Frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um Stofnun atvinnuveganna var samþykkt á Alþingi.
35 þingmenn greiddu atkvæði með frumvarpinu á meðan níu þingmenn Miðflokksins og Framsóknar greiddu atkvæði gegn því. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins sátu hjá að undanskildum Guðlaugi Þór Þórðarsyni sem kaus með því.
Hin nýja stofnun tekur til starfa þann 1. janúar og munu þá Matvælastofnun, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs vera lagðar niður og hin nýja stofnun taka við verkefnum þeirra.
Barist í áraraðir fyrir sameiningunni
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, sagði í ræðustól Alþingis er greidd voru atkvæði um frumvarpið að það væri ýmsum annmörkum háð og betur hefði farið á því að vinna það betur og leggja það fram að nýju í haust.
Guðlaugur Þór sagði málið eiga sér langan aðdraganda og að fagnaðarefni væri að núverandi ríkisstjórn hefði haldið því áfram. Þó væru vonbrigði að tíminn hefði ekki verið betur nýttur í samráð og samvinnu. Hann greiddi þó atkvæði með frumvarpinu enda hefði hann barist fyrir því í áraraðir.
Hanna Katrín sagði sameiningu stofnananna vera lið í því að einfalda kerfi leyfisveitinga og eftirlits og að hún myndi bæta þjónustu við almenning og fyrirtæki í landinu.