Leikarinn Matt Damon segist alltaf grípa til sama lagsins þegar hann stígur á svið í karaókí.
Í viðtali í þættinum Are You Okay? sagði Damon að lagið Sweet Caroline væri hans örugga val. „Ég vel alltaf Sweet Caroline. Það fær alla til að syngja með,“ sagði hann.
Valið kemur vart á óvart þar sem lagið, sem er eftir Neil Diamond, hefur um árabil verið nátengt íþróttamenningunni í Boston sem er einmitt heimaborg Damons.
Leikarinn geðþekki er þessa dagana að kynna nýjustu mynd leikstjórans Christopher Nolan, The Odyssey, þar sem hann fer með hlutverk Ódysseifs. Myndin byggir á hinu forngríska stórkvæði Hómers og segir frá hættuför konungsins heim eftir Trójustríðið. Myndin var tekin upp að stóru leyti hér á landi.
Meðal annarra leikara í myndinni eru Tom Holland, Zendaya, Anne Hathaway, Lupita Nyong’o og Robert Pattinson.
Þrátt fyrir að vera óhræddur við að taka lagið segist Damon ekki telja sig vera sérstakan söngvara.
„Ég meina, ég get sungið Sweet Caroline,“ sagði hann og hló þegar hann var spurður út í sönghæfileikana.