Megas var ljúft lamb með stálull – Grein eftir Sverri Stormsker

Megas var ljúft lamb með stálull – Grein eftir Sverri Stormsker

Megas var ljúft lamb með stálull – Grein eftir Sverri Stormsker

Það er erfitt að fjalla um stórmenni einsog Megas í agnarsmáum dvergtöturspistli. Ég kynntist Megasi 1981 þegar ég var 17 ára snáði að vinna í ritfangadeild Máls og menningar á Laugavegi með þremur góðum konum. Hann var á þessum tíma í pásu frá dópi og tónlist og brennivíni og öðrum hættulegum efnum og var bara að dedúa og edrúast í Myndlistar- og handónýta skólanum. Ég átti allan hans 70´s katalók og elskaði þennan lók meira en minn eigin.

Megas kom reglulega í búðina til að kaupa allskyns hráefni sem hann þurfti til myndlistarnáms síns og hann kom alltaf beint að borðinu til mín, – og nú halda eflaust margir dónalegir lesendur að kallinn hafi alltaf komið til mín vegna þess að ég hafi verið ísmeygilegur lítill sætur strákur sem væri líklegur til að afgreiða hann hressilega uppá búðarborðinu, en það er ekki rétt, þó ég hafi vissulega verið lítill sætur strákur og líklegur til allra góðra verka, – en málið er að ég gaf honum alltaf eins ríflegan afslátt og mér frekast var unnt; starfsmannaafslátt og alles og oft kom það fyrir að ég bættti við úr eigin vasa þegar ég sá að hann var að snúa við sínum götóttu vösum í leit að einhverjum flotkrónum og götóttum túköllum, og stundum gaf ég honum 100% afslátt einsog maður á að gefa 100% snillingum.


Þegar hann spurði afhverju ég væri svona næs við sig, því hann væri jú mun vanari kulda en yl, þá sagði ég sem satt var að ég væri einfaldlega að borga fyrir mig og þakka honum alla ánægjuna sem hann hefði veitt mér.

Við fórum að spjalla um heima og geima og hann fór að bjóða mér heim til sín í soðna ýsu með kartöflum og hamsatólg og hamstratólg og við urðum góðir vinir og pössuðum álíka vel saman og ýsan og kartöflurnar.

Ég sýndi honum ljóðin mín og hann yfirfór fyrstu ljóðabókina mína ásamt t.d. Halldóri Laxness og Jóni úr Vör og fleiri góðum mönnum sem ég treysti best í bransanum, og hún kom út árið eftir þegar ég var 18 ára halakarta.

Mér fór að þykja jafn vænt um ljúfa manninn Magnús og hrjúfa skáldið Megas.

Kallinn var marglaga. Hann var ekki flatur pönnukökukarakter. Hann var fjölbotna gómsæt stríðsterta með allskonar kræsingum og gúmmelaði, og meinholl í þokkabót.

Gvendur á eyrunum

Hann lofaði að syngja með mér á fyrstu plötunni minni 1985 en það fórst fyrir, en í staðinn söng hann með mér á fyrstu plötu Serðis Monsters, Tekið stórt uppí sig, sléttum áratug seinna, og það var lagið mitt „Gvendur á eyrunum.“

Það lag fjallar um mann sem byrjar að japla á Ópal og Tópas og svoleiðis nammi og fer svo útí sterkara stöff einsog Fisherman's Friends og beiskan brjóstsykur og svo þaðan yfir í örlítið harðari efni einsog brennivín og kardimömmudropa og hass og skósvertu og svoleiðis góðgæti og endar svo sem forfallinn pillusjúklingur og heróínsprautandi örlagadópisti.

Textinn var að sjálfsögðu um Megas sjálfan og hann lét sér vel líka. Við Megas vorum báðir miklir efnamenn. Og þá meina ég vímuefnamenn. Munurinn var sá að ég var bara efnilegur bjórlíkislepjandi amatör af gamla skólanum en hann var professional stórtækur efnamaður sem kunni Lyfjabókina utanað og vildi „alvöru hardcore stöff“ en ekki eitthvað „kellingahland“ einsog hann kallaði bjórsullið og hvítvínsskólpið sem ég var að lepja einsog kattarskratti.

Stóri munurinn á okkur sem efnamönnum var að Megas var eiturlyfjaneytandi en ég var eiturlyfjaneitandi. Hann var semsé alltaf að neyta eiturlyfja en ég sötraði bara mitt hvítfreyðandi kellingaþvag og var alltaf að neita eiturlyfjum.

Ég er ekki að upplýsa neitt nýtt hér því Megas hefur sjálfur mikið fjallað um þetta áhugamál sitt í viðtölum og textum og þetta var stór partur af lífi hans alla tíð.

Það má undrun sæta að hann hafi náð þessum háa aldri og alltaf haldið toppstykkinu í topp standi. Hann var það afburða greindur að þó hann hefði drepið 90% heilafruma sinna með megasukki og ólifnaði þá hefði hann áfram verið langt fyrir ofan meðallag. Talandinn hefði gjarnan mátt vera jafn skýr og hugur hans því textarnir voru það góðir.

Á tónleikum með kallinum var gott að kunna textana utanað því það skildist sjaldnast orð af því sem hann söng.

Megas slaufar mér

Árið eftir, 1996, fór ég að taka upp framhaldsplötuna Tekið stærra uppí sig, sem Megas hafði einnig lofað að syngja inná. Ég hafði gert virkilega huggulegt lag og verulega hugljúfan texta að hætti Serðis Monsters og fannst þetta alveg sniðið fyrir kallinn því það var í stíl rómantíska lagsins hans „Litlir sætir strákar“ sem hann hafði gefið út nokkrum árum fyrr.

Ég var semsé í þessum texta ekki að segja neitt nýtt heldur einfaldlega bara að krydda steikina sem hann hafði sjálfur borið á borð áður. Ég reyndi að ná í hann og hringdi og hringdi og hringdi og bankaði uppá hjá honum á Magnúsar-Þórsgötu en allt kom fyrir ekki. Hann virtist gjörsamlegur gufaður upp. Það fór því svo að ég afréð að syngja lagið bara sjálfur í hans stíl og láta það vaða.

Ég hefði betur sleppt þessu verki gjörsamlega því nokkrum vikum eftir útkomu plötunnar hitti ég minn mann í Cole-Porter (Kolaportinu) og hann var ekki par ánægður með þetta framlag mitt til heimsbókmenntanna. Megas, sem sjálfur hafði hæðst að öllum helgum mönnum lífs og liðnum á öllum sínum plötum, fannst ekki gaman að fá þessa litlu hrekkjalóma-djók-teiknibólu mína í rassinn, og hann setti mig út af sakramenntinu í litla tvo áratugi.

Síst af öllu var ætlun mín að særa hann því mér þótti jú undurvænt um kallinn, þannig að þessi særindi hans særðu mig mjög og mér var ekki skemmt yfir því að honum var ekki skemmt og að þetta skyldi hafa skemmt okkar vinskap.

Davíð Oddson var hollvinur snauðra og barg þeim frá neyð

Einhverntíma um aldamótin, þegar Megas var ennþá í kröftugri fýlu útí mig, spurði ég vin minn Davíð Oddsson, sem var aðal kallinn á þessum tíma, hvort það væri ekki þjóðráð að skella þjóðskáldinu alræmda og alsnauða honum Megasi á heiðurslistamannalaun Alþingis og hvort hann myndi ekki vilja vera svo góður að reyna að koma því í kring og beita sér fyrir því, vegna þess að ef einhver ætti skilið þessi heiðurslaun þá væri það heiðursmaðurinn og listaskáldið góða og fróða hann Megas. Það væri kominn tími til að Megas, sem alltaf sæti heima syndandi í sýrunum, myndi prófa að synda í peningum.

Davíð tók strax afar vel í þessa tillögu og sagði að þetta væri nokkuð sem væri virkilega vert að skoða og gera gangskör í. Hann sagðist hafa verið mikill aðdáandi Megasar frá því þeir voru samskóla í MR og því til sönnunnar sýndi hann mér handskrifað ljóð skáldsins sem hann varðveitti í forláta sýningarglerskáp á heimili sínu. Áður en langt um leið var meistarinn kominn á þessi heiðurslaun, sem hann var á til hinstu stundar. Þökk sé Davíð, þeim mikla öðlingi og eðaldreng.

Endurfundir

Öll él birtir upp um síðir og öll fýla fer útum gluggann. Fyrir um áratug hittumst við Megas í boði hjá Hrafni Gunnlaugs eftir tveggja áratuga fýluhlé og þar féllumst við í faðma einsog ekkert hefði í skorist og lékum á alls oddi. Ég spurði hann: „Finnst þér nú ekki meira gaman að vera í miklum og góðum fíling en í mikilli og vondri fýlu?”

„Hverjum finnst sín fýla góð,” svaraði hann.

Ég: „Þú manst þú samdir lagið „Fílahirðirinn frá Súrín“ í gamladaga, og núna fyrir skemmstu þá var ég alveg við það að fara að semja lag um þig og kalla það „Fýluhirðirinn súri.“ Hefði það ekki verið Me-gasalega sniðugt?“ Hann: „Nei. Alls ekki. Mjög langt frá því. Ekki semja meira um mig, plís. Þetta er komið gott.” Ég: „Jæja þá. Ég skal reyna að sitja á strák mínum, … ef svo óheppilega má að orði komast.“

 Megasi slaufað og útskúfað af útvarpsrásunum

Við hittumst svo aftur fyrir fáeinum árum þegar búið var að slaufa honum og hann gekk þá við staf og þegar við röltum til stofu þá hrasaði hann og ég rétt náði að grípa í hann og forða honum frá falli.

Samtalið man ég einsog gerst hefði í gær enda reyndi ég að leggja það á minnið og það var nú einfaldlega vegna þess að ég var sannfærður um að þetta væri okkar síðasta spjall því ég bjó í útlandinu og hann var ekki að yngjast heldur við það að flytjast yfir í annan heim. Hann sagði strax eftir að ég hafði forðað honum frá falli: „Takk vinur, en þetta meikar samt ekki diff því ég er nú þegar fallinn af mínum stalli.“

Ég: „Já, við eigum margt sameiginlegt. Velkominn í cancel-klúbbinn. Við erum canslarar Íslands. Valtur leiðir haltan.“ Við fengum okkur sæti.

Ég: „Jæja. Hér sitjum við og getum ekki annað. Tvær stjörnur. Tvær stjörnuruglaðar poppstjörnur.“

Megas: „Tvær tapaðar og hrapaðar stjörnur.“

Ég: „Hvernig líður okkur í dag svona heilt yfir, … svona þrælslaufuðum og flottum?“

Megas: „Þú talar einsog hjúkrunarkona.“

Ég: „Ég skal reyna að dýpka röddina ef þú vilt.“

Megas: „Ég átti nú ekki við tónhæðina. En svona í alvöru þá er soldið sérkennilegt að vera svona hressilega útskúfaður án dóms og laga á grundvelli ósannprófaðra ásakanna og upptjúnaðra kjaftasagna. Finnst þér það ekki annars sjálfum? Það er hægt að ásaka alla um allthvaðeina en það virðist ekki þurfa að sanna nokkurn skapaðan hlut. Fólk virðist ekki fatta að ásakanir eru bara ásakanir og eru ekki ígildi sektar, en á Íslandi jafngilda ásakanir hæstaréttarúrskurði.“

Ég: „Já, þetta eru ekki alveg nógu góðar tvíbökur. Femínistar segja að menn þurfi ekki að vera saklausir þó að sekt þeirra sannist ekki. Auðvitað er það rétt. En málið er að allir menn skulu TELJAST saklausir þangað til sekt sannast. Fólk virðist ekki skilja þessa grundvallarsetningu réttarkerfisins. Þetta virðist vera of flókið.“

Megas: „Þessar elskur vilja snúa sönnunarbyrðinni við þannig að karlmenn skuli teljast sekir uns þeir ná að sanna sakleysi sitt, – og jafnvel þó þeir nái að sanna sakleysi sitt þá eru þeir samt sekari en Satan sjálfur því allir karlmenn eru kúgandi drullusokkar feðraveldisins.“

Áfram hélt samtalið:

Megas: „Á svona stundum kemst maður að því hverjir eru vinir manns og hverjir ekki.

Sumir allra ódýrustu og ómerkilegustu “vina” minna voru snöggir að afneita mér og trampa á mér og úthúða mér sem óþverra og henda mér fyrir valtarann þegar slaufunarómenningin stóð sem hæst, af ótta við að lenda sjálfir undir valtaranum einsog fatlafólið forðum daga.“

Ég: „Hafa STEF-gjöldin þín hrapað niðrúr öllu og í gegnum gólfið einsog þú sjálfur?“

Megas: „Yes. Þau eru orðin jafn lág og greindarvísitala Bubbadýrkendanna á RÚV.“

Ég: „Er það svona slæmt?“

Megas: „Já, þú ættir nú að vita það sjálfur. En ég fæ smá ellilaun og svo er ég sem betur fer á heiðurslistamannalaunum Alþingis.“

Ég: „Já, Davíð sé lof.“

Megas: „En það er nú verið að tala um að svipta mig þeim líka einsog ærunni.“

Ég: „En þú ert nú samt einstaka sinnum spilaður á RÚV, – Rétttrúnaðar-Úrgangi Vókista, öfugt við mig. Ég heyrist Aldrei nokkurntíma á RÚV frekar en á nokkuri annarri útvarpsstöð eftir að mér var slaufað og cancellað og útskúfað og ég er ekkert að væla yfir þessu enda þaulvanur bannfæringum. Ég held meiraðsegja að ég sé mun meiri canslari en þú kallinn minn.“

Megas: „Já, það má vel vera að ég sé spilaður einstöku sinnum á ári en þú aldrei, en málið er að þó þetta sé ekki opinbert Bann með stórum staf, þá ritskoðar hver skinhelgur þáttagerðarmaður sjálfan sig í strimla af ótta við að vera kallaður „nauðgaravinur“ eða eitthvað svoleiðis nonsense af geðfötluðum hatursspúandi froðufellandi ofstækisfemínistum sem fara af hjörunum og hringja sturlaðir inn ef það er minnst á mig með jákvæðum hætti.“

Ég: „Áður fyrr voru menn brókaðir og jafnvel lókaðir í þurrt, en núna eru menn vókaðir.“

Megas: „Rétt er það, núna eru menn vókaðir við undirleik fjölmiðlanna sem spila með og slá taktinn á sínar tómu höfuðtunnur sem hæst bylur í. Í dag eru hefðbundnir dómstólar næsta óþarfir því við erum með fjölmiðla og samfélagsmiðla og dómstóla á hverju götuhorni sem sjá um allar dómsuppkvaðningar í landinu.“

Eftir langt og gott spjall kvöddumst við canslararnir í síðasta sinn með innilegu faðmlagi.

Megas er dýrmætasti demanturinn í klósetti íslenskrar textagerðar

Fyrir um 40 árum sagði ég í Morgunblaðsviðtali um þekktan tónlistarmann og ódýran „vin“ Megasar í bransanum að sá gæi væri „einn lögulegasti kúkurinn í klósetti íslenskrar textagerðar.“

Um Megas segi ég hinsvegar að hann sé dýrmætasti demanturinn í klósetti íslenskrar textagerðar, og honum á ekki að slaufa og sturta niður heldur koma fyrir í plusslögðu gullskríni við hlið annarra djásna íslenskrar bókmenntasögu og hafa í hávegum.

Það má vel vera að Megas hafi einhverntíma gert eitthvað ósæmilegt – og kannski ekki.

Hef ekki hugmynd um það. Ég var ekki vitni að neinu misjöfnu einsog öll þjóðin virðist hafa verið. Ég veit hinsvegar að einu óskeikulu og fullkomnu mennirnir í þessum heimi eru ofbeldisfemínistar og rétthugsandi vókistar og vinstriheilagleikar með alla sína stífpressuðu englavængi og skjannahvítu dómarahárkollur.

Hvað sem hver segir þá var Megas ekki lítilmenni og illa innrætt skítmenni einsog margir þeirra „vina“ hans sem drulluðu hann út og afneituðu honum skíthræddir um eigin hag þegar MeToo-galdrabrennufaraldurinn var í algleymingi, heldur var hann stórmenni og vitmenni og ljúfmenni sem bar nafn með rentu. (Magnús þýðir mikill á íslensku og Megas þýðir mikill á grísku).

Mér þótti afar vænt um þennan ljúfa vin minn sem gat verið svo skemmtilega hrjúfur í sínum ruddalega góðu textum..

Megas var ljúft lamb með stálull. Þótt landar hans og útvarpsstöðvar vilji gleyma honum og þótt hann hafi sjálfur stundum gleymt guði, þá mun guð ekki gleyma honum.

Megi list hans lifa ár og síð í hjörtum þeirra fáu sem ennþá kunna að lesa sér til skilnings og gagns.

  • Sverrir Stormsker

Höfundur er tónlistarmaður og rithöfundur og cancellaður canslari og rækilega útskúfaður án dóms og laga.


#lamb #ljúft #megas #með #var


Upprunaleg slóð:
https://www.nutiminn.is/featured/megas-var-ljuft-lamb-med-stalull-grein-eftir-sverrir-stormsker/

📰 Aðrar fréttir

Flávio Bolsonaro flúinn til Bandaríkjanna
📅 28.10.2026 👁️ 1
Flávio Bolsonaro flúinn til Bandaríkjanna
Forsetaframbjóðandinn Flávio Bolsonaro, sem laut í lægra haldi í forsetakosningunum sem haldnar voru í Brasilíu á sunnudaginn, hefur flúið land.Bolson...
UK weather: Fog and mist to create dangerous driving conditions
📅 28.10.2026 👁️ 1
UK weather: Fog and mist to create dangerous driving conditions
After storms across the UK, the weather is set to turn calmer with mist and fog at times over the coming week.
The maths bust-up fuelling fears that AI is undermining science
📅 28.10.2026 👁️ 2
The maths bust-up fuelling fears that AI is undermining science
AI has made some awesome scientific discoveries. But now, questions are being raised about its accuracy
'No clear winner' in Israel election - what happens now?
📅 28.10.2026 👁️ 1
'No clear winner' in Israel election - what happens now?
Polls have closed in the Israeli election, but there is no clear winner.
Ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir
📅 27.10.2026 👁️ 2
Ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir
„Það er ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. „Það er...
Tekur við Bolsonaro opnum örmum - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 2
Tekur við Bolsonaro opnum örmum - Vísir
Bolsonaro hefur enn ekki formlega játað ósigur í kosningunum sem fóru fram um helgina. Flokkur hans, Frjálslyndisflokkurinn, hefur þó viðurkennt sigur...
Munda fall­byssurnar við landa­mærin - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 2
Munda fall­byssurnar við landa­mærin - Vísir
Á eina fallbyssuna eru skilaboð sem hafa verið þýdd sem: „Gereyðið bandarísku heimsvaldasinnunum, svornum óvinum kóresku þjóðarinnar.“ Talið er að Nor...
Féll fyrir gullfallegum förðunarfræðingi en endaði óvart með að þvætta pening fyrir alþjóðleg glæpasamtök
📅 27.10.2026 👁️ 3
Féll fyrir gullfallegum förðunarfræðingi en endaði óvart með að þvætta pening fyrir alþjóðleg glæpasamtök
Texasmaðurinn Garrick Stafford hafði varið heilu sumri í að skiptast á skilaboðum við dömu sem hann kynntist á netinu, rauðhærðan förðunarfræðing að n...
Guðmundur Andri ósáttur við partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
📅 27.10.2026 👁️ 3
Guðmundur Andri ósáttur við partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, er á meðal þeirra sem leggjast gegn óbreyttri starfsemi veislusalarins Hlöðunnar á...
Skildi fjögur börn ein eftir heima og fór til Las Vegas – Eitt barnið slasaðist á höfði
📅 27.10.2026 👁️ 3
Skildi fjögur börn ein eftir heima og fór til Las Vegas – Eitt barnið slasaðist á höfði
Fimmtug kona í Flórída fylki í Bandaríkjunum hefur verið handtekin fyrir alvarlega vanrækslu fjögurra barna sinna. Skildi hún þau ein eftir heima á me...
Sendiherra Kúbu segir hert viðskiptabann vera þögult stríð
📅 27.10.2026 👁️ 3
Sendiherra Kúbu segir hert viðskiptabann vera þögult stríð
Neyð á Kúbu hefur aukist eftir að Bandaríkjastjórn herti í ársbyrjun á viðskiptabanni sem hefur verið í gildi í yfir sex áratugi. Á Allsherjarþingi Sa...
Brúin leggur af stað yfir ána
📅 27.10.2026 👁️ 3
Brúin leggur af stað yfir ána
Það tekur um tíu daga að draga nýja Ölfusárbrú yfir ána, á sinn stað. Ferðalagið nemur 330 metrum og hún fer um fimm metra á klukkustund.Brúin var smí...
Uppistandari gerir grín að viðbrögðum Íslendinga
📅 27.10.2026 👁️ 3
Uppistandari gerir grín að viðbrögðum Íslendinga
Uppistandarinn sprenghlægilegi Sarah Millican gerir stólpagrín að viðbrögðum Íslendinga við heiti á sýningunni hennar þegar hún kom fyrst til landsins...
Haft á­hrif með því að „standa í lappirnar gagn­vart tæknirisunum“ - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Haft á­hrif með því að „standa í lappirnar gagn­vart tæknirisunum“ - Vísir
„Við vorum að fylgja eftir samtali sem við áttum,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í samtali við fréttastofu en þessi sami hópur, forsæti...
Guðmundur Andri ósáttur partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
📅 27.10.2026 👁️ 3
Guðmundur Andri ósáttur partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, er á meðal þeirra sem leggjast gegn óbreyttri starfsemi veislusalarins Hlöðunnar á...
Hildi og Inga Þór sagt upp - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Hildi og Inga Þór sagt upp - Vísir
„Á meðan ég var í flugi fékk ég fundarboð, sem ég eðlilega sá ekki, og í rúllustiga á flugvelli á leið í lest fékk ég uppsagnarbréf frá Reykjavíkurbor...
Trump says US voter fraud is 'rampant' - evidence suggests it is extremely rare
📅 27.10.2026 👁️ 3
Trump says US voter fraud is 'rampant' - evidence suggests it is extremely rare
As the US president casts doubt on the security of the midterm elections, BBC Verify examines his claims.
Sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir 18 ár í starfi
📅 27.10.2026 👁️ 3
Sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir 18 ár í starfi
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir var ein þeirra sem sagt var upp hjá Reykjavíkurborg í dag. Hún greinir frá þessu í færslu á Facebook.Hildur hafði star...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Nautið í flaginu: tekst að koma hring í nefið á Trump?
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sigvaldi Einarsson skrifar: Nautið í flaginu: tekst að koma hring í nefið á Trump?
Þingkosningarnar 3. nóvember gætu ráðið því hvort Donald Trump fær að fara sínu fram næstu tvö árin eða hvort bandaríska lýðveldið veitir honum loksin...
Þrjú dekk sprungu á bílaleigubílnum – „Algjört ábyrgðarleysi að leigja út svona bíl“
📅 27.10.2026 👁️ 4
Þrjú dekk sprungu á bílaleigubílnum – „Algjört ábyrgðarleysi að leigja út svona bíl“
Erlendir ferðamenn eru rjúkandi reiðir eftir að hafa leigt bílaleigubíl á Íslandi. Dekkin voru í svo slæmu ástandi að þrjú þeirra sprungu á stuttum tí...
Fjárfesta í gagnaverum fyrir 57 milljarða á þessu ári
📅 27.10.2026 👁️ 4
Fjárfesta í gagnaverum fyrir 57 milljarða á þessu ári
Fjárfestingar gagnaveranna hafa mikil áhrif á allar hagtölur. Í greiningu Óskars Hrafnssonar, hjá Greiningu Íslandsbanka, sem kom út í dag kemur fram ...
„Skorið niður til þess eins að skera niður“ - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
„Skorið niður til þess eins að skera niður“ - Vísir
Stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fá beina uppsögn, en að um er að ræða síðasta áfanga við fækkun stöðugilda....
Alexander brothers each sentenced to 30 years in prison for sex trafficking case
📅 27.10.2026 👁️ 2
Alexander brothers each sentenced to 30 years in prison for sex trafficking case
The trio - two of whom were high-profile US real estate moguls - were found guilty using their social status to lure women to parties and then raping ...
Eisenkot með nauma yfirburði í útgönguspám
📅 27.10.2026 👁️ 4
Eisenkot með nauma yfirburði í útgönguspám
Hvorki meirihluti Benjamíns Netanyahu forsætisráðherra né stjórnarandstöðublokk Gadis Eidenkot geta myndað þingmeirihluta samkvæmt útgönguspám í Ísrae...
Trump stóreykur losun metans
📅 27.10.2026 👁️ 4
Trump stóreykur losun metans
Trump stóreykur losun metans Banda­ríkja­for­seti losar um reglur sem eiga að hindra að metan ber­ist í and­rúms­loftið við olíu­vinnslu. Efnið veldur...
Enginn skýr sigur­vegari í útgönguspám - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Enginn skýr sigur­vegari í útgönguspám - Vísir
Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun katörsku fréttaveitunnar Al Jazeera en þar segir einnig að samkvæmt ísraelsku sjónvarpsstöðinni Channel...
Ceasefire extended across Ukraine's Kherson region, officials say
📅 27.10.2026 👁️ 4
Ceasefire extended across Ukraine's Kherson region, officials say
The truce was originally planned for the stranded residents of Oleshky, and Russia and Ukraine say no breaches have been reported.
16 milljónir á mánuði fyrir eitt barn
📅 27.10.2026 👁️ 4
16 milljónir á mánuði fyrir eitt barn
Við sitjum í stofu í fjölbýlishúsi í Grafarvogi. Fjölmargar myndir af ungum manni prýða þar veggi og borð.„Hann var náttúrulega alveg ótrúlega skemmti...
King acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
📅 27.10.2026 👁️ 4
King acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
The King is on a nine-day tour that will take him to three countries, including the Bahamas, Guyana and Antigua and Barbuda.
Bahamas: King Charles acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
📅 27.10.2026 👁️ 3
Bahamas: King Charles acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
The King is on a nine-day tour that will take him to three countries, including the Bahamas, Guyana and Antigua and Barbuda.
Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn
Sveinn R. Eyjólfsson, einn stofnandi fjölmiðlanna Vísis.is, Fréttablaðsins, DV og Dagblaðsins, er látinn, 88 ára að aldri.Hann lést á Landspítalanum l...
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvaða menningu erum við að skapa?
📅 27.10.2026 👁️ 3
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvaða menningu erum við að skapa?
Hvað gerist þegar valdamesta fólk heims sýnir með orðum sínum og hegðun að það sé í lagi að niðurlægja aðra, hóta þeim eða ala á tortryggni gagnvart h...
Fyrsta mynd­bandi Tár leik­stýrt af Bald­vin Z - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Fyrsta mynd­bandi Tár leik­stýrt af Bald­vin Z - Vísir
Elín Eyþórsdóttir og Zöe Ruth Erwin skipa hljómsveitina. Þær hafa báðar skapað tónlist hvor í sínu lagi og í öðrum hljómsveitum um árabil en hafa fund...
Lúðvík fannst ekki
📅 27.10.2026 👁️ 4
Lúðvík fannst ekki
Líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður í sprungu í Grindavík árið 2024, fundust ekki í leitaraðgerðum sem ráðist var í. Þeim verður ekki hal...
Serial killer Ted Bundy linked to teenage girl's murder after 52 years
📅 27.10.2026 👁️ 1
Serial killer Ted Bundy linked to teenage girl's murder after 52 years
Authorities in Utah used advanced DNA technology to solve the cold case decades after the notorious killer was executed.
Hildur Lilliendahl fékk uppsagnarbréf á ferðalagi eftir átján og hálft ár hjá borginni
📅 27.10.2026 👁️ 4
Hildur Lilliendahl fékk uppsagnarbréf á ferðalagi eftir átján og hálft ár hjá borginni
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segist hafa fengið uppsagnarbréf frá Reykjavíkurborg í miðju ferðalagi erlendis, eftir átján og hálfs árs starf. Hún l...
Hildi sagt upp hjá borginni
📅 27.10.2026 👁️ 4
Hildi sagt upp hjá borginni
Hildi sagt upp hjá borginni Hildur Lilliendahl Mynd: Instagram Baráttukonan og verkefnastjórinn Hildur Lilliendahl Viggósdóttir var á leið til útlanda...
Chris Mason: Budget needs to go some way towards delivering PM's promises
📅 27.10.2026 👁️ 4
Chris Mason: Budget needs to go some way towards delivering PM's promises
Support on the cost of living, and in particular energy bills, as well as announcments on devolution will be central to John Healey's first Budget.
Dutch zookeeper dies after being mauled in leopard enclosure
📅 27.10.2026 👁️ 4
Dutch zookeeper dies after being mauled in leopard enclosure
The woman began her career at the park when she was 17 and had worked there on-and-off for four decades.
Dutch zookeeper dies after being mauled by leopard
📅 27.10.2026 👁️ 3
Dutch zookeeper dies after being mauled by leopard
The woman began her career at the park when she was 17 and had worked there on-and-off for four decades.
Arion banki greiðir 280 milljónir í sátt vegna milligöngu um markaðssvik
📅 27.10.2026 👁️ 4
Arion banki greiðir 280 milljónir í sátt vegna milligöngu um markaðssvik
Arion banki og Seðlabanki Íslands hafa gert með sér sátt vegna brota Arion banka á ákvæðum reglugerðar um markaðssvik. Fjármálaeftirlit Seðlabankans h...
280 milljónir í sekt vegna milligöngu um markaðssvik
📅 27.10.2026 👁️ 3
280 milljónir í sekt vegna milligöngu um markaðssvik
Arion banki og Seðlabanki Íslands hafa gert með sér sátt vegna brota Arion banka á ákvæðum reglugerðar um markaðssvik. Fjármálaeftirlit Seðlabankans h...
Engar vís­bendingar fundist en form­legri leit lokið - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Engar vís­bendingar fundist en form­legri leit lokið - Vísir
Í tilkynningu frá lögreglu þess efnis segir að aðgerðin hafi staðið yfir í sjö og hálfa klukkustund og fól meðal annars í sér að  tveir leitarmenn sig...
Allar helstu uppljóstranirnar í heimildarmynd Netflix um Matthew Perry
📅 27.10.2026 👁️ 3
Allar helstu uppljóstranirnar í heimildarmynd Netflix um Matthew Perry
Gæti nýja heimildarmyndin á Netflix um Matthew Perry verið sorglegri? Höskuldarviðvörun: Ef þú vilt ekki lesa hvað kemur fram í Netflix þriggja þátta ...
Dýna í golfhermi og 70 milljóna hagnaður
📅 27.10.2026 👁️ 4
Dýna í golfhermi og 70 milljóna hagnaður
Fyrrverandi starfsmenn einkarekins búsetuúrræðis fyrir börn með fjölþættan vanda segja eigendurna spara í þjónustu við börnin á meðan þeir hagnist sjá...
Segja barn hafa sofið í golfhermi
📅 27.10.2026 👁️ 4
Segja barn hafa sofið í golfhermi
Fyrrverandi starfsmenn einkarekins búsetuúrræðis fyrir börn með fjölþættan vanda segja eigendurna spara í þjónustu við börnin á meðan þeir hagnist sjá...
Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn - Vísir
Sveinn fæddist í Reykjavík 4. maí 1938. Foreldrar hans voru Eyjólfur Sveinsson (1909-1945) og Kristín Bjarnadóttir (1915-2005). Sveinn varð stúdent fr...
Fundu engar vísbendingar um hvar líkamsleifar Lúðvíks er að finna
📅 27.10.2026 👁️ 3
Fundu engar vísbendingar um hvar líkamsleifar Lúðvíks er að finna
Lögreglan á Suðurnesjum hefur lokið leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll ofan í sprungu í Grindavík í janúar 2024. Við leitina fundust e...
Fundu engar vísbendingar um líkamsleifar Lúðvíks
📅 27.10.2026 👁️ 4
Fundu engar vísbendingar um líkamsleifar Lúðvíks
Lögreglan á Suðurnesjum hefur lokið leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll ofan í sprungu í Grindavík í janúar 2024. Við leitina fundust e...
Landline switchover could cut people off in emergency, minister warned
📅 27.10.2026 👁️ 3
Landline switchover could cut people off in emergency, minister warned
Plans to switch to digital landlines by January could leave remote areas of the UK vulnerable, MPs say.