Mál þar sem leikskólastarfsmaður á Akranesi er grunaður um kynferðisbrot gegn barni er komið til embættis héraðssaksóknara frá lögreglustjóranum á Vesturlandi. Embættið tekur ákvörðun um hvort ákæra verði gefin út.
Lögreglan á Vesturlandi handtók karlmann, sem var starfsmaður leikskólans Garðasels á Akranesi, 17. mars síðastliðinn vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni á leikskólanum. Maðurinn hafði hafið störf á Garðaseli mánuði fyrr og starfaði meðal annars á deild með þriggja ára börnum.
Þegar lögregluembætti vísar máli til héraðssaksóknara er það til marks um að rökstuddur grunur sé um brot.
Starfsmaðurinn er aðeins sakborningur í einu máli.
Eftir að málið kom upp og rannsókn á því hófst voru tekin viðtöl við fleiri börn í Barnahúsi. Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, segir þau viðtöl ekki hafa leitt til frekari rannsóknar.
„Þegar svona hörmuleg mál koma upp þá er öllum steinum snúið við. Það sem börn segja – það er allt skoðað. Þetta er heljarinnar rannsókn sem fer af stað þegar svona kemur upp,“ segir Ásmundur. „Þetta tók tíma að rannsaka, eðlilega. Það þurfa að fara fram alls kyns rannsóknir og viðtöl í Barnahúsi.“
Lögreglan á Vesturlandi lauk rannsókn á málinu 22. maí. Skömmu síðar var það sent til embættis héraðssaksóknara.
Sem fyrr segir var starfsmaðurinn handtekinn í mars. Ekki var farið fram á framlengt gæsluvarðhald yfir honum en þegar farið er fram á slíkt er það gert í þágu rannsóknarhagsmuna. Hann var látinn laus að lokinni yfirheyrslu en starfaði ekki á leikskólanum á meðan á rannsókninni stóð.