Íslenska fatafyrirtækið Martex–Batik hefur tekið upp nafnið Þórarinn og kynnt um leið nýtt útlit og nýja heimasíðu. Nafnið heiðrar Þórarinn Elmar Jensen, ættföður fjölskyldu fyrirtækisins, en saga fjölskyldunnar í íslenskum fataiðnaði nær aftur til ársins 1954. Kemur þetta fram í tilkynningu.Elmar Freyr Jensen er framkvæmdastjóri og einn eigenda fyrirtækisins. Þórarinn Elmar Jensen stofnaði vörumerkið 66°Norður, en fjölskyldan rak fyrirtækið til ársins 2005. Fjölskyldan kom einnig að stofnun Geysisverslana árið 2006 og rak þær til ársins 2014.
Martex verður Þórarinn