Evrópa hefur „aldrei verið jafn eftirsóknarverð“
Stækkunarstjóri Evrópusambandsins, Marta Kos, segir hugmyndir um aukaaðild Kanada sýna hversu eftirsóknarverður samstarfsaðili Evrópa sé orðin. Hún segist harma niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Íslandi en virða ákvörðun íslenskra kjósenda.
Evrópa hefur aldrei verið eftirsóknarverðari sem samstarfsaðili en nú og hugmyndir um að Kanada fái aukaaðild að Evrópusambandinu sýna það að mati Mörtu Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins.
„Evrópa hefur aldrei verið jafn eftirsóknarverð og hún er í dag,“ sagði Kos í Ósló á fimmtudag þegar hún var spurð hvort sú ákvörðun Íslendinga að hafna því að viðræður um aðild að ESB yrðu teknar upp að nýju væri merki um að sambandið hefði misst aðdráttarafl sitt.
„Ég harma niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Íslandi“
„Þegar ég tala um aðdráttarafl á ég ekki aðeins við hvort ríki gerist aðili eða ekki. Ég á við vilja til að vinna nánar með okkur eða með öðrum hætti sem við höfum ekki kannað áður, eins og í tilfelli Kanada,“ bætti Kos við.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, lagði á miðvikudag til að Kanada yrði fyrsta ríkið til að fá aukaaðild að ESB. Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, …