Leikarinn Matt Damon segist alltaf grípa til sama lagsins þegar hann stígur á svið í karaókí.Í viðtali í þættinum Are You Okay? sagði Damon að lagið Sweet Caroline væri hans örugga val. „Ég vel alltaf Sweet Caroline. Það fær alla til að syngja með,“ sagði hann.Valið kemur vart á óvart þar sem lagið, sem er eftir Neil Diamond, hefur um árabil verið nátengt íþróttamenningunni í Boston sem er einmitt heimaborg Damons.
Matt Damon velur alltaf sama karaókílagið - „Fær alla til að syngja með“