísir
Um er að ræða yfirnáttúrulegu, sálfræðihrollvekjuna Obsession í leikstjórn hins 26 ára Curry Barker og sálfræðihryllinginn Backrooms í leikstjórn hins...
New interactive map shows where 3,400 public homes are being built in the Canary Islands
📅 12.06.2026 👁️ 0
New interactive map shows where 3,400 public homes are being built in the Canary Islands
People searching for affordable housing in the Canary Islands can now see exactly where new public housing developments are being built, thanks to a n...
„Made in EU“ þýðir líka „framleitt á Íslandi“ segir Evrópusambandið
📅 12.06.2026 👁️ 0
„Made in EU“ þýðir líka „framleitt á Íslandi“ segir Evrópusambandið
EES ríkin þrjú, Ísland, Noregur og Lichtenstein eru hluti af því markaðssvæði sem Evrópusambandið skilgreinir í löggjafartillögu sem snýst um að styrk...